Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Íbúafjöldi þorpsins tvöfaldast: Verbúð hlaðin stórleikurum kostar milljarð

Íbúafjöldi þorpsins tvöfaldast: Verbúð hlaðin stórleikurum kostar milljarð
Gísli Örn Garð­ars­son og Björn Hlynur Har­alds­son á töku­stað á Suð­ur­eyri. Mynd: Reynir Traustason

„Það er búið að  tvö­falda íbúa­fjölda bæj­ar­ins. Þannig verður það næstu tvær vik­urnar,“ segir Gísli Örn Garð­ars­son, leik­stjóri og einn fram­leið­anda sjón­varps­þátta­ser­í­unnar Verbúð. Búið er að taka upp bróð­ur­part­inn af ser­í­unni sem telur alls átta þætti.

Allar inni­tökur eru að baki en nú standa yfir úti­tökur á Suð­ur­eyri þessa dag­ana. Mannlíf ræddi við  Gísla Örn á töku­stað við Aðalgötu á Suð­ur­eyri. Yfir 50 manna tökulið er í þorp­inu að við­bættum auka­leik­urum. Óhætt er að segja að lands­lið leik­ara komi við sögu í þátt­unum. Gísli Örn fer sjálfur með hlut­verk. Björn Hlynur Har­alds­son  og Nína Dögg Fil­ipp­us­dóttir fara með aðal­hlut­verk. Hilmir Snær Guðnason, Jóhann Sig­urð­ar­son, Ingvar Sig­urðs­son, Unnur Ösp Stef­áns­dóttir, Guðjón Davíð Karlsson, Pétur Jóhann Sig­fús­son og Sveppi eru á meðal ann­arra leik­ara.

„Þetta er afar lit­ríkur hópur leik­ara sem munu spegla bæj­ar­lífið frá þeim tíma er þætt­irnir ger­ast,“ segir Gísli Örn og bíður blaða­manni að taka að sér hlut­verk hafn­ar­verka­manns. Það er skít­kalt úti og blaða­maður sem býr á Suð­ur­nesjum og er kulda­skræfa í sam­ræmi við það, afþakkar boðið en með trega þó.

Hilmir Snær Guðnason í hlut­verki blaða­manns að hringja inn frétt.

Þætt­irnir fjalla um lífið í sjáv­ar­þorpi á dögum kvóta­kerf­is­ins. Gísli Örn lofar að þeir verði í senn skemmti­legir og með tals­verðum broddi. Hann segir fólk á svæð­inu mjög ánægt með fram­takið. útgerð­ar­menn hafa tekið þeim vel þótt reikna megi með  því að sægreifar komi við sögu.

Þetta fjallar ekki um þung­lynd­is­líf úti á landi

„Það taka okkur allir opnum örmum og allir ham­ingju­samir með að fá okkur hingað. Þætt­irnir fjalla ekki um  þung­lynd­is­líf úti á landi. Þvert á  móti lýsir þeir því að það er fjöl­breytt líf og gaman að vera úti á landi.“

Gísli Örn er spurður um kostn­að­inn við verk­efnið. Hann nefnr svim­andi tölu eða sem nemur verði á góðu fiski­skipi en að vísu ekki með miklum  kvóta.

„Þetta er rán­dýrt. Kostn­að­ur­inn slagar hátt í millj­arð króna.“ segir Gísli Örn.

Hilmir Snær leikur rann­sókna­blaða­mann. Hann verst allra frétta um sögu­þráð­inn en fellst á það að blaða­mað­ur­inn sé í ákveðnum háska innan um  sægreif­ana í bæj­ar­fé­lag­inu.

„Það má segja það honum helst illa á vinnu. Þetta er spenn­andi hlut­verk,“ segir Hilmir Snær og er rok­inn í næstu töku þar sem sögu­sviðið er síma­klefi við Aðalgötu.

Suð­ur­eyri í gær. Þorpið er und­ir­lagt af kvik­mynda­töku­fólki.

Gísli Örn segir að reiknað er með að fyrsti þátt­ur­inn verði frum­sýndur í haust eða í síð­asta lagi um næstu jól. Víst er að sýn­ing­anna er beðið með eft­ir­vænt­ingu og þá ekki síst hvort þeir muni slá í gegn erlendis eins og varð með Ófærð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina