Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Sólveig varð hrædd og kastaði smásteinum í mennina: „Á móti okkur gengu menn og ógnuðu okkur“

Sólveig varð hrædd og kastaði smásteinum í mennina: „Á móti okkur gengu menn og ógnuðu okkur“
Sólveig Anna Jóns­dóttir. Mynd / Hallur Karlsson

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, seg­ist á Facebook hafa dreymst svo slæman draum á dög­unum að hann situr enn í henni. Allir sem hafa lesið Íslend­inga­sög­urnar vita að drauma og fyr­ir­boða ætti ekki að hunsa. Eitt nýlegt dæmi um það er for­mennska hennar, en Gunnar Smári Egilsson fékk hana loks­ins til að sam­þykkja að fara í fram­boð eftir að hafa sagst hafa dreymt pabba hennar, Jón Múla Árnason.  Sólveig skrifar í gær:

„Mig dreymdi átök í nótt. Við gegnum saman í hóp, með fána. Á móti okkur gengu menn sem ógn­uðu okkur. Ég varð hrædd en svo tók ég upp hand­fylli af smá­steinum og kastaði í menn­ina. Ég var mjög leið í draumunum, ég held að sym­ból­ism­inn sem drauma-sjálfið bjó til hafi verið of þrúg­andi. Þegar ég vakn­aði var ég ennþá leið. Ég ákvað að skrifa þessa grein til að koma mér úr dap­ur­leik­anum, til að virkja bar­áttu­vilj­ann. Ástandið er vissu­lega hrika­legt, og mér líður oft eins og við séum bara vopnuð smá­steinum í bar­áttu við ægi­vald hinna upp­söfn­uðu auð­æfa og stjón­mála­stéttar sem telur sig fyrst og fremst vera fram­kvæmda-arm eigna­stétt­ar­innar. En hvað getum við annað gert en að berj­ast áfram í sam­stöðu hvort við annað; ein erum við lít­ils megnug en ef við stöndum saman, göngum saman, berj­umst saman getum við hætt að kasta lófa­fylli smá­steinum og orðið þess megnug að lyfta grettistaki og breyta því sem breyta þarf.“

Hún vísar svo í fyrr­nefnda grein: „“Stór hluti verka- og lág­launa­fólks gengur nú í gegnum þol­raun. Stór hluti verka- og lág­launa­fólks er lát­inn þjást í fátækt. Og þau sem ábyrgð­ina bera ganga enn lengra inní ímynd­ar­stjórn­mál þar sem sjálfs­dýrk­unin hefur tekið yfir, þar sem að draum­ur­inn um jöfnuð á milli fólks er löngu dáinn, þar sem að meira máli skiptir að segja frá því hver hefur gengið á fjöll, hver er hættur að fara á fyll­erí, hver hefur komið til flestra útlanda, hver er mesti meg­in­straum­s-­femín­ist­inn heldur en að standa afdrátt­ar­laust með fórn­ar­lömbum hins stétt­skipta þjóð­fé­lags og nota völdin til að gera líf þeirra betra. Þetta er stað­reynd sem ekki er hægt að afneita,“ segir Sólveig í grein­inni.

Hún segir að það ætti ekki að koma neinum á óvart hvað gerð­ist næst. „Hvað verður um nið­ur­stöður rann­sóknar Vörðu? Hin póli­tíska valda­stétt mun láta eins og rann­sóknin hafi ekki verið gerð, því get ég lofað ykk­ur. Í þeim þjóð­ern­is-­róm­an­tíska fasa ídentity-­stjórn­mál­anna sem hún hefur nú gengið inn í er nákvæm­lega ekk­ert ólík­legra en að boðið verði upp á hið svo­kall­aða sam­tal um aðstæður þeirra sem strita til að kom­ast af, þeirra sem lenda í mat­ar­út­hlut­un­ar-bið­röðum hjálp­ar­sam­taka þegar atvinnu­leysið skellur á, þeirra sem hafa ekki efni á að fara til lækn­is, þeirra sem þjást and­lega vegna þess ískalda skugga sem fjár­hags­á­hyggj­urnar eru. Hin efna­hags­lega valda­stétt mun aftur á móti skoða nið­ur­stöð­urn­ar, en ekki í þeim til­gangi að læra af þeim og end­ur­meta afstöðu sína til til­veru vinnu­afs­ins. Ég er til í að lofa meira: Ég lofa því að nú eru reikni­meist­arar Við­skipta­ráðs og Sam­taka atvinnu­lífs­ins að velta því fyri sér hvernig hægt sé að halda því fram að þau sem svör­uðu könn­un­inni séu bara að ljúga en það hafa verið við­brögð millj­ón-króna fólks­ins þar við bók­staf­lega öllum þeim stað­reyndum sem Efl­ing hefur sett fram í bar­áttu félags­ins fyrir efna­hags­legu rétt­læti fyrir félags­fólk. Og þegar lyga-tón­inn hefur verið gefin frá SA og Við­skipta­ráði verður hann end­u­r­óm­aður í fjöl­miðlum auð­valds­ins.“

Hún spyr hvort við viljum sjá börn okkar sem ódýrt vinnu­afl. „Og hvað verður þá um nið­ur­stöð­urn­ar? Það er algjör­lega upp á okkur sjálf kom­ið. Við getum gert það sem ætl­ast er til af stjórum þessa lands; kinkað döpur kolli, „voða­lega er þetta sorg­leg­t“, og beðið eftir því að ein­hver geri eitt­hvað, beðið þangað til við drep­umst eftir því að ein­hverjum þókn­ist að gera eitt­hvað. Eða við getum látið þessar nið­ur­stöður gera það sem þær eiga að gera; getum látið þær næra andúð okkar og ógeð á þeirri fólsku­legu og við­bjóðs­legu stétt­skipt­ingu sem fengið hefur að grafa um sig í þessu vell­auð­uga og fámenna sam­fé­lagi, þessu „vel­ferð­ar­sam­fé­lag­i“, þessu „upp­lýsta og mennt­aða jafn­rétt­is­sam­fé­lag­i“; getum leyft þeim að næra reiði okkar yfir þeirri ógeðs­legu van­virð­ingu sem okkur er sýnd aftur og aftur og aft­ur; verka- og lág­launa­fólk á að vinna og halda kjafti, borga skatta og halda kjafti, verða atvinnu­laust og halda kjafti, velkj­ast um á gróða­væddum hús­næð­is­mark­aði og halda kjafti, sjá börnin sín verða ódýrt vinnu­afl og halda kjafti, og svo fram­vegis og svo fram­veg­is,“ segir Sólveig og bætir við að lokum:

„Getum leyft nið­ur­stöðum rann­sókn­ar­innar að næra bar­áttu­anda okkar og upp­reisn­ar­anda, getum leyft þeim að verða vopn í þeim slag sem við ætlum okkur að taka aftur og aft­ur, þangað til að við sjálf höfum öðl­ast þau völd sem við þurfum til að breyta þessu hel­sjúka rugli sem fær að við­gang­ast hér; millj­arð­arnir streyma úr rík­is­sjóði, millj­arð­arnir sem þangað eru komnir vegna vinnu okkar streyma til íslenskra millj­arða­mær­inga sem hafa arð­rænt okk­ur, á meðan við sjálf eigum að sætta okkur við að éta brauð­mola úr lófum þeirra sem telja sig þess umkomin að stjórna til­veru okk­ar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina