Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Pálmar fer í stríð gegn orkudrykkjum og vill þína hjálp: „Þetta er ekki svona í öðrum löndum“

Pálmar fer í stríð gegn orkudrykkjum og vill þína hjálp: „Þetta er ekki svona í öðrum löndum“

Pálmar Ragn­ars­son fyr­ir­les­ari segir að það sé kom­inn tími á að Íslend­ingar horf­ist í augu við orku­drykkju­fíkn íslenskra ung­menna. Þetta segir hann í færslu á Facebook sem fer eins og eldur í sinu um sam­fé­lags­miðla. Nú eru 12 tímar síðan hann skrif­aði færsl­una og hafa tæp­lega þús­und manns deilt henni áfram. Því að ljóst að hug­mynd hans hefur tals­verðan hljóm­grunn. Pálmar skrifar:

„Það er kom­inn tími til að við tölum um ruglið sem er í gangi tengt orku­drykkjum hér á Íslandi. Ég skal byrja:

Íslend­ingar eru að drekka allt of mikið af orku­drykkjum. Orku­drykkir eru hafa slæm áhrif á svefn og líðan íslenskra ung­linga.

Millj­ónir eru settar í að mark­að­setja þessa drykki sem heilsu­vörur þegar nær allt bendir til þess að þeir séu að hafa skað­leg áhrif á okkur.

Okkur þykir orðið eðli­legt að geta ekki lesið, unnið eða hreyft okkur án þess að byrja á því að kaupa okkur koff­ín­drykk.

Við höldum að orku­drykkir séu að gera okkur ferskari þegar þeir eru í raun að gera okkur ÞREYTTARI.

Íslensk ung­menni eiga lík­lega heims­met í neyslu orku­drykkja. Tunnur í skólum, félags­mið­stöðvum, háskól­anum og íþrótta­húsum eru TROÐFULLAR af tómum dósum. Kannski ekki skrýtið þegar það er ekki hægt að opna sam­fé­lags­miðla án þess að sjá stans­lausar aug­lýs­ingar.

Ég sjálfur var háður orku­drykkjum og drakk 3-4 stykki flesta daga. Í dag hef ég ekki snert orku­drykki í tvö ár og verð miklu sjaldnar þreyttur og fæ miklu sjaldnar haus­verk en á þeim tíma.“

Fimm ástæður

Hann telur upp fimm ástæður fyrir því að þetta gangi ekki lengur: „Hér er það helsta sem ég hef lært frá því að fund­ar­stýra tveimur ráð­stefnum um ung­menni og orku­drykki auk þess að taka þátt í átaki Tann­lækna­fé­lags Íslands um sama efni:
𝟭. 𝗙𝗿𝗮́𝗵𝘃𝗼̈𝗿𝗳
Þegar koff­ínið byrjar að yfir­gefa lík­amann fáum við FRÁHVÖRF. Þau lýsa sér sem:
– Haus­verkur
– Þreyta
– Vanlíðan
Þetta veldur VÍTAHRING þar sem við erum alltaf þreytt nema þegar við fáum koff­ínið okkar.
𝟮. 𝗦𝘃𝗲𝗳𝗻
Helm­ingur ung­linga er ekki að sofa nóg. Það eru sterk tengsl á milli neyslu orku­drykkja og svefn­leysis hjá íslenskum ung­lingum.
Það sama á mjög lík­lega einnig við um full­orðna. Síðan drekkum við fleiri orku­drykki því við erum alltaf þreytt yfir dag­inn sem við­heldur þessu kerfi.
𝟯. 𝗣𝗲𝗻𝗶𝗻𝗴𝗮𝗿
Fólk að eyða fárán­lega miklum pen­ingum í orku­drykki. Margir fá sér 1-3 á dag. Við getum auð­veld­lega verið að eyða um 150.000 – 300.000 krónum á ári í orku­drykki án þess að gera okkur grein fyrir því.
𝟰. 𝗠𝗮𝗿𝗸𝗮𝗱𝘀𝘀𝗲𝘁𝗻𝗶𝗻𝗴
Fram­leið­endur eru að greiða áhrifa­völdum millj­ónir árlega til þess að búa til og við­halda þessu normi sem hefur tek­ist að skapa hér á Íslandi. Við verðum að átta okkur á því og ekki trúa öllu sem við sjáum.
𝟱. 𝗧𝗲𝗻𝗻𝘂𝗿
Flestir orku­drykkir éta upp gler­ung­inn í tönn­unum á okkur. Gler­ung­ur­inn er þetta hvíta í tönn­unum sem marga dreymir um. Það sem er undir honum er grárra og gegn­særra. Þegar gler­ung­ur­inn eyð­ist erum við síðan lík­legri til að fá tann­kul, tann­skemmdir og tann­brot.“

Þetta er ekki svona í öðrum löndum

Hann segir þetta orðið algjör­lega brenglað hér á landi. „Við verðum að átta okkur á því hvað normið hérna á Íslandi er orðið brenglað. Þetta er ekki svona í öðrum löndum. Það er betra úrval af orku­drykkjum á litlum bens­ín­stöðvum á Íslandi en í stór­mörk­uðum erlendis.
Við verðum líka að átta okkur á því hvað mark­aðs­öflin og pen­ingar eru að hafa mikil áhrif á ákvarð­anir okkar og hvað við sjálf erum miklar fyr­ir­myndir fyrir grunn­skóla­börnin okkar.
Er ekki kom­inn tími til að hætta að taka þátt í þessu?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina