Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Ein kerling étur ekki svo mikið“ – Bettý einangruð í tvo mánuði – Björgunarsveitin kom með mat

„Ein kerling étur ekki svo mikið“ – Bettý einangruð í tvo mánuði – Björgunarsveitin kom með mat
Elísabet Anna Pét­urs­dóttir bóndi á Ingj­alds­sandi á hlað­inu hjá sér í sum­ar­blíðu þegar allir vegir eru henni færir. Mynd: Guðmundur Sigurðsson

„Það var að verða lítið eftir í kot­inu enda hefur ekki fallið til ferð í tvo mán­uði. Björg­un­ar­sveitin á Flateyri hjálpar mér stundum þegar erfitt er um færð og búrið að tæm­ast“ segir Elísabet Anna Pét­urs­dóttir bóndi á Sæbóli á Ingj­alds­sandi.

Elísabet, eða Bettý eins og hún er jafnan kölluð, hefur í tvo ára­tugi verið ein­búi í þess­ari afskekktu sveit sem lík­ast til er ein­angr­uð­ust allra sveita á Íslandi þar sem hún kúrir í skjóli hárra fjalla við utan­verðan Önund­ar­fjörð.

Bettý ólst að tölu­verðu leiti upp á Sandinum og hóf þar eigin búskap fyrir lið­lega þremur ára­tugum. Árið 2001 var hún ein orðin eftir í dalnum, aflokuð á vetrum með son sinn sem nú er fluttur að heiman og sestur að handan fjarðar á Flateyri.

Dimmir langir vetur eru harðir og erf­iðir þannig að ekki verður skot­ist í búð þegar eitt­hvað vantar. „Ein kerl­ing étur ekki svo mikið að þetta sé vanda­mál. Ef mig langar í eitt­hvað fram­andi eins og græn­meti er lítið annað að gera en að setj­ast niður og bíða eftir að þörfin líði hjá. Ég er ekki alin upp við mikið græn­met­isát. Hér voru borð­aðar rófur með mat framan af vetri og svo auð­vitað kart­öflur en græn­metið var og er Ora baunir í dós.
Eini mun­að­ur­inn sem ég verð að eiga er súkkulaði. Þó það skemmist í búr­inu líður mér illa ef ég á það ekki til.“

Frelsandi englar af fjalli

Björg­un­ar­sveit­ar­menn fóru um síð­ustu helgi upp úr Val­þjófs­dal, tveimur dölum innan við Ingj­alds­sand, og þaðan út fjall­garð­inn og um Sands­heiði og niður í byggð til að færa Bettý vistir. Einn björg­un­ar­sveit­ar­mann­anna er Þór Engholm sonur Bettýar og að vonum urðu fagn­að­ar­fundir hjá þeim mæðginum.

„Þeir koma af fjall­inu eins og frelsandi englar með allar þær nauð­synjar sem mig van­hagar um. Strák­ur­inn stakk inná sig nokkrum banönum fyrir gömlu kon­una en þeir frusu á leið­inni þrátt fyrir að vera undir úlp­unni hans. En það kemur að því að ég fæ ban­ana aftur, þeir hafa svo sem aldrei verið hluti af vetr­ar­fæðu hérna.“

Erfið færð hlýtur samt að skapa mikla erf­ið­leika fyrir þessa harð­gerðu konu sem lætur sér ekki allt fyrir brjósti brenna. Þegar barist er við heið­ina í vetr­ar­byrjun eru oft svella­lög og glæfra­færð sem ekki öllum er gefið að leggja út í.

„Auðvitað er færðin á þess­ari leið oft erfið þegar enn er hægt að kom­ast um en ég þarf ekk­ert að vera á stöð­ugu útstá­elsi og er sjálfri mér nægur félags­skapur. Ég þarf að sýsla við féð og svo er alltaf eitt­hvað við­hald, nú er ég að ditta að íbúð­ar­hús­inu. Það kemur reyndar oft fyrir að það vanti þriðju hend­ina eins og þar stendur.“

Sumir koma að skoða mig

Bettý er lista­kona, hún hvílir ekki vinnulúna fingur þegar degi hallar, heldur sest við og skapar með huga og hönd fjöl­breytt hand­verk sem hún selur þeim fjölda gesta sem koma á Sandinn til að berja augum þessa afskekktu sveit hvar Bettý býr ein og unir sér í dalnum sem ól hana í bar­áttu við nátt­úru­öfl hafs og fjalla.

Bettý og Þór sonur hennar við vista­sleð­ann sem búið var að brjót­ast með eftir vest­firska fjall­garð­inum vestan Önund­ar­fjarðar

„Ég reyni að dunda við hand­verkið þegar færi gefst, það koma margir hér á sumrum til að skoða sig um. Sumir koma bara til að skoða mig held ég, segj­ast hafa heyrt af gam­alli ein­setu­konu sem gaman sé að heim­sækja.

Aðrir kaupa eitt­hvað þannig að ég verð að eiga eitt­hvað fal­legt fyrir það fólk sem tímir að draga upp budd­una.

Dagatal Veg­ar­gerð­ar­innar segir að veg­ur­inn verði opn­aður í maí og ég vona bara að það verði í byrjun maí en ekki um miðjan mánuð eða síðar. Það er alltaf ákveð­inn léttir og fögn­uður að geta kíkt á sitt fólk án þess að eiga á hættu ein­hver ævin­týr að hætti úti­legu­manna“ segir þessi ótrú­lega kona og hlær við.

Skemmtilegt verkefni

Eyþór Jóvins­son, einn björg­un­ar­sveita­manna, sagði þetta með allra skemmti­leg­ustu verk­efnum sem sveitin feng­ist við.

„Það er gaman að fara svo ferðir í góðu veðri og horfa af fjöll­unum á hina dýrð­legu feg­urð Önund­ar­fjarðar sól­bak­aðan í vetr­ar­bún­ingi. Ekkert er fal­legra og svo er auð­vitað ævin­týri að hitta Bettý og gera gagn og gleðja. Allt í einni ferð.“

Texti: Guð­mundur Sig­urðs­son.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina