Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Eina hnífakonan á Íslandi – Soffía fótbrotnaði og fór í hnífana – Kvenhnífabúð bíður hennar

Eina hnífakonan á Íslandi – Soffía fótbrotnaði og fór í hnífana – Kvenhnífabúð bíður hennar

„Þetta er mjög skemmti­legt og skap­andi, það eru engir tveir hnífar eins. Allt unnið í höndum og því hver og einn ein­stakt lista­verk.“ segir Soffía Alice Sig­urð­ar­dóttir hnífa­smiður. Hún deilir vinnu­stofu í Ála­foss­kvos­inni með Páli Krist­jáns­syni sem einnig smíðar hnífa.

Hnífa­gall­er­íið hefur að geyma hreint ótrú­legt úrval fag­ur­gerðra muna sem ljós­lega hefur verið nostrað við og hvert smá­at­riði nær full­komnað.

Soffía er eina konan hér­lendis sem leggur þetta hand­verk fyrir sig og segir að ein­ungis fáar konur í heim­inum fáist við að smíða hnífa.

„Ég hef alltaf verið mjög skap­andi og með frjótt hug­mynda­flug, það hjálpar manni við að hafa úrvalið eins mis­mun­andi og raun ber vitni.

Ég byrj­aði mjög ung að hafa gaman af allskyns list­sýn­ingum og heim­ur­inn birt­ist mér að miklu leiti sem lista­verk, hug­renn­ingar um umhverfið gera mig mót­tæki­lega fyrir mögu­leikum umhverf­is­ins.

Botngróður á togara varð huglistaverk

Í vetur var ég niðri við slipp þar sem verið var að taka upp tog­ara, þegar ég sá slýið á botni skips­ins opn­að­ist mér lita­heimur og ég dreif mig í gall­er­íið til að koma lit­unum til skila á skaft sem ég var með í smíðum. Ef maður gefur feg­urð­inni færi er hún um allt og mjög skap­andi að grípa hana um leið og hún birt­ist manni. Ég fór í mynd­lista­skóla í Banda­ríkj­unum og þar var einmitt lögð áhersla á að nota allt það sem umhverfið hefur upp á að bjóða.“ segir þessi hug­mynda­ríka hand­verks­kona þar sem hún nostrar við hníf í smíðum.

Hún seg­ist að mörgu leiti vera að end­ur­vinna nátt­úr­una, hnífa­sköft eru meðal ann­ars smíðuð úr hval­tönnum, hrein­dýra­hornum, hófum hesta og ýmsum teg­undum af tré. Meira að segja eru not­aðar klaufir af geitum.

Myndir og hnífar um allan heim

„Það þarf að vanda þetta mjög vel því allt sem fer í skaftið þarf að vera með sama raka­stig, sumar teg­undir af viði þarf til dæmis að þurrka árum saman. Ég hafði selt myndir um allan heim og nú er sú saga að end­ur­taka sig með hníf­ana. Fólk hefur meira að segja komið með einka­þotum til lands­ins til að kaupa hnífa hérna. Ég hef nefnt hníf­ana mína eftir goð­unum sem við þekkjum svo vel úr goð­fræð­inni og það skapar fólki víða um heim for­vitni og eft­ir­vænt­ingu. Nú hefur mér verið boðið að selja hnífa í veg­legri verslun í Banda­ríkj­unum. Þar er kona sem er að safna hnífum smíð­uðum af konum á sem flestum stöðum heims­ins. Það verður spenn­andi því þetta er svo sem ekki nein lág­vöru­verðs­verslun,“ segir Soffía kampa­kát.

Auk þess­ara lista­muna sem verða til þarna í vel­búnu gall­er­í­inu halda þau nám­skeið fyrir fólk sem vill smíða sinn hníf sjálft og læra þetta hand­verk.

Námskeið og plokkfiskur

„Nám­skeiðin eru skemmti­leg og vel sótt hjá okkur. Fólk nær alveg fínum árangri og getur í flestum til­fellum unað vel við sína smíð. Við sköffum fólki mat á meðan nám­skeiðið stendur. Stundum erum við með ung­linga sem vilja ekki fisk þannig að við verðum að dekstra plokk­fisk­inn hans Palla ofan í þau. Það er skemmti­legt þegar mæð­urnar hringja svo í okkur eftir nám­skeiðin til að fá upp­skrift að plokk­ar­anum því krakk­arnir linni ekki látum með að fá svona plokk­fisk.“

Þegar Soffía er spurð um hvers vegna hún hafi byrjað á hníf­unum segir hún það hafa verið slys, hreint og klárt slys.

„Ég starf­aði sem leið­sögu­maður og ók sjálf þegar um var að ræða litla hópa. Einn dag­inn fyrir margt löngu átti ég að sækja hóp í Keflavík. Ég fór út að viðra hund­inn áður en ég færi á völl­inn en ekki vildi betur til en svo að ég lenti slysi með ökklann og var frá vinnu í heilt ár. Þannig að ég er í hnífa­smíð­inni fyrir slys, og er bara vel sátt við slysið þó ég hafi verið lengi að átta mig að happ geti falist í áföllum en nú veit það. Nú veit ég að ekk­ert er að ótt­ast, það eru alltaf nýjar leiðir sama hvað á dynur,“ segir hnífa­konan á Álafossi ham­ingju­söm.

Texti: Guð­mundur Sig­urðs­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina