Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Hrottalegt ofbeldi 18 ára pilts á Austfjörðum: Áreitti, kjálkabraut og nauðgaði, allt sama daginn

Hrottalegt ofbeldi 18 ára pilts á Austfjörðum: Áreitti, kjálkabraut og nauðgaði, allt sama daginn
Hér­aðs­dómur Aust­ur­lands

Wiktor Tomasz W. Tómasson hefur verið dæmdur í tveggja ára fang­elsi fyrir kyn­ferð­is­lega áreitni og nauðgun. Var ungur aldur Wiktors metið til refsi­lækk­unar sem og að dreg­ist hefur að taka mál hans fyrir hjá dóm­stólum. Wiktor var dæmdur í hér­aðs­dómi Aust­ur­lands í nóv­em­ber 2019. Wiktor framdi kyn­ferð­is­of­beldið í nóv­em­ber 2017. Wiktor Tomasz var þá 18 ára. Hann áfrýj­aði dómnum og var það ekki fyrr en á þessu ári sem málið var tekið fyrir hjá Lands­rétti.

Wiktor var ákærður í tveimur liðum. Hann var dæmdur fyrir kyn­ferð­is­lega áreitni með því að fara inn í her­bergi til ungrar konu þar sem hún svaf. Sakaði konan Wiktor um að hafa sleikt og sogið á henni aðra geir­vört­una. Þegar unga konan vakn­aði yfir­gaf Wiktor her­bergið.

Wiktor kom aftur inn í her­bergið þegar konan hafði sofnað á ný. Þar lagð­ist hann upp í rúm hjá kon­unni og nauðg­aði henni. Í dómnum segir að konan hafi ekki getað varist ofbeld­is­mann­inum sökum svefn­drunga og ölv­unar. Wiktor og konan þekkt­ust í raun ekk­ert á þessum tíma.

Í dómnum kemur fram að eftir lokun skemmti­staðar fór Wiktor Tomasz að heim­ili sínu. Þar bjó þol­and­inn ásamt dóttur sinni. Fleiri bætt­ust í hóp­inn og varði sam­kvæmið í all­nokkurn tíma. Konan sem var þol­andi í mál­inu lagð­ist til svefns en Wiktor var á neðri hæð húss­ins ásamt ungum manni. Þar kastað­ist í kekki á milli þeirra og end­aði rifr­ildið með því að Wiktor sló í átt að unga mann­inum sem kjálka­brotn­aði. Lögregla og sjúkra­liðar voru kölluð á vett­vang kl: 08:14 og var pilt­ur­inn fluttur á heilsu­gæslu­stöð og þaðan með sjúkra­flugi á Land­spít­al­ann.

Lögregla ræddi við Wiktor Tomasz á vett­vangi en hann var ekki hand­tek­inn. Í gögnum segir frá því að á þeirri stundu hafi ákærði verið „rólegur, en sjá­an­lega ölv­aður. Hann var stöð­ugur í göngu­lagi og hreyf­ingum og skýr í talanda.“

Lögregla gerði sér aftur ferð í húsið kl: 09:28 til að ljós­mynda­vett­vang­inn vegna lík­ams­árás­ar­innar. Eftir að lög­regla yfir­gaf svæðið beitti Wiktor Thomasz stúlk­una kyn­ferð­is­of­beldi. Konan kærði og þegar lög­regla óskaði eftir að Wiktor gæfi sýni til líf­sýna­rann­sóknar, neit­aði hann og varð að beita dóms­úr­skurði til að hægt væri að bera saman líf­sýni sem fund­ust í rúm­laki brota­þola á ætl­uðum brota­vett­vangi.

Unga konan fékk sál­fræði­að­stoð eftir hinn hræði­lega glæp og glímdi hún við áfallastreituröskun. Hún tók síðan miklum fram­förum og segir í vott­orði:

„Hún hefur tek­ist á við van­líðan sína af miklu hug­rekki og notað upp­byggi­leg bjarg­ráð. Líðan hennar hefur farið batn­andi að hennar mati og smám saman hefur dregið úr áfallastreitu­ein­kennum.“

Á öðrum stað vott­orðs­ins segir:

„Allt við­mót [stúlkunnar] bendir til þess að hún hafi upp­lifað ógn, bjarg­ar­leysi og við­bjóð í meintu kyn­ferð­is­broti. Sálræn ein­kenni hennar í kjöl­far áfalls­ins sam­svara ein­kennum sem eru þekkt hjá fólki sem hefur upp­lifað alvar­leg áföll eins og lík­ams­árás, nauðgun, stór­slys eða ham­farir. Nið­ur­stöður sjálfs­matskvarða sam­svör­uðu vel frá­sögnum hennar í við­tölum. Hún virt­ist ávallt hrein­skilin, trú­verðug og sam­kvæm sjálfri sér.“

Wiktor Tomasz var dæmdur í tveggja ára fang­elsi í hér­aðs­dómi Aust­ur­lands og til að greiða stúlkunni 1.5 millj­ónir króna í miska­bætur. Wiktor áfrýj­aði til Lands­réttar sem birti dóm sinn í dag. Að áliti dóms­ins þótti fram­burður stúlkunnar trú­verð­ugur og skil­merki­legur í öllum megin atriðum. Þá hafi frá­sögn hennar verið ítar­leg og ein­læg. Wiktor Tomasz þótti hins vegur ekki trú­verð­ugur og reik­ull í fram­burði.

Þar er nið­ur­staðan sú sama, tveggja ára fang­elsi. Bætur til stúlkunnar eru þó 300 þús­und krónum hærri.

Í dómnum kemur fram að Wiktor hafi verið dæmdur í 45 daga skil­orðs­bundið fang­elsi fyrir að kjálka­brjóta unga pilt­inn, þann sama dag og hann nauðg­aði stúlkunni. Einnig var hann þann 1. nóv­em­ber 2018 dæmdur til að greiða sekt til rík­is­sjóðs vegna fíkni­efn­akst­urs.

Wiktor var dæmdur til væg­ari refs­ingar vegna ungs ald­urs en hann var 18 ára þegar hann braut kyn­ferð­is­lega á stúlkunni. Rannsókn lög­reglu lauk vorið 2018 og ljóst að málið dróst hjá ákæru­vald­inu.

Nið­ur­staðan var því eins og áður segir tveggja ára fang­elsi, óskil­orðs­bundið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við