Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Ragnari ítrekað hótað: „Ég hræðist ekki þessi öfl, þau hræðast mig”

Ragnari ítrekað hótað: „Ég hræðist ekki þessi öfl, þau hræðast mig”
Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR.

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, segir í grein sem birt­ist á Vísi að honum hafi ítrekað verið hótað und­an­farin ár fyrir að berj­ast fyrir rétt­læti á Íslandi. Hann seg­ist ekki ótt­ast þær hót­anir en ein þeirra hafi endað á borði lög­regl­unnar. Hann seg­ist standa með Degi B. Egg­erts­syni borg­ar­stjóra, líkt og sam­fé­lagið í heild sinni, en skotárás á bíl hans er nú rann­sökuð af lög­regl­unni. 

Pistill Ragnars í heild sinni

Frá því ég byrj­aði að skipta mér af póli­tík þ.e. verka­lýðs og líf­eyr­is­sjóða­póli­tík hefur ýmis­legt gengið á og rifj­ast upp í til­efni umræð­unnar í kringum skotárás á bíl Borg­ar­stjóra. Margt mis­jafnt er sagt og ritað en allt rétt­sýnt og skyn­samt fólk hlýtur að vera sam­mála um alvar­leika máls­ins og hvaða áhrif það hefur haft á líf Dags B.Egg­erts­sonar og fjöl­skyldu hans.

Ég hef svo sem ekki tölu á öllum þeim hót­unum sem ég hef fengið í gegnum tíð­ina en ein­hverjar standa þó uppúr. Það sem ég velti fyrir mér með þessum skrifum er hvar, hvort og hvernig við setjum mörk í þessum efnum.

Frá því að ég byrj­aði að skrifa um spill­ing­ar­mál og mis­bresti innan líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins árið 2007 eða tók sæti í stjórn VR árið 2009 hefur mikið gengið á. Ég taldi mig nokkuð vel und­ir­bú­inn í þessa veg­ferð, gagn­rýna það sem aðrir þorðu ekki að gagn­rýna.

Ég hafði lesið dokt­ors rit­gerð vin­konu minnar og helstu fyr­ir­myndar Herdísar Drafnar Bald­vins­dóttur um spill­ingu innan atvinnu­lífs­ins og verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar, sem koma saman í eina sæng líf­eyr­is­sjóða, umvafin frænd­hyggli og sér­hags­munum.

Ég taldi mig vera nokkuð vel und­ir­bú­inn vegna þeirra árása sem Herdís varð fyrir. Taldi mig vita hvað ég var að fara út í. Herdís var úthrópuð doktor í mis­skiln­ingi og mögu­lega hægt að full­yrða að hún hafi verið hrakin úr landi vegna skoð­ana sinna og skrifa.

Hvað fær mann til að feta í slík spor er erfitt að segja en lík­lega er það óbilandi trú á rétt­lætið.

Spill­ingin í þessu bless­aða landi er miklu meiri en mér óraði fyrir og bjóst ég við miklu. Spill­ingin er á öllum stigum sam­fé­lags­ins. Hún er all­staðar og í öllum formum.

Það kom mér alls ekk­ert á óvart að Ísland féll niður, eða upp, spill­ing­ar­list­ann og mælist nú spillt­ast ríkja Norð­ur­landa. Fjár­mála­ráð­herra segir eðli­legt að fólk sýni sölu rík­is­eigna tor­tryggni, hið sanna er að ekk­ert er óeðli­legra en það.

Örygg­is­til­finn­ingu og rétt­læt­is­kennd ógnað! Hvað er verra en það? Hvar eru mörkin?

Við vorum hópur fólks sem ákváðum að fara í hall­ar­bylt­ingu í stétt­ar­fé­lag­inu okkar VR eftir banka­hrunið. Árið var 2009 og okkur tókst það sem ekki átti að vera hægt að gera. Fella sitj­andi stjórn og breyta lögum félags­ins þannig að það yrði opið öllum félags­mönnum sem vildu bjóða sig fram til trún­að­ar­starfa. Við vorum rót­tæk og eirðum engu. Hart var tek­ist á opin­ber­lega og innan félags. Við vorum 7 til að byrja með en svo 6 eftir að ein ákvað að þiggja stóra stöðu og fara yfir í hitt liðið. Þau sem eftir stóðu misstu á end­anum öll vinn­una nema ég, þó það hafi vissu­lega verið reynt.

Rekin vegna þátt­töku sinnar í að fara á móti kerfi sem hefur ítök all­staðar. Það er ekk­ert skrýtið að fólk er almennt ekki til­búið að tjá sig opin­ber­lega um spill­ingu á Íslandi. Hverjir eiga Ísland?

Ísland er lítið annað en stór útgáfa af sjáv­ar­þorpi þar sem allir eiga allt undir þeim sem hefur eignað sér kvót­ann í þorp­inu.

Það ættu flestir að vita hvernig fólki er kerf­is­bundið refsað með úti­lokun á þátt­töku í atvinnu­líf­inu vegna skoð­ana sinna og verka. Má þar nefna löngu tíma­bæra bók Ólínu Þor­varð­ar­dóttur.

Mér og okkur hefur verið hótað. Oft og mörgum sinnum. Vin­sælasta hót­unin er einmitt sú hvort ég geri mér grein fyrir því hvaða áhrif skrif mín hafa á mögu­leg atvinnu­tæki­færi í fram­tíð­inni. Hótun um að komið verði í veg fyrir að ég geti skapað mér og fjöl­skyldu minni þokka­leg lífs­kjör með atvinnu. Svo

langt hefur þetta gengið að á einum tíma­punkti var mér hótað, skrif­lega, að ákveðin öfl muni tryggja að hvorki ég né fjöl­skylda mín, for­eldrar og börn, fái nokkurn tíma vinnu í íslensku sam­fé­lagi.

Mér hefur verið hótað mál­sóknum oftar en ég treysti mér að telja. Úr því hefur þó aldrei orðið vegna þess að ég skrifa ekki staf nema ég treysti mér til að standa fyrir máli mínu fyrir dómi. Fyrir marga eru slíkar hót­anir íþyngj­andi og duga til þögg­unar. Mér per­sónu­lega gæti ekki verið meira sama. Ég hræð­ist ekki þessi öfl, þau hræð­ast mig.

Mér hefur verið hótað líf­láti oftar en einu sinni.

Það er hins­vegar aðeins einu sinni sem við þurftum að leita til lög­reglu vegna mjög alvar­legra hót­ana þar sem veikur ein­stak­lingur fór að koma að heim­ili okkar með hand­skrif­aðar líf­láts­hót­anir. Þá var eig­in­konu minni nóg um, og mér auð­vitað líka. Við erum stór fjöl­skylda með fimm börn út og inni af heim­ili okkar og hund­inn Bowie. Lög­reglan afgreiddi málið af mik­illi fag­mennsku og ekki hafa orðið eft­ir­málar af því, ann­ars væri ég ekki að skrifa þetta.

Þetta voru hót­anir sem við drögum þá ályktun, út frá inni­haldi bréf­anna, að hafi komið út frá harðri orð­ræðu í aðdrag­anda Lífs­kjara­samn­ings­ins þar sem stór orð voru látin falla. Við vorum úthrópuð stór­hættu­legt „sturlað“ öfga­fólk sem vildi rústa sam­fé­lag­inu með kröfum okkar.

Eða er þetta allt Bús­á­hald­ar­bylt­ing­unni að kenna?

Öll erum við mann­leg og getum sagt hluti sem við sjáum eftir. Ég er þar ekki und­an­skil­inn.

En hvar liggja mörkin þegar hót­anir eru ann­ars vegar?

Ég er ekk­ert grát­klökkur yfir þessu og langt frá því að vera sam­mála stefnu borg­ar­innar í mörgum lyk­il­málum. En vil nota þessi skrif til að koma kveðju til Borg­ar­stjór­ans okkar Dags B.Egg­erts­sonar og fjöl­skyldu hans. Við fjöl­skyldan vitum hvað þið eruð að ganga í gegnum þegar öryggi fjöl­skyld­unnar er ógnað.

Sam­fé­lagið stendur með ykkur og for­dæmir þessa árás á líf ykkar og öryggi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina