Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Þá brotnaði harði naglinn frá Akureyri og tárin flæddu: „Ég fór að gráta með foreldrunum“

Þá brotnaði harði naglinn frá Akureyri og tárin flæddu: „Ég fór að gráta með foreldrunum“

„Sjáðu hvað þetta er fal­legt, geislar sól­ar­innar tvístr­ast og end­ur­kast­ast af gólf­inu,“ sagði mynd­list­ar­kona við Jón Óðinn Waage júd­ó­þjálf­ara og pistla­höf­und. Þau voru bæði gestir á hót­eli og í mögn­uðum pistli lýsir harð­jaxl­inn Jón Óðinn hvernig eitt lítið augna­blik hafði gríð­ar­leg áhrif á líf hans.

En Jón Óðinn sá enga feg­urð og önugur benti hann mynd­list­ar­kon­unni á að þetta væri aðeins ómerki­leg sprungin rúða og gólfið væri bara óhreint.

„Já“, svar­aði konan. „Það er einmitt það sem býr til feg­urð­ina“.

Jón Óðinn gekk út og þegar hann sneri sér örstutt við kom hann auga á mynd­list­ar­kon­una sem enn horfði hug­fangin á „eitt­hvað sem Jón gat engan veg­inn komið auga á.“

Þá fyllt­ist hann sam­visku­biti fyrir að hafa verið nei­kvæður og hafa aðeins getað séð það ljóta á meðan konan sá ólýs­an­lega feg­urð.

„Þetta sat í mér lengi, mig lang­aði í þessa gleði sem mynd­list­ar­konan upp­lifði. En það var sama hvað ég reyndi, ég fann aldrei feg­urð­ina, bara það sem var að,“ segir Jón Óðinn og heldur áfram:

Jón Óðinn Waage

„Nokkru seinna var ég sem þjálf­ari á fót­bolta­móti 6 til 7 ára. Einn af mínum drengjum meiddi sig og fór að gráta. Ég var strangur þjálf­ari, harður nagli sem þoldi ekk­ert væl og kenndi börnum það að harka af sér. Hug­hreyst­ing mín fólst í að skipa drengnum að harka af sér,“ lýsir Jón Óðinn en það virk­aði ekki. Dreng­ur­inn vildi aðeins fá að fara til for­eldra sinna sem voru að fylgj­ast með leiknum. Eftir að hafa fylgt drengnum til þeirra hélt leik­ur­inn áfram. Við gefum Jóni orðið:

„Skömmu seinna var togað laust í stakk­inn minn, ég leit við og horfði framan í grát­bólgið and­lit drengs­ins. Hann sagði skjálf­andi röddu:

„Ég er til­bú­inn núna“,

Ég sendi hann inn á völl­inn. Þetta var prúður drengur, einn af þeim sem vildi alltaf leyfa hinum að hafa bolt­ann, vildi ekk­ert vera fyrir.

Nú brá svo við að hann hljóp út um allt og barð­ist um alla bolta. Eftir hvern sprett leit hann stoltur upp í brekk­una þar sem for­eldrar hans stóðu.

Ég leit á þau, þetta voru ungir for­eldrar, hann var þeirra eina barn. Þarna stóðu þau og héldu utan um hvort annað, tárin runnu niður kinnar þeirra og mættu þar ein­lægu ham­ingju­brosi.

Ég hafði mjög oft upp­lifað svipuð atvik áður, en atvikið með mynd­list­ar­kon­unni hafði kveikt í mér eitt­hvað.

Og nú sá ég loks feg­urð­ina.

Ég fór að gráta með for­eldr­unum. Engin sá það, ég var ennþá harður nagli, bara svo að það sé á hreinu.

Og mynd­list­ar­konan, hún heitir Arna Vals­dóttir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina