Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Sextán ára Hvergerðingur búinn að gera upp tvo jeppa – Bíður spenntur eftir bílprófinu

Sextán ára Hvergerðingur búinn að gera upp tvo jeppa – Bíður spenntur eftir bílprófinu
Öku­manns­sæti í fjalla­jeppa mátað. Sigurjón ánægður vel unnið verk og fullur til­hlökk­unar að kom­ast af stað.

„Ég keypti fyrsta bíl­inn fyrir ferm­inga­pen­ing­ana mína þegar ég var 14 ára gam­all. Pabbi hafði áður eign­ast Suzuki jeppa sem hann ætl­aði að gera upp og ég varð heill­aður af þessum litlu en mögn­uðu jeppum,“ segir Sigurjón Arek Sig­ur­jóns­son 16 ára bíla­dellu­strákur í Hvera­gerði.

Nú er hann búinn að gera upp tvo Suzuki jeppa og bíður spenntur eftir að verða 17 ára og geta notið jepp­anna sinna.

Sigurjón stoltur við Súkk­urnar sínar sem nú bíða þess að kapp­inn fái bíl­próf.

„Þegar ég var að gera upp Suzuki Jimny jepp­ann var ég svo hepp­inn að Þráinn Ævarsson í Stál­iðj­unni hérna í Hvera­gerði tók mig upp á arma sína og leyfði mér að vinna í bílnum inni hjá sér.
Hann kenndi mér að sjóða sem var eins gott því bíll­inn var tölu­vert ryðg­aður og því þurfti mikið að sjóða í hann.
Þráinn kenndi mér líka jeppa­breyt­ingar og að smíða þá hluti sem vant­aði. Hann er góður leið­bein­andi því hann kennir mér en gerir hlut­ina ekki fyrir mig, ég verð sjálfur að gera allt og á því læri ég auð­vitað mest.“

Soðið í Súkku. Sigurjón Arek að sjóða í fjalla­bíl­inn sinn. Eins og sjá má eru mörg hand­tök falin í svona breyt­ingum og upp­gerð.

Bíladella í blóðinu

Katarzyna Narloch og Sigurjón Jóhanns­son for­eldrar Sig­ur­jóns Areks segja þol­in­mæði Þráins í Stál­iðj­unni engu líka og ótrú­legt hvað hann sé búinn að kenna drengnum að gera.

Óhætt er að segja að Sigurjón hafi bíla­dell­una í blóð­inu, afi hans var bíla­kall sem breytti bílum og rútum og sama má segja um föður hans sem hefur gert upp ófáa bíla og rútur að hætti pabba síns og er nú að gera upp gamlan Jaguar bíl.

„Nú er Jimny bíll­inn til­bú­inn fyrir fjalla­ferðir, búið að breyta honum og setja á stór dekk. Ég á eftir að setja í hann loft­læs­ingar en það liggur ekk­ert á því fyrr en fyrir næsta vetur. Svo verð ég að setja í hann úrhleypi­búnað til að kom­ast um á fjöllum.
Núna er ég að setja í hann öfl­uga loft­dælu og svo er ég búinn að kaupa á hann ljós­kast­ara þannig að skamm­degið mun aldrei verða dimmt hjá mér.“ Segir þessi dug­legi bíla­smiður og hlær inni­lega.

Hér standa yfir breyt­ingar fyrir stór hjól. Það er tölu­vert hand­tak að gera götu­bíl að fjallatrukk.

Fann bíl á Fáskrúðsfirði

Í fyrra­sumar fór fjöl­skyldan hring­ferð um landið á hús­bíl sem fjöl­skyldu­fað­ir­inn hafði smíðað. Á Fáskrúðs­firði fór Sigurjón í göngu­ferð um bæinn, eftir að hann hafði verið fjar­ver­andi ansi langa stund fóru for­eldr­arnir að velta fyrir sér hvað hafði orðið um þennan 15 ára dreng þeirra.
Þremur tímum seinna kom hann til baka og til­kynnti þeim að hann hefði fundið gamlan Suzuki Fox sem hann ætl­aði að gera upp.
„Pabbi ég keypti hann, mað­ur­inn ætlar að koma með hann heim þegar hann kemur næst suður“ Það gekk eftir að Sigurjón fékk bíl­inn og hóf á ný að ryð­bæta, smíða og breyta.

„Nú gat ég ekki verið inni hjá Þráni svo að ég varð að gera þetta allt úti á plani. Það var óþægi­legt að sjóða allt úti en það var ekk­ert annað í boði og ég vildi umfram allt klára bíl­inn fyrir vet­ur­inn því hann átti líka að verða til­bú­inn áður en ég fengi bíl­próf. Það þurfti líka að ryð­bæta hann miklu meira en ég bjóst við en það er allt búið.“

Sigurjón verður 17 ára í mars og er með böggum hildar af eft­ir­vænt­ingu eins og ungra manna er háttur þegar beðið er eftir bíl­próf­inu. Hann hefur ekið æfinga­akstur og er langt kom­inn með öku­skól­ann.
Meðfram því að gera upp bíla er hann í Fjöl­braut­raskóla Suð­ur­lands á Selfossi og stundar tvö störf með skól­anum því það kostar að gera upp svona bíla.

Vantar stuttan Fox

„Ég er að sleppa ódýrt í gegnum þetta, fyrsta bíl­inn minn reif ég að lokum í vara­hluti og átti því tölu­vert af þeim. Sumt fæ ég notað, aug­lýsi bara eftir því á Netinu, það eru margir að rífa, bæta og breyta Suzuki jeppum þannig að vara­hlutir eru til um allt land.
Svo má ekki gleyma því að umboðið er ótrú­lega gott og sann­gjarnt. Þeir hafa reynst mér mjög vel og verið mér hjálp­legir. Það er ódýr­ara að fá þá til að panta vara­hluti að utan en að gera það sjálfur. Svo er margt af þessu sem ég smíða bara sjálfur.“

Suzuki Jimny bíll Sig­ur­jóns til­bú­inn í hvað sem er.

Það getur hver séð sjálfan sig í því að vera með tvo bíla á plan­inu en ekk­ert öku­leyfi, það er óhætt að segja að strák­ur­inn sé með fiðr­ing í fingrum eftir að kom­ast af stað. Til­finn­inga­tengslin við bíl­ana eru mikil enda með fádæmum að hafa smíðað sér fjalla­jeppa 15 ára gam­all og annan götu­jeppa 16 ára. Það er því að vonum að óþreyjan sé mikil.

„Ég ætla að nota Jimny jepp­ann á fjöll og mun fara eitt­hvað þegar ég verð kom­inn með próf, þó ekki væri nema bara á Lang­jökul eða eitt­hvað svo­leiðis.
Foxinn verður meiri götu­bíll, get farið á honum í skól­ann þegar ég fer ekki með Strætó“ segir þessi glaðlindi og kraft­mikli bíla­dellu­drengur í Hvera­gerði og vill vekja athygli á að hann vanti stuttan Fox í við­bót ef ein­hver á.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina