Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Kári borðaði súpu með Guði en samt óviss um tilgang lífsins: „Ég held að menn séu almennt góðir“

Kári borðaði súpu með Guði en samt óviss um tilgang lífsins: „Ég held að menn séu almennt góðir“
Kári Stef­áns­son Mynd / Hallur Karlsson

Kári Stef­áns­son, for­stjóri íslenskrar erfða­grein­ingar, hefur verið áber­andi síðan Covid-19 far­ald­ur­inn kom upp. Hann talar hér meðal ann­ars um veiruna skæðu, Íslenska erfða­grein­ingu, stjórn­mál, ljóð, kjafta­sögur, hönnun og nágrann­ann sem kom með tvær kló­settrúllur heim til hans, dauð­ann og guð.

Stór skúlp­túr í líki DNA stendur á 3. hæð í húsi Íslenskrar erfða­grein­ingar (ÍE) en skrif­stofa for­stjór­ans, Kára Sef­áns­sonar, er á þeirri hæð. Hann er á fundi og fljót­lega koma nokkrir starfs­menn út af skrif­stofu hans.

Kári býður til sætis gegnt sér við skrif­borðið. Hvít skyrta. Gríma.

Stór spritt­brúsi á skrif­borð­inu. Nokkrar skáld­sögur. Og hitt og þetta.

Öskju­hlíð blasir við út um glugg­ana. Reykja­vík­ur­flug­völlur.

Grá ský.

„Það er ýmis­legt sem bendir til þess að til­gangur alls lífs á jörðu, ekki bara manna heldur alls lífs á jörðu, sé að sjá til þess að DNA sé til.“

Covid-19-heims­far­ald­ur­inn skekur heims­byggð­ina og byrjað er að tala um veiruna skæðu og aðkomu ÍE til að berj­ast gegn henni. Nýlegar fréttir herma að Íslend­ingar muni ekki taka þátt í rann­sókn lyfja­fyr­ir­tæk­is­ins Pfizer hér á landi á bólu­efni þess gegn Covid-19.

Þetta er ósköp ein­falt. Allur heim­ur­inn er að reyna að verða sér úti um bólu­efni og við ákváðum á sínum tíma að fylgja hinum Norð­ur­lönd­unum í sam­vinnu við Evr­ópu­sam­bandið sem var að mörgu leyti alger­lega sjálf­sagt vegna þess að það var verið að semja við mjög mik­inn fjölda af lyfja­fyr­ir­tækjum og Íslend­ingar hefðu að öllum lík­indum ekki haft burði til þess að gera það vel. Nú kemur í ljós að Evr­ópu­sam­bandið var svo­lítið klaufa­legt við þetta en það þýðir hins vegar ekki að það hafi verið óskyn­sam­legt að fara þessa leið heldur bara að það vill svo til að þetta mikla skrif­finna­veldi sem Evr­ópu­sam­bandið er gerði þetta ekk­ert sér­stak­lega lip­ur­lega. Nú, svo þegar kemur að því að reyna að útvega bólu­efni ann­ars staðar þá eigum við engan sér­stakan rétt á því að fara fram fyrir aðrar þjóðir í röð­inni. Þannig að það sem við gerðum var að stinga upp á því að Pfizer gerði hér til­raun – kæmi hingað og bólu­setti stóran hóp manna til þess að sækja nýja þekk­ingu sem mætti nýt­ast öllum heim­inum. Það leit út fyrir að það yrði hægt en nú erum við með svo fá til­felli að sú til­raun sem þeir hugs­uðu sér myndi ekki ganga upp. Og það er bara eins og það er. Og ég sé enga ástæðu til að vera að agn­ú­ast út í það. Við verðum ósköp ein­fald­lega að sætta okkur við það að bíða þangað til okkar tími kemur. Það má meira að segja leiða að því rök að við eigum síður skilið að fá bólu­efni snemma heldur en aðrir af því að okkur gengur vel að takast á við Covid. Það var ekk­ert til­felli greint í fyrra­dag og ekk­ert í gær, mið­viku­dag. Þannig að við erum á býsna góðum stað þar sem okkur virð­ist hafa tek­ist að hefta þennan far­aldur með því að stjórna umferð á landa­mærum.“

Kári er spurður hvort honum finn­ist að kalla ætti yfir­menn Land­spít­ala til ábyrgðar vegna þess fjölda sem smit­að­ist á Landa­koti og lét lífið af völdum Covid-19.

„Þetta er spurn­ing sem ég vildi ekki endi­lega fá vegna þess að mér finnst þetta vera mjög flókið mál. Það er alveg ljóst að það áttu sér stað mis­tök. Þau áttu sér stað á þeirri stofnun sem stóð sig alveg ein­stak­lega vel í þessum far­aldri. Árangur Land­spít­ala­manna í að hlúa að sjúk­lingum, að sinna sjúk­lingum á gjör­gæslu­deild og svo fram­vegis er alveg ótrú­legur. Og þeir settu saman göngu­deild sem á enga sína líka í þessu sam­fé­lagi; göngu­deild sem hringdi í menn dag­lega, hlúði að mönnum, hvatti menn og hjálp­aði mönnum að kom­ast í gegnum erf­iðan sjúk­dóm. En það er alveg ljóst að það fór eitt­hvað úr lagi á Landa­koti. Það gleymd­ist að við­hafa þær sótt­varnir sem þetta ástand kall­aði á og ég held að við eigum fyrst og fremst að læra af því. Og ég er alveg hand­viss um að Land­spít­ala­menn hafi lært mikið af þessu. En það er allt annað mál hvort það eigi að setja menn í gapa­stokk á almanna­færi. Ég hef enga ref­sigleði þegar að því kemur. En ég vil helst að menn við­ur­kenni þegar þeim verða á mis­tök. Og það má kannski kalla eftir því að stjórn­endur Land­spít­al­ans séu kannski opn­ari um það að þeim hafi orðið á mis­tök. Þetta er gott fólk sem hefur þjónað þessu sam­fé­lagi alveg ótrú­lega vel í þessum far­aldri. Og þetta er nátt­úr­lega sorg­ar­at­burður fyrir okkur öll og ekki síst fyrir stjórn­endur Land­spít­al­ans. Mér finnst að við eigum að hjálpa þeim við að kom­ast yfir þessar afleið­ingar af þessu slysi í stað þess að vera að refsa þeim.“

Hafa snúið bökum saman

Kári og aðrir starfs­menn ÍE hafa gert mikið fyrir íslenska þjóð í far­aldr­inum. Sumum finnst það fólk ekki hafa fengið nógu miklar þakkir frá hinu opin­bera.

„Þetta er flókið mál. Við erum með hið opin­bera kerfi þar sem er fullt af fólki sem lítur svo á að þau verk­efni sem við höfum verið að vinna hefðu átt að vera á þeirra höndum og það er í sjálfu sér ekk­ert út á það að setja. Við hjá ÍE vorum hins vegar betur í stakk búin til að sinna þessum verk­efnum. Við vorum með meira af tækjum, erum með fleira fólk og með betra hús­næði og miklu betur til þess fallin að greina gögnin sem koma út úr þessu og svo fram­vegis. Þannig að við vorum að fara yfir á umráða­svið ann­arra vegna þess að það var þörf á því. En ég skil að það hafi pirrað þá sem á venju­legum tímum sjá um þessi verk­efni.

En svo end­aði það á því að þetta var gert eins og við vildum. Það var farið að okkar ráðum.

Síðan er þetta ekki spurn­ing um þakk­læti. Þetta er bara spurn­ing um að vinna sína vinnu og ljúka þessu og sjá til þess að sam­fé­lagið geti notið þessa eins mikið og hægt er. Við höfum lent í því að eft­ir­lits­stofn­anir eins og Vís­inda­siða­nefnd og Per­sónu­vernd hafa verið að agn­ú­ast út í okkur í miðju þessu kófi. Það er líka skilj­an­legt að mörgu leyti vegna þess að að þegar svona far­sótt kemur er hætta á að menn fari að beygja reglur vegna þess að það er svo mikið sem gengur á og mönnum finnst svo mikið í hættu og þá verða nátt­úr­lega eft­ir­lits­stofn­anir að standa upp og segja hingað og ekki lengra. Og auð­vitað hefur það pirrað okkur og gert líf okkar svo­lítið erfitt á köflum en það er eðli þess­ara stofn­ana eins og Vís­inda­siða­nefndar og Per­sónu­verndar að fylgj­ast með því sem er að ger­ast og þegar svona far­aldur geysar þá fá þessar stofn­anir ekki mik­inn stuðn­ing í sam­fé­lag­inu. Fólk lítur svo á að það sé að trufla nauð­syn­lega vinnu. Og að vissu leyti þá eru þær að gera það en þær eru að gera það til þess að ná þessu jafn­vægi sem verður að vera í sam­fé­lag­inu. En sam­fé­lagið almennt hefur verið ósköp þátt­k­látt fyrir það sem við höfum gert. Við getum ekki kvartað undan því. Og þegar ég horfi til baka til þess­ara síð­ustu 11 mán­aða þá finnst mér almennt séð þetta hafa gengið gíf­ur­lega vel. Alls konar aðilar í sam­fé­lag­inu hafa snúið bökum saman og unnið að heilum hug saman og tek­ist að ná utan um þetta að vissu leyti betur heldur en nokkur staðar ann­ars staðar í þessum heimi. Það er að segja eftir að mönnum varð ljóst að landa­mærin væru sá staður sem skipti mestu máli þá hefur það gengið gíf­ur­lega vel.“

Fóru að okkar ráðum

Segja má að Kári sé nokk­urs konar þjóð­hetja í huga sumra Íslend­inga vegna þess hve ÍE hefur gert fyrir þjóð­ina í far­aldr­inum. Hann segir að þetta hafi lítil áhrif á sig.

„Ég hef bara mætt í mína vinnu ásamt því fólki hér inn­an­húss sem hefur raun­veru­lega séð um alla þessa vinnu. Hér inn­an­húss er fólk eins og Jóna Sæm, sem var alltaf til staðar til að reka rann­sókna­stofn­una sem sér um að skima, Ásgeir Sig­urðs­son, sem hefur verið hér nótt sem nýtan dag, Páll Melsteð, sem hefur séð um að greina rað­grein­ing­ar­gögnin frá veirunni, Ólafur Magn­ús­son, sem sér um þessar rað­grein­ingar, og Daníel Guð­bjarts­son, sem er okkar lókal séní sem hefur verið að vinna með grein­ingar á gögnum, og Unnur Þor­steins sem passar okkur öll. Það er heill her af mönnum hér inn­an­húss sem hefur verið að sinna þessu. Það var bara ósköp eðli­legt að gera eitt­hvað ef menn hefðu eitt­hvað fram að færa og það höfum við gert. Og ég hef ekki orðið var við það að nokkur stofnun í íslensku sam­fé­lagi hafi haldið að sér höndum. Ég held að allir hafi gert sitt besta.“

Athygli vakti í fyrra þegar Kári sagði að ÍE myndi ekki skima fleiri sýni en svo tók hann orð sín aftur og ÍE hélt áfram.

„Maður verður aldrei var við að fólk gretti sig yfir því að ein­hver hafi farið í með­ferð. Mér finnst það vera flott.“

„Það var ýmis­legt í skipu­lag­inu á þessu sem var torskilj­an­legt á því augna­bliki. Hið opin­bera setti til dæmis saman alls konar nefndir til þess að skipu­leggja skimun og aðgerðir á landa­mærum og við vorum ekki fengin til þess að taka þátt í því þótt þetta lenti svo end­an­lega í okkar fangi. Og þetta pirraði mig á tíma­bili þannig að ég var ekki viss um að það væri æski­legt að við héldum áfram vegna þess að við vildum gera þetta öðru­vísi. En svo end­aði það á því að þetta var gert eins og við vildum. Það var farið að okkar ráðum. Það má ekki gleyma því að þetta var í miðjum hvirf­il­bylnum og ekk­ert óeðli­legt að menn rækjust pínu­lítið á. En á end­anum þá unnu allir á frið­saman og mjög árang­urs­ríkan hátt. Það er ekk­ert óeðli­legt að það þyrlist upp svo­lítið ryk þegar mikið er að ger­ast.“

Kári seg­ist telja að öll bólu­efnin sem rætt hefur verið um að Íslend­ingar verði bólu­settir með séu mjög góð og hann seg­ist hafa fulla trú á því að bólu­setn­ing komi til með að kveða þessa pest í kút­inn.

Hann segir að það sé lík­legt að það komi í fram­tíð­inni aðrar veirur sem muni valda svip­uðum usla. „Það eru um 100 ár síðan svona slæmur far­aldur kom síð­ast upp og ég sé enga ástæðu til að ætla að önnur veira komi aftur fyrr en eftir svip­aðan tíma. En sá mögu­leiki er fyrir hendi. Við höfum hins vegar lært tölu­vert mikið af þess­ari veiru og hvernig á að takast á við hana. Það hefur verið sýnt fram á að það er hægt að hemja hana með því að hemja hegðun fólks og það sem er kannski svo­lítið inter­essant er að okkur, þessi þjóð sem er yfir­leitt dálítið erfið og dálítið stjórn­lítil, hefur gengið vel að takast á við þessa veiru. Þegar á reynir þá virð­umst við geta snúið bökum saman og unnið til­tölu­lega vel úr svona vanda.“

Vísindasandkassi

Starf­semi ÍE er ævin­týra­leg eða eins og segir á heima­síðu fyr­ir­tæk­is­ins: „Með rann­sóknum á erfða­efni Íslend­inga leitar Íslensk erfða­grein­ing orsaka margra alvar­leg­ustu sjúk­dóma sem hrjá mann­kynið, svo sem krabba­meina, hjarta­sjúk­dóma og syk­ur­sýki. Þegar erfða­vísar finn­ast, sem tengj­ast sjúk­dómum, opn­ast mögu­leikar til að bæta líf og heilsu. Við rann­sökum fleira en sjúk­dóma. Erfða­mengi manns­ins getur varpað ljósi á ýmsar ráð­gátur lífs­ins. Hvernig hugsum við? Hvernig eld­umst við? Hvaðan komum við? Við þessum spurn­ingum og fleiri leitar Íslensk erfða­grein­ing svara. Þannig öflum við þekk­ingar sem getur skilað næstu kyn­slóðum betra lífi.“

Ég verð ekki mikið var við það sem fólk segir um mig. En það sem ég hef séð úr fjar­lægð af notkun sam­fé­lags­miðla og í athuga­semda­kerfum fjöl­miðla þá finnst mér nú að menn hagi sér stundum óheft.

Kári segir að vinnan tengd Covid-19 sé ekki partur af dag­vinnu ÍE. „Hlutverk okkar er að vinna að rann­sóknum á alls konar sjúk­dómum af öllum gerðum og stærðum. Og þessi pest er að vísu inter­essant og við höfum eytt tölu­verðum tíma í að reyna að sækja nýja þekk­ingu um hana en við höfum svo mörg önnur verk­efni sem í sjálfu sér eru brýnni fyrir okkur en ekki eins brýn fyrir okkar sam­fé­lag þannig að við höfum eytt tölu­verðri orku á síð­ustu 11 mán­uðum í að vinna að því að sækja nýja þekk­ingu um þessa veiru.“

Kári er spurður út í nýj­ustu verk­efnin og vinnu­dag­inn.

„Það fer dálítið mik­ill tími í að rýna í vís­inda­greinar sem er verið að semja hér í hús­inu. Það fer dálítið mik­ill tími í að ræða verk­efni sem við erum að vinna. Það fer dálítið mik­ill tími þessa dag­ana í Zoom-fundi þar sem maður er með fólki út um allan heim. Áður en þú komst sat ég fund með hópi héðan úr fyr­ir­tæk­inu sem var að lýsa fyrir mér hvernig þau eru að rýna í raða nit­ur­basa í erfða­mengi manns­ins með alls konar nýstár­legum aðferðum; leita að mynstrum í erfða­meng­ingu sem er mjög spenn­andi.

Ég sat í gær fund með fólki sem er að skoða hvernig hugs­anir – sú aðferð sem við notum við að hugsa hefur áhrif á sam­setn­ingu lík­am­ans sem mér finnst alveg feiki­lega spenn­andi. Heilinn er stjórn­tækið og það sem þau eru að sýna fram á er að starf­semi stjórn­tæk­is­ins, meira að segja æðsta verk­efni stjórn­tæk­is­ins sem er hugsun manns­ins, hefur áhrif á svo margt meðal ann­ars hversu þungir menn eru, hvort menn verða of feitir eða ekki, hvort menn fái syk­ur­sýki, hjarta­bilun, lifr­ar­skemmdir og svo fram­vegis. Það markast að hluta til af því hvernig við hugsum. Þannig að það er eins gott að vanda sig við að hugsa bara fal­legar, tærar og hreinar hugs­anir.

„Þannig að ég bý við ótrú­legan lúxus að fá að leika mér í þessum vís­inda­sand­kassa fram á gam­als aldur.“

Það er ótrú­lega margt sem er að ger­ast hérna inn­an­húss sem mér finnst vera spenn­andi. Hér eru menn í dag að reyna að skilja frumu­bundið ónæmi gegn Covid-19, menn eru að rýna í lang­tíma afleið­ingar af Covid-19, menn eru að skoða alls konar sjúk­dóma í mið­tauga­kerfi, geð­sjúk­dóma og Alzheimarsjúkdóminn svo dæmi séu nefnd. Menn eru að skoða alls konar horn á því hvernig hjarta­á­föll verða til. Og þetta er í hönd­unum á hæfi­leik­a­ríku fólki sem kemur og segir manni svo skemmti­legar sögur. Þannig að ég bý við ótrú­legan lúxus að fá að leika mér í þessum vís­inda­sand­kassa fram á gam­als aldur.“

Hræðilega algengur sjúkdómur

Kári lék sér í sand­kassa á æsku­ár­unum í Reykja­vík en hann fædd­ist vorið 1949 en það var árið sem Íslend­ingar gengu í NATO og sama ár fædd­ust til dæmis Meryl Streep, Billy Joel, Lionel Richie og Bruce Springsteen. Hann er sonur Sól­veigar Hall­dórs­dóttur og Stefáns Jóns­sonar, frétta­manns, alþing­is­manns og rit­höf­undar, sem skrif­aði nokkrar bækur svo sem „Að breyta fjalli“. Kári er næstyngstur fjög­urra bræðra í fimm systk­ina hópi.

Hann ólst upp í Norð­ur­mýr­inni og síðar Vest­ur­bænum og gekk í Haga­skóla. Leiðin lá síðan í Mennta­skól­ann í Reykja­vík og svo í lækn­is­fræði við Háskóla Íslands.

„Ég ætl­aði aldrei að verða læknir. Það var slys. Það var Stefán Karlsson, vinur minn og bekkj­ar­fé­lagi í mennta­kóla, sem var einn morg­un­inn á leið upp í háskóla til að skrá sig í lækna­deild­ina og stakk upp á því að ég kæmi með honum. Og ég gerði það.“ Kári skráði sig líka í lækn­is­fræði. „Það var aldrei ætl­unin. Ég hafði enga löngun til að fara í lækn­is­fræði. Ég held að mig hafi langað til þess að verða rit­höf­undur frekar en eitt­hvað annað. En ég end­aði í lækna­deild, lauk henni og er búinn að vera að ves­en­ast í þessu síðan.“

Kári fór síðan í sér­nám í tauga­lækn­ingum, tauga­meina­fræði, í Chicago en hann vann síðar hjá lækna­deild­inni. Var pró­fessor þar. Hann varð síðan pró­fessor við Harvard-háskóla og yfir­læknir tauga­meina­fræði við sjúkra­hús í Boston. Svo flutti hann til Íslands eftir rúm­lega 20 ára búsetu vestra og stofn­aði Íslenska erfða­grein­ingu sem núna er komin í hendur erlendra eig­enda.

Ég held því fram að bankar í íslensku sam­fé­lagi eigi að vera í eigu rík­is­ins. Einu fyr­ir­tækin á Íslandi sem eiga að vera í eigu rík­is­ins.

Ævin­týrið í vís­inda­sand­kass­anum heldur áfram og bolt­inn rúllar á fleygi­ferð.

Verk­efnin eru mörg eins og þegar hefur komið fram og flestir vita. Margur vill fá sér í glas og hefur ÍE meðal ann­ars rann­sakað erfða­fræði fíknar í mörg ár og hefur komið í ljós að alkó­hól­ismi er mjög arf­gengur sjúk­dómur.

„Hann erf­ist sterk­lega. Allir algengir sjúk­dómar manns­ins hafa bæði erfða- og umhverf­is­þætti í áhætt­unni. Alkó­hól­ismi eða áfeng­is­sýki er einn af sjúk­dómum þar sem maður sér hvort tveggja mjög sterk­lega. Þetta er sjúk­dómur sem er algeng­asta dán­ar­or­sök fólks á milli 15 ára og fer­tugs á Íslandi; það er að segja fíkni­sjúk­dómar og þá set ég saman í eina og sömu föt­una fíkn í hvaða efni sem er sem breytir með­vit­und­ar­á­standi hvort sem það er alkó­hól, amfetamín, kókaín eða mor­fín. Þetta eru afskap­lega erf­iðir og hættu­legir sjúk­dómar. Það er skringi­legt að heil­brigð­is­kerfi okkar hefur að vissu leyti hundsað þessa sjúk­dóma. Allt í einu er raun­veru­lega öll sú með­ferð sem máli skiptir á þessum sjúk­dómum komin í hendur einka­að­ila – SÁÁ. SÁÁ eru góð sam­tök sem hafa hlúð að fólki með fíkni­vanda, alveg ótrú­lega vel. Þórarinn Tyrf­ings­son lyfti grettistaki. Hann hefur verið hetja í þess­ari bar­áttu. Hann raun­veru­lega bjó til þetta kerfi sem SÁÁ hefur verið að nota til þess að hlúa að sjúk­lingum með áfeng­is­sýki og önnur fíkni­vanda­mál og nú er það í höndum Val­gerðar Rún­ars­dóttur sem rekur það af bæði miklum mynd­ar­skap og mýkt. Það er gaman að sjá til dæmis stofnun eins og Vog þró­ast þegar það hefur flust úr hönd­unum á þess­ari miklu hetju sem Þórarinn var yfir í hend­urnar á mann­eskju sem nálg­ast þetta svo­lítið öðru­vísi. Það er ósköp eðli­legt að það eigi sér stað breyt­ingar. En þetta er mik­il­vægur sjúk­dóma­flokkur en við höfum öll til­hneig­ingu til þess að líta á fíkni­vanda­mál sem hegð­un­ar­vanda en ekki sjúk­dóm. En þetta er alla­vega hegð­un­ar­vandi sem leiðir til dauða hjá allt of mörgum í okkar sam­fé­lagi. Og hefur síðan áhrif á allt nærum­hverfi þeirra sem lenda í þessu.“

Kári segir að sér finn­ist alkó­hól­ismi vera hræði­lega algengur sjúk­dómur á Íslandi. „Mér finnst Íslend­ingar vera opn­ari fyrir því að menn fari í með­ferð heldur en flestar aðrar þjóðir sem ég hef kynnst. Mér finnst það ekki lengur vera svartur blettur á mann­orði ein­stak­lings sem fer í með­ferð og það finnst mér vera ansi mikil fram­för. Maður verður aldrei var við að fólk gretti sig yfir því að ein­hver hafi farið í með­ferð. Mér finnst það vera flott. Það er ýmis­legt við þessa þjóð sem er flott.“

Bankar séu í eigu ríkisins

Kári hefur lengi verið áber­andi í íslensku við­skipta­lífi og umræðu eins og stjórn­mála­menn sem stjórna land­inu. Hann stjórnar fyr­ir­tæki. Stór­fyr­ir­tæki. Kári er spurður út í stjórn­mál og þjóð­mál.

„Ég hef aldrei aðhyllst stjórn­mála­flokk. Mér finnst stjórn­mála­flokkum ganga afskap­lega illa að fram­fylgja stefnum sínum þegar þeir eru komnir í rík­is­stjórn. Þeir eiga auð­velt með að orða stefnu sína þegar þeir eru í stjórn­ar­and­stöðu en þegar þeir eru komnir í rík­is­stjórn þá reyn­ist þeim erfitt að halda í þá stefnu sem þeir segj­ast hafa. Hins vegar er fullt af fínu fólki í hinum og þessum stjórn­mála­flokkum sem mér þykir afskap­lega vænt um. Og vænt­um­þykja mín fylgir engum sér­stökum flokkslínum.“

Efna­hags­á­stand og bankar koma til tals.

„Mér finnst stjórn­mála­flokkum ganga afskap­lega illa að fram­fylgja stefnum sínum þegar þeir eru komnir í rík­is­stjórn.“

„Mér finnst að ríkið eigi fyrst og fremst að hlúa að þeim sem minna mega sín og eigi að sjá til þess að hér sé gott skóla­kerfi sem geri allt sem hægt er til þess að veita öllum börnum sömu tæki­færi. Mér finnst að við eigum að vera með sterkt heil­brigð­is­kerfi sem stand­ist sam­jöfnuð við heil­brigð­is­kerfi þess­ara þjóða sem hafa það best. Mér finnst að við eigum að búa til þannig kerfi að ungt fólk geti komið yfir sig hús­næði og við eigum ekki að sætta okkur við það að fólk svelti á Íslandi. Að því slepptu þá finnst mér að einka­fram­takið eigi að búa til verð­mæti í íslensku sam­fé­lagi. Ég held að það sé ekki skyn­sam­legt að byggja á því að ríkið reki atvinnu­fyr­ir­tæki. Ég held því fram að bankar í íslensku sam­fé­lagi eigi að vera í eigu rík­is­ins. Einu fyr­ir­tækin á Íslandi sem eiga að vera í eigu rík­is­ins. Og ástæðan fyrir því að ég held að það sé rétt er sú að ef áhætta sem bankar taka í rekstri sínum gengur ekki upp þá lendir þetta allt í fang­inu á fólk­inu í land­inu eins og við höfum séð. Þess utan eru bankar góð hag­stjórn­ar­tæki. Það er að segja að þegar lítið er um fé og lítið um fram­kvæmdir eiga bankar að lána eins mikið og hægt er. En það gera ekki bankar í einka­eign vegna þess að á slíkum tímum fá þeir mjög lítið fyrir sinn snúð þegar þeir eru að lána. Þegar það er mikil þensla í sam­fé­lag­inu þá eiga bankar að halda að sér höndum til þess að koma í veg fyrir þensl­una en það gera þeir ekki vegna þess að þá fá þeir mikið fyrir sinn snúð þegar þeir lána. Þannig að ég held að það sé mik­il­vægt að hags­munir banka og hags­munir sam­fé­lags­ins séu algjör­lega sam­síða.“

Ljóðskáldin

Kára hefur gengið vel í starfi og kvartar ekki yfir blank­heitum. Hann er spurður hvort pen­ingar og ham­ingja fari saman.

„Það held ég ekki. Ég held að það sé mjög ólík­legt. Ég held að það sem skipti mann mestu máli sé að börn­unum manns líði vel og að maður sé í svo­lít­illi sátt við sjálfan sig. Þetta er mjög ein­föld lýs­ing á því sem ég held að skipti máli – að börn­unum og svo barna­börnum manns líði vel og síðan að manni líði vel í sjálfum sér og sé í nokk­urri sátt. Hafi góða bók að lesa. Það skiptir máli. Án þess að hafa góða bók að lesa þá held ég að það sé erfitt að láta sér líða vel.“

Kár er spurður hvaða bók hann sé að lesa þessa dag­ana.

„Ég er að lesa bók sem fjallar um eðl­is­fræði og er eftir banda­rískan Nóbels­verð­launa­hafa í eðl­is­fræði, Frank Wilczek að nafni, sem er mjög lagið að lýsa fræði­grein sinni fyrir þeim sem eru leik­menn. Annars les ég að mestu leyti bara skjáld­sögur og ljóð.“

Kári er spurður um upp­á­halds­ljóðið.

„Ég á upp­á­halds­ljóð­skáld. Mér finnst banda­rískt ljóð­skáld sem hét Franz Wright hafa verið besta ljóð­skáld allra tíma. Annað banda­rískt ljóð­skáld, Mary Jane Oliver, samdi fal­leg­ustu ljóð í heimi. Þannig að jú, jú, ég á fullt af upp­á­halds­höf­undum. Svo skiptir maður um upp­á­halds­höf­unda eins og maður skiptir um sokka. Það er svo mikið af góðum rit­höf­undum. Það er svo mikið af góðum ljóð­skáldum í heim­inum. Þetta er heimur sneisa­fullur af hæfi­leik­a­ríku fólki.“

Kári er spurður hvaða íslenska ljóð komi upp í hug­ann.

„Þú spyrð mig um íslenskt ljóð.“ Hann hugsar sig um. „Mér finnst svo margt af því sem Jón Helgason skildi eftir sig vera alveg stór­kost­legt. Fal­leg­asta erindi í nokkru ljóði í Íslands­sög­unni er úr ljóð­inu Á Rauðs­gili eftir Jón Helgason.

Enn ég um Fellafló­ann geng,

finn eins og titr­ing í gömlum streng,

hug­ann grunar hjá grass­ins rót

gam­alt spor eftir lít­inn fót.

Hann var alveg ævin­týra­lega gott ljóð­skáld sem hálf­part­inn gaf frat í eigin hæfi­leika og gaf ekki út nema eina ljóða­bók.

Svo finnst mér Sigfús Daðason vera mjög gott ljóð­skáld. Mér finnst Ingunn Snædal vera gott ljóð­skáld. Mér finnst hún vera ofboðs­lega flott. Og það er inter­essant að það er mjög mikið af góðum ljóð­skáldum á Íslandi í dag og næstum öll eru konur. Ég var að lesa nýja bók eftir Þórdísi Gísla­dóttur sem er góð bók. Mér finnst Jón Kalmann vera rit­höf­undur okkar tíma á Íslandi. Það er tíska hjá menn­ing­ar­el­ít­unni að vera í ein­hverri fílu út í Jón. Hann er feiki­lega góður rit­höf­undur. Mér finnst Sölvi Björn Sig­urðs­son vera góður rit­höf­undur og mér finnst Bergv­seinn Birg­is­son vera mjög góður rit­höf­undur; Svar Við Bréfi Helgu er algjört rot­högg. Það er fullt af fólki sem kann að segja sögur og skemmta manni.“

Kári hefur gaman af góðri tón­list. „Við eigum mikið af góðu tón­list­ar­fólki og það er mikil breyt­ing frá því ég var ungur maður. Við erum allt í einu orðið sam­fé­lag sem er sneisa­fullt af tón­list sem við áttum varla til. Við eigum einn albesta píanó­leik­ara heims í Víkingi Heiðari.

Þar sem enginn þekkir mann

„Ég held að það sem skipti mann mestu máli sé að börn­unum manns líði vel og að maður sé í svo­lít­illi sátt við sjálfan sig.“

Jú, kjafta­sögur fylgja stjórn­mála­mönnum og áber­andi mönnum eins og Kára Stef­áns­syni. Hann segir að það sé mis­jafnt hvaða áhrif kjafta­sögur hafi á sig en að það sé vont þegar þær hafa áhrif á fjöl­skyldu hans. „Ég heyri ekk­ert mikið af þessum kjafta­sögum. Fólk er að skemmta sér. Og það má það. Og línan er þunn á milli heið­ar­legrar, eðli­legrar sögu sem er svo­lítið skreytt til þess að gera hana betri og svo hins vegar leið­in­legrar kjafta­sögu.

Ég er ósköp lítið innan um fólk. Ég kem í vinn­una og er hér í mis­langan tíma en gjarnan tölu­vert langan tíma. Svo fer ég heim til mín og les og hreyfi mig svo­lítið. Það eina sem ég geri raun­veru­lega fyrir utan þetta er að ég fer á sin­fón­íu­tón­leika eins oft og ég get. Ég verð ekki mikið var við það sem fólk segir um mig. En það sem ég hef séð úr fjar­lægð af notkun sam­fé­lags­miðla og í athuga­semda­kerfum fjöl­miðla þá finnst mér nú að menn hagi sér stundum óheft. Menn haga sér eins og eng­inn þekki þá þar,“ segir Kári og fer með vísu­korn:

Þar sem eng­inn þekkir mann

þar er gott að vera

því að allan and­skot­ann

er þar hægt að gera.

Þetta orti Þor­steinn Erlings­son. Jón Þor­kels­son botn­aði.

„Ég held að menn séu almennt góðir. Og ég held að menn hafi þá til­finn­ingu að það snerti engan mikið það sem þeir segja á þessum stað,“ segir Kári og á við netið. „Ég hef enga trú á því að menn séu að hrauna yfir aðra í þeim til­gangi að meiða þá. Ég held að það sé ekki hvötin. Ég held að menn átti sig raun­veru­lega ekki á því hvað það er sem þeir eru að gera af því að þeir sjá ekki mann­inn. Þeir raun­veru­lega heyra ekki í honum. Þetta er gert úti í horni. Svo er það líka að það er svo stutt í þetta. Það er að segja; menn sitja heima hjá sér síðla kvölds kannski kenndir og fara að tjá sig á þessum sam­fé­lags­miðlum og athuga­semda­kerfum án þess að þeir raun­veru­lega vilji það. Þetta er óheppi­legt en ég lít ekki á þetta sem stóran glæp.“

Að hafa fallegt í kringum sig

Bygg­ingin sem hýsir ÍE er ein­stak­lega glæsi­leg og hana ein­kennir stíl­hrein nútíma­hönnun. „Mér finnst þetta vera gott hús, segir Kári en Ingi­mundur Sveins­son arki­tekt á heið­ur­inn af hönn­un­inni.

Kári og eig­in­kona hans búa svo í glæsi­legu og nútíma­legu ein­býl­is­húsi sem Hlédís Sveins­dóttir arki­tekt hann­aði og hefur það fengið alþjóð­leg hönn­un­ar­verð­laun. „Það er fal­lega hannað hús. Það er voða gaman af því. Það er er dálítið skringi­legt.“

Kári er spurður hvaða máli það skipti fyrir hann að vera í fal­legu umhverfi.

„Ekkert meira heldur en flestum öðrum. Auðvitað vill maður hafa fal­legt í kringum sig ef það er hægt. Ég bý kannski í húsi sem er dálítið; hvernig get ég orðað það: Það er kannski of mikið í það látið. Það er dálítið stórt og að vissu leyti íburð­ar­mikið og kannski felst í því dálítið smekk­leysi að leyfa sér að búa í þannig húsi á meðan fullt af fólki á Íslandi á ekki raun­veru­lega í hús að venda.“

Kári er spurður hvort hann fái jafn­vel sam­visku­bit vegna þess.

„Já, kannski ég sé með svo­lítið sam­visku­bit yfir því.“

Kári á góðan nágranna.

„Nágranni minn hringdi dyra­bjöll­unni um síð­ustu helgi og stóð fyrir utan með tvær kló­settrúllur í hend­inni. Ég spurði hvern djöf­ul­inn hann væri að gera þarna. Hann spurði hvort ég hafi ekki verið að biðja um kló­settrúll­urnar en ég sagði „nei“ og lok­aði dyr­unum og skildi ekk­ert í þessu fyrr en kunn­ingi minn, Karl Örvarson sem er góð eft­ir­herma, hringdi í mig í gær­kvöldi og sagði mér að hann hafi hringt í nágranna minn. Hann þótt­ist vera ég og sagði honum að mig vant­aði kló­sett­pappír. Þetta finnst mér allt í lagi. Menn mega skemmta sér. Og menn mega fara yfir alls konar línur í þeim til­gangi.“

Glæsi­legur grænn og þekktur „hönn­un­ar­sófi“ er á rúm­róðri skrif­stofu Kára sem er spurður hvort hann hafi áhuga á hönnun.

„Nei, engan sér­stakan. Ég á bróður sem er arki­tekt, Hjör­leifur heitir hann, og hann er mik­ill smekk­maður og flinkur á sínu sviði. Ég er alveg viss um að hann myndi hlæja að mér ef ég segð­ist hafa áhuga á hönnun.“ Kári hlær. „Og ég vil helst ekki að Hjör­leifur bróðir minn hlæi að mér. Nei, ég hef engan sér­stakan áhuga á hönnun.“

„Ég heyri ekk­ert mikið af þessum kjafta­sögum. Fólk er að skemmta sér. Og það má það.“

Gjörsamlega skaplaus

ÍE reynir í rann­sóknum sínum að skilja mann­inn; að reyna að búa til skiln­ing á því hvernig við erum sett saman og hvernig hinir ýmsu eig­in­leikar okkar eru í sam­spili hver við annan eins og Kári orðar það.

Vís­inda­mað­ur­inn er spurður um hug­mynd hans að til­gang­inum með þessu lífi. „Það er ekki lítið spurt. Ég hef ekki hug­mynd um það. Það er ýmis­legt sem bendir til þess að til­gangur alls lífs á jörðu, ekki bara manna heldur alls lífs á jörðu, sé að sjá til þess að DNA sé til. Að mark­miðið sé að sjá til þess að það sé eitt­hvað form af DNA til á jörð­unni. Og það er ekk­ert róm­an­tískur til­gangur. En ég held að fyrir okkur sem ein­sak­linga sé bara mark­miðið að láta okkur líða vel á eins mörgum augna­blikum og hægt er.“

Dauðinn tekur við af þessu lífi sem vís­inda­mennnirnir eru að reyna að skilja sam­setn­ing­una á.

Kári er spurður hvað dauð­inn sé í huga hans.

„Það er bara lok á lífi. Það er enda­lok á ein­stak­lingi. Og það er ekk­ert ljótt við það.“

Hann er spurður hvort hann hræð­ist dauð­ann.

„Eins og stendur þá finnst mér dauð­inn ekki vera æski­legur. Ég vil ekk­ert fara lengra en það. Akkúrat á þessu augna­bliki þá finnst mér hann ekki vera æski­legur.“

Hann hefur ekki trú á lífi eftir dauð­ann. Lífi að handan.

„Það er ekk­ert sem ég kann, skil eða hef séð sem bendir til þess að það sé eitt­hvað í lok þessa lífs. Við höldum áfram að vera til, end­ur­holdgumst eða end­ur­fæð­umst í börn­unum okkar. Og það er alveg nóg. Börnin okkar eru með helm­ing erfða­mengis okkar, barna­börnin með 1/4 og svo fram­vegis. Og ég held að við eigum bara að sætta okkur við það.“

Kári er spurður hvað fái hann helst til þess að líða vel.

„Að lesa góða bók. Að hlusta á góða tón­list. Að sofa vel. Og vera innan um afkvæmin mín.“

Að sofa vel. Hann er spurður hvað hann dreymdi síð­ustu nótt.

„Mig dreymdi ekki nokkurn skap­aðan hlut í nótt. Ég er alveg viss um það.“

Hvað með eft­ir­minni­legan draum?

„Mig dreymdi ein­hvern tím­ann ekki alls fyrir löngu að ég sat og var að borða hádeg­is­mat með guði almátt­ugum. Við vorum að borða súpu. Svo allt í einu kom fluga og sett­ist ofan í súp­una hjá guði og við það vakn­aði ég með eft­ir­far­andi vísu til­búna í koll­inum:

Hvað er að sjá til þín guð minn góður

guð með þitt brenglaða sinni

á þínu ráði er ei lít­ill ljóður

það liggur fluga í súp­unni þinni.

Það er sá draumur sem ég man eftir helst. Þetta er fer­skeytla. Ég vakn­aði með hana á vör­unum. Annars man ég ekki mikið drauma.“

Vís­inda­mað­ur­inn er spurður hvort hann trúi á guð.

„Það fer eftir því hvernig þú skil­greinir guð.“ Þögn. „Ég held því fram að við eigum að reyna að leggja okkur fram við að vera góð hvert við annað og við það umhverfi sem við búum í. Það má segja að ég hafi ekk­ert verið sér­stak­lega flinkur við það. Ég get alveg fall­ist á það. En sú trú­ar­setn­ing sem ég kemst næst því að fall­ast á er í vísu Stein­gríms Þor­steins­sonar:

Trúðu á tvennt í heimi,

tign sem hæsta ber:

Guð í alheims geimi,

Guð í sjálfum þér.

En það er sjálf­sagt ekki hægt að kalla það trú í eig­in­legri merk­ingu þess.“

Guð í sjálfum þér; Kári er spurður hvort guð sé í honum.

„Ég held að þeir sem ég umgengst mest komi til með að halda því fram að það fari lítið fyrir honum. “

Það er skemmti­legt að tala við Kára. Hann er húmoristi.

„Það eru þín orð en ekki mín. Ég ætla ekki að bera neina ábyrgð á því.“

Hann þykir líka vera skap­maður.

„Ég er gjör­sam­lega skap­laus. Ég hef ein­staka sinnum hækkað í mér rödd­ina en það er bara þegar ég er að þykj­ast.“

„Það er alger þvæla. Ég er gjör­sam­lega skap­laus. Ég hef ein­staka sinnum hækkað í mér rödd­ina en það er bara þegar ég er að þykj­ast.“

Hann er beð­inn um að lýsa sjálfum sér.

„Ég myndi ekki lýsa sjálfum mér. Það er ósköp ein­falt. Það er hætt við að það yrði dálítið beyglað.“

Kári hefur átt drauma sem hafa ræst og þótt hann sé rúm­lega sjö­tugur hefur hann engan áhuga á að setj­ast í helgan stein. „Mér finnst gaman í vinn­unni. Mig langar ekki til að hætta að vinna. Ekki á næst­unni.“

Hann er spurður um drauma sína í dag.

„Bara að lifa frið­sömu, fal­legu lífi. Það er ósköp ein­falt.“

Hann er spurður í hverju það felist nákvæm­lega.

„Ég vildi að ég vissi það. Þá væri ég búinn að skrifa ein­hvers konar boð­orð. Ég hef ekki hug­mynd um í hverju það felst.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina