Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Óli Stef svarar Viðari og ver Brynjar: „Sporð­drek­arnir enda á því að drepa hver ann­an“

Óli Stef svarar Viðari og ver Brynjar: „Sporð­drek­arnir enda á því að drepa hver ann­an“

„Í ljósi heit­feng­innar umræðu um mynd­ina Hækkum Rána lang­aði mig að deila minni sýn.“

Þannig hefst pist­ill eftir Ólaf Stef­áns­son, fyrr­ver­andi lands­liðs­mann í hand­knatt­leik. Miklar umræður hafa skap­ast vegna heim­ilda­mynd­inni Hækkum Rána, þar sem fjallað er um þjálf­un­ar­að­ferðir ungra körfuknatt­leiks­stúlkna. Sitt sýnis hverjum. Viðar Hall­dórs­son pró­fessor í félags­fræði við Háskóla Íslands gagn­rýnir þjálfarun­ar­að­ferðir Brynjars Karls Sig­urðs­sonar í pistli á Kjarn­anum en hann þjálf­aði stúlkur á aldr­inum 8 til 13 og var mark­mið hans að þær yrðu leið­togar utan vallar og afreks­konur innan vallar. Þjálf­un­ar­að­ferðir hans eru umdeildar og hefur mörgum þótt hann of harður við stúlk­urnar. Viðar líkir honum við rúm­neskan fimm­leik­ara­þjálf­ara, Béla Károlyi að nafni en hann lýkti stúlk­unum sem hann þjálf­aði við sporð­dreka.

„Hug­mynda­fræði Karolyi var á þá leið að það að þjálfa korn­ungar fim­leika­stúlkur væri eins og að vera með 50 sporð­dreka sem hann setti í flösku og setti svo tapp­ann í flösk­una. Hvað ger­ist, jú sporð­drek­arnir enda á því að drepa hver ann­an, þangað til einn er eftir sem skríður að lokum uppúr flösk­unni, og það verður Ólymp­íu­meist­ar­inn minn, sagði Károlyi stolt­ur,“ segir Viðar og bætir við:

„Það sem felst í þess­ari sam­lík­ingu er að afreks­stefna í íþróttum barna verður oft hörku­leg og ómann­úð­leg þar sem ein­göngu þeir hæf­ustu lifa af, og nán­ast öllum er sama um þá sem ekki ná í gegn. Sagan verður þannig skráð af sig­ur­veg­ur­unum sem gerir slíkar aðferðir oft eft­ir­sókn­ar­verðar í augum almenn­ings, án þess þó að almenn­ingur geri sér grein fyrir öllum fórn­ar­kostn­að­inum sem varð til við upp­bygg­ingu meist­ar­ans í slíku afreksum­hverfi. Og þar stendur hníf­ur­inn í kúnn­i.“

Ólafur Stef­áns­son svarar Viðari  og seg­ist hafa þekkt Brynjar í fjölda­mörg ár. Við gefum Ólafi Stef­áns­syni orðið:

„Hann þjálf­aði mig og börnin mín í skorpum þegar ég var í ‘fríi’ á Íslandi yfir sum­arið. Æfðum líka oft saman. Þegar ég flutti heim til Íslands kíkti ég á æfingar stelpn­anna í Aþenu og var að pæla í að leyfa yngstu stelp­unni minni, sem þá var í körfu­bolta, að æfa hjá honum. Hún kíkti á eina æfingu með mér hjá Binna. Henni fannst ráin frekar há þarna á æfing­unum og við ákváðum síðan í fram­haldi að hún yrði áfram í Val. Þar spil­aði hún áfram fersk í eitt ár. Núna er hún með önnur áhuga­mál en körfu­bolta. Hennar val og allir glaðir.

Við Binni eigum það sam­eig­in­legt að trúa því að hægt sé að kenna börnum og ung­lingum að veita athygli athygli sinni, að það sé hægt að fá börn til að hafa áhuga á til­finn­ingum sínum með það að mark­miði að ná færni í að taka ábyrgð og velja sjálfur eigin við­brögð þegar til­finn­ingar manns koma upp. Íþróttir eru frá­bær leið til í þess­ari við­leitni, að kanna mörk sín, bæði lík­am­leg sem og við­bragðs­leg því að hver ein­asta æfing er sam­an­safn fjöl­margra atvika sem birta per­sónu­leika manns þá stund­ina.

Og varð­andi við­bragðs­þjálfun óend­an­legra fjöl­breyttra áreita íþrótt­ar­innar sem og lífs­ins. Að mínu viti er hinn besti þjálf­ari sá sem bæði skipu­leggur æfing­una vel, fýsískt og taktísk OG er næmur fyrir við­brögðum leik­manna sinna þegar þeim finnst að sér vegið (þegar áreitið er óþægi­legt). Hæfni þjálf­ar­ans liggur í að segja réttu hlut­ina á réttu augna­blik­unum, fyrir leik­mann­inn að hugsa um, skoða, end­ur­taka (ef jákvætt) eða hætta (ef talið nei­kvætt). Aðal­málið er þó að gefa leik­manni skila­boðin um að hún/hann sé ábyrg fyrir sínum við­brögðum. Fókusinn er ekki ein­ungis á áreitið heldur á við­brögð leik­manns­ins gagn­vart því sem poppar upp.

Það kom mér á óvart að vinur minn og fræði­maður Viðar Hall­dórs­son skuli grípa til þeirrar mjög svo vafa­samrar ein­föld­unar og lík­ingar að Brynjar sé eins og rúm­enski fim­leika­þjálf­ar­inn Bela Karolyi og fleiri kollegar sem til­heyra rétti­lega úr sér geng­inni austur-evr­ópskri nið­ur­rifs-‘upp­ygg­ingar’-þjálf­fræði.

Þjálfun Brynjars er allt önnur, skýr­ari og marg­slungn­ari sem greina má ef lagt er vel við hlustir í umræddri mynd. Kennsla Brynjars snýst minna um körfu­bolta eða það að vinna úrslita­leik 22-4 (sem er reyndar umhugs­un­ar­efni einnig) heldur miklu fremur um að færa leik­mönnum sínum tungu­mál og til­finn­inga­með­vit­und til þess fallin að láta engan – hvort sem er Brynjar sjálfur, annar þjálf­ari eða kenn­ari, for­eldri, mótherji – ræna sig útgeislun sinni og leik­gleði. Með þá hæfni í fartesk­inu mun eng­inn Bela Karolyi þessa heims (í sínum fjöl­mörgu myndum) geta rænt lífs­gleði þannig leik­manns.

Og á almenn­ari nótum. Lýð­heilsa og afreks­stefna eiga ekki að þurfa að fara á móti hverri annarri heldur að styrkja hver aðra. Vellíðun íþrótta­manns­ins eykur líkur á afrekum, hvort sem er í víðum eða þröngum skiln­ingi. Þetta sam­tal þarf að eiga sér stað, af hug­rekki og án sleggju­dóma.

Aftur, íþrótta­þjálfun á, fyrir utan skipu­lag, tækni og styrk, í grunn­inn að snú­ast um fjöl­breytt val íþrótta (og þjálf­ara), að barn geti æft valda íþrótt af ástríðu OG þroskað með­vit­und um stjórn eigin við­bragða sem aftur munu end­ur­spegla leik-/lífs­gleði þess sama ein­stak­lings. Þessi með­vit­und þroskast ein­ungis með athygli á hvert athygli manns bein­ist. Þess konar þjálfun er að mínu viti það sem 21. öldin er meir og meir að byrja að fók­usa á. Fyrsti vísir­inn að því hér á landi er Aþena, visku­gyðjan.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina