Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Sigmundur segist kallaður öllum illum nöfnum þó hann hjálpi – Óttast tugi þúsunda flóttamanna

Sigmundur segist kallaður öllum illum nöfnum þó hann hjálpi – Óttast tugi þúsunda flóttamanna

Sigmund Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, segir í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu að ef frum­varp rík­is­stjórn­ar­innar verði sam­þykkt þá muni það setja Ísland á kortið hjá erlendum glæpa­gengjum. Hann segir að fjöldi hæl­is­um­sókna á Íslandi sé nú þegar marg­falt meiri en í en í öðrum ríkjum Norð­ur­land­anna miðað við fólks­fjölda. Hann telur að þetta muni aukast enn því „íslensk stjórn­völd hafa tekið ákvarð­anir sem aug­lýsa Ísland sem væn­legan áfanga­stað“. Að lokum seg­ist hann kall­aður öllum illum nöfnum þrátt fyrir að hann „leiti leiða til að hjálpa þeim sem þurfa mest á hjálp að halda“.

Sig­mundur segir COVID ekki hafa dregið úr umsóknum. „Athygli vekur að þrátt fyrir veru­legar ferða­tak­mark­anir vegna kór­ónu­veirunnar hefur dregið mun minna úr hæl­is­um­sóknum á Íslandi en í fyrr­nefndum nágranna­löndum. Í júlí síð­ast­liðnum, eftir að lít­il­lega var slakað á ferða­tak­mörk­unum, kom mesti fjöldi sem komið hefur til lands­ins á einum mán­uði frá því 2017 en það ár sóttu 1.096 manns um hæli hér á landi. Flestir þeirra sem leita hælis á Íslandi hafa þegar fengið hæli (alþjóð­lega vernd) ann­ars staðar, eiga ekki rétt á hæli eða áttu að sækja um í lönd­unum sem þeir fóru í gegnum á leið­inni til Íslands,“ segir Sig­mundur.

„Það er þrátt fyrir að skil­yrðin fyrir hæl­isveit­ingum hafi verið rýmkuð veru­lega á Íslandi að und­an­förnu. Það virð­ist ganga óhemju erf­ið­lega að afgreiða hinn mikla fjölda umsókna. Það er afleið­ing af ákvörð­unum stjórn­valda fremur en vinnu þeirra sem falið er að sjá um verk­efnið. Á síð­asta ári lagði Mið­flokk­ur­inn fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um hvernig bæta mætti þar úr m.a. með beit­ingu 48 tíma regl­unnar svo köll­uðu sem Norðmenn hafa beitt árum saman,“ segir Sig­mundur.

Óttast tugþúsundir

Hann segir frum­varp rík­is­stjórn­ar­innar aftur komið á dag­skrá. „Viðbrögð íslensku rík­is­stjórn­ar­innar ganga áfram þvert á það sem er að ger­ast í hinum Norð­ur­landa­ríkj­unum. Nú birt­ist aftur frum­varp félags­mála­ráð­herra og rík­is­stjórn­ar­innar um mál­efni inn­flytj­enda. Það tókst að taka málið út af dag­skrá síð­asta þings og það var hvergi að finna á þing­mála­skrá rík­is­stjórn­ar­innar við upp­haf þessa þings. Til­gangur máls­ins er sá að jafna stöðu þeirra sem leita til Íslands hvernig sem þeir koma. Hvort sem þeim er boðið hingað eftir að staða þeirra hefur verið metin í sam­ráði við flótta­manna­stofn­anir eða mæta sjálfir til lands­ins, lög­lega eða ólög­lega,“ segir Sig­mundur.

Að hans sögn mun þetta ekki fara fram hjá glæpa­gengjum. „Ef slíku fyr­ir­komu­lagi, með úthlutun hús­næðis og öðrum stuðn­ingi, yrði komið á hér á sama tíma og nágranna­löndin fara í þver­öf­uga átt væri verið að setja stóran rauðan hring um Ísland sem áfanga­stað, meðal ann­ars fyrir glæpa­gengi sem taka oft aleig­una af fólki með því að selja því vænt­ingar um betra líf á nýjum stað. Eftir að breyt­ingar voru gerðar á mót­töku­kerfi flótta­manna í Finn­landi komu þangað fljót­lega 50-60.000 flótta­menn frá til­teknu landi. Í ljós kom að straum­ur­inn hefði áður legið til Belgíu en breyt­ingin sem Finn­arnir töldu smá­vægi­lega hafði fært hann til þeirra,“ segir Sig­mundur og bætir við að ef þetta ger­ist þá verði flótta­menn jafn­vel tugir þús­unda á ári:

„Breyt­ingin sem íslensk stjórn­völd boða er hins vegar ekki smá­vægi­leg. Afleið­ingin yrði sú að þús­und umsóknir á ári gætu marg­fald­ast hratt. Ef ekki yrði stefnu­breyt­ing myndi umsóknum halda áfram að fjölga þangað til ekki yrði við neitt ráðið fyrir 350.000 manna þjóð. Reynsla nágranna­land­anna sýnir að það er ólík­legt að gripið yrði til ráð­staf­ana í tæka tíð. Á meðan mun kostn­að­ur­inn við mála­flokk­inn marg­fald­ast og geta okkar til að hjálpa þeim sem þurfa mest á hjálp að halda mun líða fyrir.“

Kallaður illum nöfnum

Síðar í grein­inni seg­ist Sig­mundur vilja fara sömu leið og Danir. „Vilji menn raun­veru­lega hjálpa flótta­fólki er mik­il­vægt að líta á stað­reyndir en falla ekki í þá gryfju að vilja sýna eigin dyggð heima fyrir með aðferðum sem oft geta reynst skað­legar. Fyrir þing­kosn­ingar í Danmörku kynntu Sós­í­alde­mókratar tíma­móta­stefnu í inn­flytj­enda­málum. Þar var leit­ast við að læra af bit­urri reynslu og tekið á flestu því sem mis­farist hefur á liðnum árum og ára­tugum. Lögð var áhersla á að Danir hefðu sjálfir stjórn á því hverjum væri boðið til lands­ins. Gerð var krafa um að þeir sem fengju hæli lög­uðu sig að sam­fé­lag­inu og rakin atriði sem voru til þess ætluð að draga úr lík­unum á því að glæpa­menn seldu fólki Danmörku sem áfang­asta,“ segir Sig­mundur.

„Danir gera sér nú grein fyrir því að sterkt vel­ferð­ar­kerfi og opin landa­mæri fari ekki saman. Við ættum að líta til reynslu Dana og ígrund­aðrar stefnu danskra jafn­að­ar­manna. Hverfum frá þeirri yfir­borðs­mennsku sem ein­kennt hefur umræðu um þessi mál. Umræðu þar sem þeir sem sem benda á stað­reyndir og leita leiða til að hjálpa þeim sem þurfa mest á hjálp að halda eru kall­aðir öllum illum nöfnum til að hindra rök­ræðu og við­halda tál­sýn. Fyrsta skrefið er að hætta að gera ástandið verra með frum­vörpum eins og því sem rík­is­stjórnin boðar nú.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við