Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Sveinbjörn grét þegar Guðmundur var skírður: „Dó frá konu sinni“

Sveinbjörn grét þegar Guðmundur var skírður: „Dó frá konu sinni“

Guð­mundur Brynj­ólfs­son, rit­höf­undur og djákni, segir frá því á Facebook hvað kom til að hann var skírður Guð­mundur Svein­björn en sú saga er lík­lega dramat­ísk­ari en gengur og ger­ist. Í það minnsta kemur fyrir í henni örlaga ríkur draumur sem varð til þess að verka­lýðs­for­ingi grét.

„Guð­mundur hét maður og var Ill­uga­son. Hann var fæddur 19. ágúst 1867 en lést þann 25. maí 1899, en þá drukkn­aði hann er bátur fórst sem var að koma af beitu­fjöru. Guð­mundur dó frá konu sinni, Sesselju Sveins­dóttur (3. febr­úar 1877 – 13. ágúst 1956), er var barns­haf­andi, og tveimur börnum. Eitt af börnum þeirra var Sigurður, afi minn, fæddur 9. júlí 1897 en hann lést 1981 á Akranesi,“ lýsir Guð­mundur og heldur áfram:

„Sesselja langamma gift­ist síðar Svein­birni Oddssyni verka­lýðs­for­ingja á Akranesi. En hann var fæddur 8. nóv­em­ber 1885 en lést þann 6. ágúst 1965. Svein­björn var for­maður sjó­manna­fé­lags­ins Bárunnar frá því 1916 til 1924 en þá var hann stuðn­ings­maður þess að Verka­lýðs­fé­lag Akraness var stofnað. Svein­björn var lengi bóka­vörður á Skaganum.“

Guð­mundur er skírður í höf­uðið á þessum tveimur mönnum en sög­unni er ekki lokið. „Þarna eru komin nöfnin sem ég ber. Guð­mundur Svein­björn. Síðar skapar maður sér sjálfur nafn. Með mis­jöfnum árangri, en samt eru þetta nöfnin. Ég hripa þetta hér niður til þess ítreka að maður er sá sem maður er, og nöfnin leiða mann áfram, maður er ekki nafnið – en maður er þó nær því að vera nafnið, heldur en þvi að vera sjúk­dóm­ur­inn sem maður gengur með eða önnur brenni­mörk sam­fé­lag­ins.“

Guð­mundur klárar svo sög­una í annarri færslu. „Þegar ég var nýfæddur og mamma og pabbi höfðu eig­in­lega ákveðið að ég ætti að heita Þorkell (í höf­uðið á Kela á Bakka – sjá fyrri færslu) – þá dreymir mömmu draum. Mömmu dreymir að til hennar kemur Sesselja Sveins­dóttir, amma hennar, og hefur tekið allt hár sitt saman í eina stóra fléttu. En hún hafði mikið hár og var rauð­leitt. Mömmu finnst að nafna hennar og amma komi að henni og segi:

„Þig hefur alltaf langað til þess að eiga eitt­hvað til minn­ingar um mig, er það ekki?“

Mamma man ekki til þess að hún svari neinu en þá er það í draumnum að Sesselja amma hennar tekur skæri og klippir af sér þessa fléttu. Svo réttir hún mömmu flétt­una og er þá á henni blár borði,“ lýsir Guð­mundur.

Þessi var ráð­inn á end­anum. „Mamma og amma mín á Skaganum fara að skoða þetta og velta fyrir sér og kom­ast að því að þarna sé verið að vitja nafns. Fléttan mikla sé tákn um báða eig­in­menn langa­ömmu minnar og blái borð­inn tákni mig. Er því ákveðið að ég skuli heita nöfnum eig­in­manna langa­ömmu minnar Sesselju Sveind­óttur. Það vill segja, Guð­mundur og svo Svein­björn. Svo kemur að því að mér er gefið nafn og ég skírður í tölu krist­inna manna og frá því augna­bliki man mamma mín eitt, sér­stak­lega; en það var að Svein­björn Oddsson tárað­ist.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina