Guðbjörg Glóð Logadóttir, stofnandi og eigandi Fylgifiska, sá sig tilneyddda að reka föður sinni eftir að persónuleiki hans breyttist eftir framheilaskaða. Hann fór frá því að vera athafnasamur, uppátækjasamur og vinamargur yfir í spilafíkil sem nánast bjó á götunni. Guðbjörg segir sögu hans á vefsíðunni Lokum, sem berst gegn spilakössunum alræmdu.
Þar segir: „Árið 2000, þegar faðir hennar var rétt tæplega fimmtugur, fékk hann vírus í heila sem olli svo miklum persónubreytingum að faðirinn sem Guðbjörg ólst upp með og leit upp til breyttist í annan og ólíkan mann. Framheilaskaði getur valdið hömluleysi og aukið á fíkn og þannig var það í tilfelli föður Guðbjargar.”
Guðbjörg segir sjálf að allt fór á verst veg eftir að foreldrar hennar skildu. „Við komumst í raun að því að hann var spilafíkill eftir að hann var skilinn við mömmu og systir mín sem hafði aðgang að heimabankanum hans var að fara inn til að athuga hvort allt væri í skilum. Þá sá hún sér til skelfingar að reikningurinn hans var nánast tómur. Tugir milljóna höfðu húrrast út af reikningnum á nokkrum mánuðum og það sem hefði átt að tryggja honum góð efri ár var horfið.”
Guðbjörg segir sárast að hafa þurft að reka föður sinn úr vinnu. „Hann spilaði mest um helgar en svo var hann farinn að laumast úr vinnunni til að spila, en á þessum tíma vann hann hjá okkur í Fylgifiskum. Við héldum að hann væri að fara að athuga með fisk en þá var hann að stelast í kassa. Fíknin vatt upp á sig og hann var að verða búinn með allan sparnaðinn sinn. Við íhuguðum að svipta hann fjárræði en það er þungt og leiðinlegt ferli, svo við ákváðum að gera það ekki. Svo fór hann að leita annarra leiða til að fjármagna fíknina. Við vissum að hann fékk lán hjá vinum, svo seldi hann listaverkasafnið sitt og aðrar eigur sem hann kom í verð. Við heyrðum alls konar sögur af honum og upplifðum alls konar sem rýrði traustið til hans svo ég neyddist að lokum til að segja honum upp vinnunni. Það var rosalega erfitt. Það var ýmislegt reynt til að aðstoða hann í gegnum tíðina, fá hann til að hætta en hann var aldrei til í að líta á fíknina sem vandamál.“
Guðbjörg bætir við að ákvörðun um að segja föður sínum upp hafi ekki verið tekin í skyndi. Hann var búinn að vinna hjá henni í nokkur ár áður en systkinin komust að því að hann væri haldinn spilafíkn og vann hjá henni í um ár eftir að þau komust að þessu.
Faðir hennar varð gjaldþrota, íbúðin boðin upp og hann átti í engin hús að vernda. „Við bjuggum þannig að enginn gat tekið við honum svo við settum honum stólinn fyrir dyrnar. Gerðum honum grein fyrir að hann þyrfti að fara í áfengismeðferð til að eiga möguleika á að eignast heimili á ný. Við komum honum á Vog og síðan bauðst honum eftirmeðferð á Vík. Eftir það varð hann edrú, sem okkur fannst kraftaverk. Hann lifði í tæp tvö ár án þess að drekka áfengi en hann hætti aldrei að fara í spilakassa.“































Athugasemdir