Gunnar Smári Egilsson, fjölmiðlamaður og sósíalisti, hæðist að Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra á Facebook-síðu sinni.
Bjarni kom í drottningaviðtal á dögunum í Brennsluna á FM957 og grobbaði sig af því að taka 120 kíló í bekk. Gunnar bendir á að þrátt fyrir það þori Bjarni ekki að mæta Tryggva Aðalbjórnssyni, fréttamanni RÚV.
„Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsmálaráðherra var að státa sig af því í Ríkissjónvarpinu um daginn að geta tekið 120 kg. í bekk. Í kvöld kom svo fram í sama miðli að Bjarni þorði ekki mæta spurningum Tryggva Aðalbjörnssonar fréttamanns um styrki úr almannasjóðum til fyrirtækja. Myndin er af Tryggva,“ skrifar Gunnar Smári og deilir myndinni hér fyrir neðan.
































Athugasemdir