Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Magnús opnar hjarta sitt upp á gátt: „Ég horfi með stolti og gleði á Ellý og veit að lífið er gott“

Magnús opnar hjarta sitt upp á gátt: „Ég horfi með stolti og gleði á Ellý og veit að lífið er gott“

Magnús Karl Magn­ús­son háskóla­pró­fessor segir að það dugi honum það eitt að horfa á Ellý eig­in­konu sína til að bæla burt öll kvíða og sökn­uði. Hann þarf aðeins að horfa á hana með stolti og gleði til að vita að lífið er gott. Í dag halda þau upp á 36 ára sam­bands­af­mæli í skugga erf­iðra veik­inda Ellýar.

Magnús ritar hjart­næma færslu á Facebook þar sem hann talar um fal­legt sam­band þeirra hjóna. „Í dag eru 36 ár liðin frá því við Ellý byrj­uðum saman. Þann 26. jan­úar 1985 fór tví­tugur háskóla­nemi á pró­floka­ball í Félags­stofnun Stúdenta. Á þessu sama balli var fal­leg tví­tug háskóla­stúd­ína sem hafði verið á sömu les­stofu og sá fyrr­nefndi! Sade söng Smooth Operator, háskóla­stúd­ent­arnir döns­uðu sem eng­inn væri morg­un­dag­ur­inn. Síðan hafa þau fylgst að,“ rifjar Magnús upp.

Þau hafa nú fylgst að í 36 ár. „Í 36 góð ár hefur verið gott að fylgja minni fal­legu og ein­stöku konu. Það síð­asta hefur kannski verið örlítið erf­ið­ara en flest önnur. En þegar á reynir verður manni enn ljós­ara hversu mik­il­vægt er að eiga góðan maka, góðan lífs­föru­naut gegnum þykkt og þunnt. Þegar saman fer erf­iður far­aldur og erf­iður sjúk­dómur hjá Ellý þá verð ég að við­ur­kenna að síð­ustu mán­uði hefur stundum sótt á mig kvíði og sökn­uður. En þá horfi ég með stolti og gleði á Ellý og veit að lífið er gott,“ segir Magnús og heldur áfram:„Ég held að margir sem lifa í nánd við heila­bilun skynji kvíða og söknuð. Þessar til­finn­ingar, sökn­uður og kvíði eru til­finn­ingar tím­ans, önnur horfir aftur til for­tíðar meðan hin horfir inn í fram­tíð­ina. Á sama tíma vilja þær draga athygli þess sem þær ásækja frá nútíð­inni. En ham­ingjan býr alltaf í nútíð­inni, í augna­blik­inu sem er alltaf til staðar. Augna­blik­inu sem er mitt á milli fram­tíðar og for­tíðar.“Magnús segir að Ellý hjálpi sér og þeim sem í kringum hana eru að lifa í augna­blik­inu þar sem finna megi ham­ingj­una. „Þegar hún vaknar á morgn­ana og man að hún er á leið­inni í Hlíðabæ, horfir á mig og segir „það er alltof svo gott að fara í Hlíðabæ”. Þegar ég kem heim út vinn­unni á mið­viku­dögum, spyr Ellý hvernig hafi verið í sundi með félög­unum í Hlíðabæ; „það var nú bara draumur í dós” svara hún með blik í auga,” segir Magnús og bætir við:„Þegar við Ellý göngum saman um borg­ina og njótum þess nágrennis þar sem hjarta hennar hefur alla tíð slegið. Það er gott að vita að þegar sökn­uð­ur­inn reynir að neyða mann til að horfa til­baka eða þegar kvíð­inn knýr mann til að horfa með sökn­uði til fram­tíðar, já þá er gott að vita að Ellý tengir mig við nútíð­ina þar sem ham­ingjan býr. Takk mín kæra Ellý, í nútíð­inni er ham­ingjan.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við