Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Smári og Egill í hár saman – „Eyddu þessu bara ef þetta pirrar þig“ – Egill: „Ég eyði þessu ekki“

Smári og Egill í hár saman – „Eyddu þessu bara ef þetta pirrar þig“ – Egill: „Ég eyði þessu ekki“

Það má segja að athuga­semdir við þráð Egils Helga­sonar fjöl­miðla­manns hafi tekið óvænta stefnu þegar Guð­mundur Andri Thorsson full­yrti að það væri stutt á milli þeirra sem séu lengst til vinstri og hægri. Ummælin féllu í þræði þar sem Egill svar­aði ásök­unum Gústafs Adolfs Skúla­sonar um hvort hann vildi hengja Trump. Gústaf hélt það en Egill segir það óvenju­mikið bull.

Gústaf Adolf var eitt sinn komm­ún­isti en er nú í Mið­flokknum. Guð­mundur Andri not­aði tæki­færið og skrifar: „For­ystu­maður KSML og síðar KSMLb á maóista­ár­unum, og minnir okkur enn á að stjórn­mála­við­horf á ekki að skoða sem línu frá vinstri til hægri heldur skeifu, þar sem öfgarnar eru nán­ast á sama stað. Öfgamenn yst til hægri eiga auð­velt með að vippa sér yfir á hinn kant­inn – eins og dæmin sanna.“

Gunnar Smári brást illa við þessu og birti ansi langa athuga­semd sem varð svo kveikjan að miklu rifr­ildi. Athuga­semdin í heild sinni hljóðar svo:

„Guð­mundur Andri Thorsson, Ömur­legur áróður hinnar svoköll­uðu frjáls­lyndu miðju, not­aður til að gera litið úr bar­áttu þeirra sem sætta sig ekki við kúgun elítu­stjórn­mál­anna og hvernig fámennar klíkur hafa tekið yfir bar­áttu­tæki alþýð­unnar. Að þú skulir nenna þessa, bera á borð andróður gegn stétta­bar­áttu, kröfum um rót­tækara sam­fé­lags­breyt­ingar, um að almenn­ingur fái völd en auð­valdið svipt þeim. Skömm af því að þetta komi upp úr þing­manni flokks sem er sam­suðu úr öðrum, þar með þeim sem geymdu sögu verka­lýðs­bar­áttu á síð­ustu öld, að þing­menn þessa flokks­ræsknis séu farnir að hljóma eins og Varð­bergs­menn.

Það er líka hlá­legt að fylgj­ast með þér gera þig breiðan með því að hýja á villta vinstrið á átt­unda ára­tugnum, það sem sem spratt og var fóstruð sú rót­tækni sem dreif áfram bar­áttu. Til dæmis Rauð­sokk­urnar, sem ekki gátu fundið sér far­veg innan Sam­fylk­inga þess tíma. Og fólk sem ýtti við verka­lýðs­hreyf­ing­unni, sem aftur leiddi til harðra verka­fallsá­taka 1977-78. Þessi rót­tækni­væð­ing náði ekki inn í flokk­anna, hafði lítil áhrif á stefnu þeirra, þótt þeir hafi notið um tíma auk­ins fylgis vegna þeirra. Þrátt fyrir rót­tækni­væð­ing­una tókst ekki að end­ur­reisa Alþýðu­flokk og Alþýðu­banda­lag, heldur voru hin rót­tæku áfram land­laus, reyndu að finna sér far­veg víða, og sum á skrítnum stöðum. Þetta leiddi til þess að rót­tæknin úrkynj­að­ist á jaðr­inum en flokk­arnir færð­ust til hægri, þeir sigr­uðu þar innan dyra sem helst stóðu gegn því að end­ur­vekja sósi­al­íska orð­ræðu, sem aftur leiddi til þess að stofn­ana­vinstrið lá flatt fyrir nýfrjáls­hyggj­unni þegar hún kom. Eftir rót­tækni átt­unda ára­tug­ar­ins kom stofn­ana­vinstrið út með Vilmund Gylfason, Ólaf Ragnar og Jón Baldvin sem for­ystu­menn, allt menn sem vildu færa vinstrið til hægri og fall­ast á að nýfrjáls­hyggjan væri sam­fé­lags­sátt­mál­inn (JBH sneri reyndar til vinstri þegar hann hætti í póli­tík). Afleið­ing þess­arar stefnu varð stór­kost­legt valda­af­sal almenn­ings til auð­valds­ins, algjört getu­leysi flokka og hreyf­ingar til að mæta gagn­bylt­ing­unni hinna ríku

Það má hlægja af villta vinstr­inu á þessum árum. En það er aðeins léttur gam­an­leikur. Hinn stóri harmur var hin hliðin á getu­leysi vinstr­is­ins til að end­ur­nýja sig og stétta­bar­átt­una. Og sá harmur hafði miklu miklu verri afleið­ingar fyrir vinstrið og sam­fé­lagið. Við erum eig­in­lega enn föst í drull­unni

Ein afleið­ingin er frá­leit póli­tísk staðan þín í dag, málsvari … hvers eig­in­lega? Að allt sem ekki felur í sér mála­miðlun við auð­valdið á frum­stigi, eig­in­lega áður en fólk byrjar að hugsa, séu öfgar?

Svo er póli­tíska lit­rófið ekki eins og skeifa heldur eins pretzel, end­arnir mæt­ast í miðj­unni. Það er sá tími sem við erum að sigla inn í, þar sem fas­ism­inn og for­ræð­is­hyggjan hittir hina svoköll­uðu frjáls­lyndu miðju. Macron, Biden og allir þessir karlar munu halda áfram að auka völd mið­stýrðs ríkis, hers og lög­reglu, bakk­aðir af stór­fyr­ir­tækjum sem taka sér æ meira vald yfir umræð­unni og upp­lýs­ingum um per­sónu­hagi þína. Víðast er búið að brjóta verka­lýðs­hreyf­ing­una, sem er annað hvort komin niður á hnén eða fallin í val­inn, svo hvergi er að finna far­veg fyrir stjórn­mála­þátt­töku almenn­ings nema á götum úti, í róstum og mót­mælum. Þar berj­ast þau sem þurfa á stjórn­málum lífs og dauða að halda.

Hin skár settu reyna að milda hjarta valds­ins með allskyns vit­und­ar­vakn­ingu, ýmsum útgáfum á betli fyrir smá virð­ingu og ein­hverjum mann­rétt­indum. En almenn­ingur er valda­laus innan þessa pretzell-kerfis. Auð­valdið hefur aldrei verið sterkara. Við erum komin aftur fyrir frönsku stjórn­ar­bylt­ing­una, hin ríku er erfða­stétt þar sem auð­ur­inn færir afkom­endum drottn­un­ar­stöðu innan sam­fé­lags­ins á sama tíma og fátækt, valda­leysi og bjarg­ar­leysi erf­ist. Stjórn­mála­kerfið sem byggð­ist upp til að þjóna auð­vald­inu á nýfrjáls­hyggju­ár­unum er ónýtt og algjör­lega getu­laust til að mæta þeirri hryggð­ar­mynd af sam­fé­lagi sem 40 ár af nýfrjáls­hyggju skyldi eftir. Stofn­ana­vinstrið getur ekki einu sinni horfst í augu við þetta, vit­andi að það ber stærstu sök­ina.

Og þau sem komið hafa sér fyrir innan elítu­flokk­anna, sem reknir eru ýmist fyrir fé frá hinum ríku eða með fjár­austri úr rík­is­sjóði, og eru fyrir löngu hættir að vera almanna­sam­tök; þau vara fólk við þeim sem vilja grund­vall­ar­breyt­ingar á sam­fé­lag­inu, kalla það fólk öfga­fólk sem sé í raun sömu teg­undar og ras­ist­arnir sem tóku þing­húsið í Washington. Þau vilja segja okkur að stjórn­mál snú­ist ekki um rétt­læti heldur um að bjóða lýðnum að velja á milli fólks, sem allt er eins séð frá sjón­ar­hóli hinna fátæku og kúg­uðu og tala sömu tungu og sendi­tíkur auð­valds­ins. Lýðurinn fær kost á að velja á milli rosa­lega flotta fólks­ins (svo notað sé orð­færi sem svífur yfir þessu flokksvali ykkar).“

Egill svarar þess­ari 700 orða athuga­semd og segir: „Er þetta ekki það sem er kallað þráða­rán? Í alvör­unni – væri ekki rétt að fara annað með þessa lang­loku?“ Gunnar Smári svarar í knapp­ara máli: „Egill Helgason, Þetta er þinn veggur, þú getur eytt þessu ef þetta inn­legg truflar frið­inn hjá ykkur já-mönnum miðj­unnar.“ Því svarar Egill: „Æ Smári. Þetta er nú meira rövlið í þér […]Það er ein­hvern veg­inn alveg. sama hvað maður talar um – alltaf skal skal Smári svara með sama pistl­inum sem nú birt­ist hér í þús­undasta sinn. Má kannsi kalla það þráða­rán?“

Gunnar Smári svarar aftur og er nú heldur lengri: „Egill Helgason Eyddu þessu bara ef þetta pirrar þig. En ég er ekki að svara þér, hef enga trú á að þér sé bjarg­andi, geng­inn inn í sótsvört björg íhalds af ótta við lýð­inn og fátæka mann­inn, virð­ist fá hland fyrir hjartað ef fólk mætir ein­hvers staðar til að mót­mæla mis­rétti og réttir aldrei fram hönd til að styðja slíkt. Mér finnst Guð­mundur Andri hins vegar áhuga­verður, hvernig hann reynir að flétta and-kommun­isma Timothy Snyder inn í íslenska stjórn­mála­um­ræðu, frá ein­hverju vinstri-miðju sjón­ar­horni. Í þessum æfingum vill GAT stundum spyrða okkur greyin í Sós­í­alista­flokknum saman við helsta glæpa­lýð síð­ustu aldar, hann sér í okkur ógn og fyrstu merki hruns mann­legs sam­fé­lags. Mér finnst þetta áhuga­vert og elti GAndra stundum uppi til að fá að heyra meira.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina