Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Íslenskar konur með hjarta úr gulli björguðu útigangsmanni: Sjáðu hvernig líf hans hefur gjörbreyst

Íslenskar konur með hjarta úr gulli björguðu útigangsmanni: Sjáðu hvernig líf hans hefur gjörbreyst
Bergþóra og Gústaf á ljúfri stundu

Gústaf Níelsson, sagn­fræð­ingur greinir frá því á Facebook-síðu sinni að íslenskar konur hafi nýverið bjargað úti­gangs­manni í spænska bænum San Miguel. Hafðist mað­ur­inn við í helli. Sam­eig­in­legt átak þess­ara íslensku kvenna gáfu mann­inum nýja von. Bergþóra, kona Gústafs, er ein þeirra sem gekk fram fyrir skjöldu til að hjálpa mann­inum. Gústaf segir:

„Til þess að gera langa sögu stutta vil ég segja örsögu af „þorps­rón­anum“ hér í San Miguel, vini mínum Joob og hvernig sam­eig­in­legt átak íslenskra kvenna hér gaf honum nýja von. Hann missti fót­anna fyrir margt löngu, var orð­inn sóða­legur og illa hald­inn, en alltaf blíður. Hann bjó í helli úti á mörk­inni og öllum var sama.“

„Þessar íslensku elskur tóku sig saman og tóku málin í sínar hendur og það var ekki auð­velt að sann­færa hann.

Þær útveg­uðu honum hús­næði, þvoðu af honum fötin og settu hann í bað, klipp­ingu, fót­snyrt­ingu og gáfu honum að borða. Þær slógu um hann skjald­borg, sem enn varir,“ segir Gústaf.

Þá kom í ljós að hann átti eft­ir­launa­rétt í Hollandi en til þess að virkja hann varð Joob að kom­ast til fóst­urjarð­ar­innar.

„Á frú Bergþóru voru engar vomur, hún keypti handa honum flug­miða og fyr­ir­skip­aði okkar manni að koma honum klakk­laust út á flug­völl og leysa hann út með smá­ræðis lausafé og sjá svo um að hann kæm­ist um borð í flug­farið. Allt tókst það með glans,“

segir Gústaf og gagn­rýnir um leið stefnu stjórn­mála­manna á Íslandi í mál­efnum úti­gangs­fólks. Segir hann glóru­laust að skatt­borg­arar taki þátt í að skjóta skjóls­húsi yfir alkó­hólista og ýta þannig undir neysl­una í stað þess að hjálpa þeim að hætta. Gústaf segir:

„Hvers vegna taka konur á Íslandi sig ekki til og rétta úti­gangs­fólki hjálp­ar­hönd í stað þess að láta óper­sónu­legt opin­bert vald sinna mál­unum með óvissum árangri?“

Hér má sjá tvær myndir af þessum ljúfa manni, teknar með árs millibili.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við