Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Grét gleðitárum og hélt að hann væri deyja: „Sem betur fer sá hún hvorki símtölin né skilaboðin“

Grét gleðitárum og hélt að hann væri deyja: „Sem betur fer sá hún hvorki símtölin né skilaboðin“

Kjartan Þórisson, stof­andi nýsköp­un­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Tímatal, lýsir á Twitter þeirri skelfi­legu reynslu sem hann varð fyrir nýlega. Hann var að und­ir­búa mik­il­vægan fund þegar hann fann skyndi­lega fyrir ein­kennum heila­blóð­falls. Stuttu síðar lá hann á gólf­inu, sann­færður um að nú væru dagar hans taldir.

„Ég var að vinna í mik­il­væg­ustu kynn­ingu lífs míns þegar ég fann eitt­hvað „poppa” inni í höfð­inu mínu, rétt hjá hægra gagn­aug­anu. Á innan við sek­úndu fann ég dofa streyma frá svæð­inu yfir allan lík­amann og hugs­anir mínar urðu að leðju. Bæði algeng ein­kenni heila­blóð­falls,“ lýsir Kjartan.

í ætt Kjartans er að finna nokkur dæmi um að fólk hafi fengið heila­blóð­fall og glímt við alvar­leg eft­ir­köst. „Smá baksaga. Þegar mamma var á mínum aldri og nýbúin að eign­ast mig fékk hún heila­blóð­fall sem hún lifði sem betur fer af, og afi hennar, einn stærsti útgerð­ar­maður lands­ins á sínum tíma, lam­að­ist á besta aldri af sömu ástæðu. Þessar sögur þekkti ég vel,“ lýsir Kjartan.

Skilaboð sem enginn maki á að þurfa að fá

Það eina sem honum datt þá í hug var að gúggla málið og hafa sam­band við unn­ustu sína. „Ég var viss um að það sama væri að ger­ast við mig. Ég man að ég náði að opna Google og slá inn “Stroke symptoms”. Dofi og skyndi­leg hugs­ana­þoka komu þar ofar­lega á lista, sem gerði mig bara viss­ari um að eitt­hvað væri að. Ég hringdi í @ranisold sem var úti í göngutúr með vin­konu sinni. Hún svar­aði ekki. Ég hringdi aftur. Ekkert svar. Ég sendi henni þá skila­boð sem eng­inn maki á að þurfa að fá. Sem betur fer sá hún hvorki sím­tölin né skila­boðin fyrr en eftir að hún var komin heim,“ segir Kjartan.

Því næst upp­lifði hann furðu­lega kyrrð. „Ég lá á gólf­inu og var viss um að ég væri að deyja. Vinatón­inn hennar, Strawberry Swing eftir Frank Ocean, sem ég hafði heyrt svo oft áður og tengdi svo sterkt við hana og allar minn­ing­arnar sem við áttum saman, fékk tárin til að streyma. Skyndi­lega, liggj­andi á gólf­inu viss um að minn tími væri kom­inn, átt­aði ég mig á því að ég var að gráta gleði­tárum. Ég fann að ég var bros­andi. Jafnvel smá flissandi. Ég var ennþá viss um að ég væri að deyja, en ég fann að ég var ekki hræddur lengur. Ég var þakk­látur,“ segir Kjartan.

Fékk hugljómun

Þarna á gólf­inu fékk hann hug­ljómun. „Ég hugs­aði um allt fólkið í lífi mínu og fann að ég hafði haft jákvæð áhrif á alla sem voru mér næst. Ég fann að það góða í mér myndi halda áfram að lifa í gegnum þau og það veitti mér ein­staka sál­arró. Ég fann og skildi loks­ins að það eina sem við skiljum eftir í þessum heimi eru áhrifin sem við höfum á annað fólk. Það er það eina sem skiptir máli þegar allt kemur til alls,“ segir Kjartan og bætir við:

„Í fyrsta skipti í langan tíma bað ég til Guðs, eins og fólk gerir oft á augna­blikum eins og þessum, og lof­aði honum að ef ég kæm­ist í gegnum þennan dag myndi ég lifa lífi mínu fyrir aðra, með það að mark­miði að hafa eins mikil jákvæð áhrif og ég gæti.“

Heilsukvíði ekkert djók

Sem betur fer reynd­ist þetta ekki heila­blóð­fall. „Núna, 8 mán­uðum seinna (og að mestu kom­inn yfir heilsu­kvíð­ann sem fylgdi mér í nokkra mán­uði eftir þetta atvik), trúi ég því inni­lega að eina leiðin til að finna langvar­andi innri frið og ham­ingju sé að hjálpa öðrum og hafa jákvæð áhrif á fólkið í kringum sig. Þegar Rán kom heim var ég í sím­anum með 112 að lýsa fyrir þeim hvað ég hafði upp­lifað. Þeim fannst ólík­legt að þetta hefði verið heila­blóð­fall og seinna lærði ég að þetta hefði lík­lega verið enn­is­holu­stífla að losna, sem hafi trig­gerað mitt fyrsta ofsa­kvíða­kast,“ segir Kjartan.

Eftir þetta fór Kjartan að upp­lifa heilsu­kvíða og segir hann það ekk­ert grín. „Í kjöl­farið af þess­ari upp­lifun var ég lengi ofur­næmur fyrir öllu inni í lík­am­anum mínum og fékk nokkur væg­ari kvíða­köst þegar ég hélt að ég væri að fá hjarta­á­fall eða “annað” heila­blóð­fall. Heilsu­kvíði er ekk­ert djók og ég stend með öllum þarna úti sem eru að glíma við hann,“ segir Kjaran.

Hamingjan kemur með að hjálpa fólki

Að lokum beinir hann orðum sínum að þér, les­anda. „En ég skrifa og sendi út þennan þráð því við munum öll deyja ein­hvern­tíman. Sum okkar munu upp­lifa svona augna­blik, þar sem allt rennur saman í eitt, og þá mun skipta máli hvernig þú lifðir lífi þínu – og þá helst hvernig þú komst fram við fólkið sem þú mættir á leið­inni.

Svo ég skil þig eftir með þetta: „Ef þú ert alltaf að leita að ham­ingju fyrir sjálfa/n þig mun hún alltaf flýja þig. Ef þú hjálpar öðrum að finna ham­ingju mun þig aldrei skorta hana.” Eigðu frá­bæran dag, ég vona að þessi (of langi) þráður hafi haft jákvæð áhrif á þig.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina