Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Heiðar var tekinn frá nýstofnaðri fjölskyldu sinni: „Ljúfasti maður sem ég hef komist í kynni við“

Heiðar var tekinn frá nýstofnaðri fjölskyldu sinni: „Ljúfasti maður sem ég hef komist í kynni við“

Heiðar Árnason var nýorð­inn 39 ára þegar hann lést en hann hafði barist við krabba­mein í mjaðma­beini. Heiðar lætur eftir sig eig­in­konu og tvo ung börn, stúlku fædda 2016 og pilt fæddan 2019. Heiðar hafði metnað fyrir hljóð­tækni­fræði en þar fór saman áhuga­mál og starf. Hann flutt­ist til Liverpool á Englandi til að læra þau fræði en að námi loknu ílengd­ist hann í Bret­landi. Þar bjó hann til ævi­loka.

For­eldrar hans syrgja hann í minn­ing­ar­grein í Morg­un­blað­inu og segja það ólýs­an­lega ósann­gjarnt að hann hafi verið tekin frá nýstofn­aðri fjöl­skyldu sinni. „Það eru bara fimm ár síðan þú stofn­aðir fjöl­skyldu, eign­að­ist ynd­is­lega konu og síðar tvö börn sem því miður fengu allt of stuttan tíma með föður sínum. Okkur er ómögu­legt að skilja að nokkur sann­girni liggi þar að baki en þetta minnir okkur um leið á hve vald okkar er lítið þegar örlögin grípa í taumana. Brúð­kaups­dag­ur­inn ykkar Ouza á sól­björtum sum­ar­degi 2018 skilur eftir sig dásam­legar minn­ingar um tvær athafnir með rætur í ólíkum menn­ing­ar­heimum, fyrst að níger­ískum sið og síðan sam­kvæmt okkar hefðum,“ skrifa for­eldrar hans.

Bróðir hans segst þó þakk­látur að Heiðar hafi fengið að upp­lifa fyrstu ár föð­ur­hlut­verks­ins. Það gerir hann einnig í minn­ing­ar­grein. „Elsku Heiðar minn. Þú varst ljúfasti maður sem ég hef kom­ist í kynni við. Það er þyngra en tárum taki að hugsa til þess að þú fáir ekki að fylgj­ast með börn­unum þínum vaxa úr grasi. Ég minn­ist þín sem góðs stóra bróður, með réttum skammti af bræðra­kýt­ingi, sem fórst þínar eigin leiðir. Á sama tíma og ég er svo sorg­mæddur er ég svo þakk­látur fyrir að þú hafir fundið Uzi og fengið að upp­lifa fyrstu ár föð­ur­hlut­verks­ins sem fór þér svo vel ásamt því að ganga í hjóna­band. Þetta voru hlutir sem voru ekki endi­lega í kort­unum fyrir nokkrum árum og gerð­ust frekar hratt, sem betur fer. Þótt sam­veru­stund­irnar hafi ekki verið eins margar og maður hefði óskað eftir að þú fluttir út, þá voru þær góðar og mér þykir óend­an­lega vænt um þær,“ segir hann.

Frænka hans rifjar upp þá gleði­stund er Heiðar og Ouza Kwanashie gift­ust. „Mikið var gaman að fagna með ykkur Uzi á brúð­kaups­dag­inn. Lífið og ham­ingjan blasti við ykkur og dásam­legur ávöxtur ástar ykkar, hún Helena Rún, bræddi okkur öll. Síðar bætt­ist Lucas Árni við og ham­ingjan umvafði fjöl­skyld­una í Southport. En lífið breytt­ist snögg­lega þegar þú greind­ist með krabba­mein sem því miður reynd­ist ósigr­andi. Eftir sitja margir sárir en minn­ingin lifir um ljúfan dreng.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Svipuð atvik hafa komið upp við heimili Ragnars frá árinu 2023
Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina