Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Freyja Haralds syrgir fallinn félaga: „Takk fyrir að kenna okkur að hrista af okkur skömm“

Freyja Haralds syrgir fallinn félaga: „Takk fyrir að kenna okkur að hrista af okkur skömm“

Blær Ástríkur Ástuson Ást­ráðs­son, áður Ásdís Jenna Ást­ráðs­dóttir, var bor­inn til grafar í gær. Freyja Har­alds­dóttir ásamt Emblu Guðrúnu Ágústs­dóttur minn­ast hans í fal­legri minn­ing­ar­grein sem birt­ist í Morg­un­blað­inu í gær. Það gera þær í nafni fem­inísku fötl­un­ar­hreyf­ing­ar­innar Tabú en Blær barð­ist alla ævi fyrir rétt­inda­mál fatl­aðs fólks. Blær var heyrna­skertur og með trufl­aða vöðva­spennu sem leiddi til þess að hann gat hvorki stjórnað höndum né fótum. 

Freyja og Embla segja mik­inn missi af Blæ. „Elsku Blær okkar. Þegar við, Tabúsystur þínar, hitt­umst til þess að minn­ast þín eftir að þú kvaddir lá í loft­inu mikil sorg yfir því skarði sem þú skilur eftir meðal okkar en um leið þakk­læti fyrir allt sem þú gafst okkur og lagðir af mörkum til bar­áttu fatl­aðs fólks á Íslandi. Þú varst sterk bar­áttu­mann­eskja og tókst þér pláss á ólíkum sviðum sam­fé­lags­ins, án þess að afsaka þig, og bjóst þannig til pláss fyrir okkur,” segja þær. 

Fyrirmynd

Freyja og Embla segja að Blær hafi verið þeim fyr­ir­mynd þegar þær voru yngri. „Þú varst okkur mik­il­væg fyr­ir­mynd þegar við vorum að alast upp en fatlað fólk var svo ósýni­legt í sam­fé­lag­inu og gátum við því lítið speglað okkur í fólki sem bjó við sam­bæri­legan veru­leika og við. Við þekktum þig ekki allar per­sónu­lega sem börn en vissum allar hver þú varst. Þú varst óþreyt­andi við að ryðja braut­ina og sýna okkur að við eigum fram­tíð. Ljóðin þín færðu hug okkar og hjarta rödd og orð yfir fötl­un­ar­reynslu okkar, sem oft er svo erfitt að koma orðum að,” segja þær.

 „Hindr­an­irnar á vegi þínum í gegnum lífið voru ófáar en það var stundum eins og þú sæir þær ekki. Þú óðst áfram og gerðir kröfu um jöfn tæki­færi til tjá­skipta, sjálf­stæðs lífs, mennt­unar, aðgengis og for­eldra­hlut­verks­ins. Það var samt ekki alltaf auð­velt og dáumst við að þrjósku þinni og eld­móði enda gafstu aldrei drauma þína upp á bát­inn.”

Skilur eftir stórt skarð

Freyja og Embla rifja svo upp eina af síð­ustu minn­ingum þeirra af honum. „Þú varst óhræddur við að leita ráða hjá öðru fötl­uðu fólki en á sama tíma óspar á hvatn­ingu, ráð­legg­ingar og leið­bein­ingar fyrir fólk í sam­bæri­legri stöðu. Rétt áður en þú kvaddir hélstu þétt utan um eina Tabúsystur sem var á leið í aðgerð og leið­beindir annarri um hvernig ætti að setja fag­fólki með for­dóma mörk í tengslum við for­eldra­hlut­verkið,” segir Þær.

 „Elsku bar­áttu­bróðir okkar. Takk fyrir að kenna okkur að hrista af okkur skömm og vera stoltar fatl­aðar mann­eskjur. Nærvera þín skilur eftir stórt skarð en við munum leggja okkur fram um að heiðra minn­ingu þína með því að gefa engan afslátt af rétt­læt­inu og biðj­ast ekki afsök­unar á neinu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina