Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Kári lýsir spillingu sjómanna í Grindavík – Vafasamur rekstur frægustu sjoppu landsins

Kári lýsir spillingu sjómanna í Grindavík – Vafasamur rekstur frægustu sjoppu landsins

Kári Guð­munds­son, veit­inga­maður í Grinda­vík, segir í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu að ekki sé allt með feldu í rekstri Sjó­manns­stof­unnar Vör. Sjoppan er fræg úr Stuð­manna lag­inu Sósa og salat en í því lagi er full­yrt að hún sé sú lang­besta á land­inu. Kári segir rekstur sjopp­unnar lýsandi fyrir íslenska spill­ingu.

„Þetta er lang­besta sjoppan sem ég hef komið í … sósa og salat?“ Ég rak upp stór augu 12 ára þegar Stuðmenn völsuðu inn á Sjó­manns­stof­una Vör í Grinda­vík í kvik­mynd­inni Með allt á hreinu og borð­uðu ham­borg­ara og franskar með hell­ingi af sósu, vá, lang­besta sjoppan og hún í Grinda­vík. Lengi vel var Sjó­manns­stofan Vör eini stað­ur­inn í Grinda­vík þar sem hægt var að setj­ast niður og kaupa sér mat. Nú er tím­inn allt annar og hefur mikið vatn runnið til sjávar síðan. Í Grinda­vík hefur á síð­ustu árum orðið til þó nokkuð af veit­inga­stöðum sem bjóða fínt úrval af góðum mat. […] Sam­keppni er af hinu góða, svo lengi sem jafnt sé gefið. Nú eru komnir nýir rekstr­ar­að­ilar á Sjó­manns­stof­unni Vör við Hafn­ar­götu. Er það ekki bara gott mál? Húsið hefur fengið tölu­verða yfir­haln­ingu enda fram­kvæmdir löngu tíma­bærar að sögn Einars Hannesar Harð­ar­sonar, for­manns Sjó­mannaog vél­stjóra­fé­lags Grinda­víkur, á vef Grinda­víkur, en félagið á húsið og leigir út rekst­ur­inn,“ skrifar Kári.

Hann segir vin for­manns félags­ins leigja stað­inn undir mark­aðsvirði.

„Það sem vekur athygli og jafn­vel furðu er að það er besti vinur for­manns­ins sem fékk að leigja stað­inn án þess að aðrir fengju tæki­færi á að leggja inn til­boð. Engin leið er betri en opið útboð til að tryggja hags­muni Sjómanna- og vél­stjóra­fé­lags Grinda­víkur til að fá sem mest fyrir sína eign. Þess í stað er stað­ur­inn leigður út langt undir mark­aðsvirði og með 15 til 20 millj­óna króna með­gjöf frá Sjómanna- og vél­stjóra­fé­lagi Grinda­víkur til leigu­taka, í formi yfir­haln­ingar á löngu tíma­bærum fram­kvæmdum að sögn for­manns­ins. Vert er að athuga það að fram­kvæmdir fel­ast ekki í end­ur­bótum á þaki eða veggjum fast­eign­ar­innar heldur upp­færslu á bún­aði og tækjum fyrir veit­inga­rekstur á sam­keppn­is­mark­aði,“ segir Kári.

Hann segir Sjómanna- og vél­stjóra­fé­lagið verði af tals­verðri fjár­fest­ingu vegna þessa. „Í því felst gríð­ar­leg skekkja fyrir rekstr­ar­að­ila veit­inga­húsa að nýr rekstr­ar­að­ili leigir hús­næði og tækja­búnað fyrir algjöra lág­marks fjár­hæð. Áréttað skal að leigan grípur ekki ein­ungis húsa­kost­inn heldur líka allt sem þarf til að reka veit­inga­hús; diska, potta, rán­dýr tæki og tól alls konar. Fær Sjómanna- og vél­stjóra­fé­lagið þessa fjár­fest­ingu til baka? Nei, við blasir að það eru engar líkur á því vegna þess að samið hefur verið til lang­tíma undir mark­aðsvirði,“ segir Kári.

Hann spyr hvort félags­menn viti af þessu ráða­bruggi vin­anna. „Stað­ur­inn er nú stór­glæsi­legur og opn­aður aftur eftir end­ur­bæt­urnar með því að bjóða upp á hádeg­is­verð­ar­hlað­borð og fleira í sam­keppni við aðra veit­inga­menn í Grinda­vík sem þurfa að standa skil á öllu sínu upp á tíu og fjár­magna sínar fram­kvæmdir sjálfir. Er eðli­legt að ný og end­ur­bætt sam­keppni í veit­inga­rekstri sé fjár­mögnuð af Sjómanna- og vél­stjóra­fé­lagi Grinda­víkur? Vita félags­menn af ráða­hagnum? Vita félags­menn að ráða­brugg sem þetta er í engu sam­ræmi við til­gang félags­ins í 2. gr. laga þess? Gera félags­menn sér grein fyrir því að það hefði örugg­lega feng­ist hærra verð fyrir fjár­fest­ing­una með því að bjóða fleirum en besta vini for­manns­ins einum að kjöt­kötl­unum? Mann setur hljóðan þegar fréttir ber­ast af því að Ísland fær verstu spill­ing­ar­ein­kunn af Norð­ur­löndum. „Hvar er þessi spill­ing?“ spyr maður. Er hún kannski miklu nær, bara akkúrat hérna heima í Grinda­vík?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina