Guðmundur Felix Grétarsson fagnar í dag sex vikna afmæli nýju handanna sem á hann voru græddar í einstakri aðgerð á heimsvísu. Hann segir að nú séu hann og hendurnar formlega runnin saman þar sem liðamót og vöðvar hafi á þessum vikum náð að græðast.
Af þessu tilefni telur Guðmundur ástæðu til að fagna og af tilefninu birti hann mynd af því þegar hann borðar amerískar pönnukökur með sultu og sýrópi. Með myndinni segir hann:
„Í dag eru akkúrat sex vikur frá aðgerðinni. Það er merkilegt fyrir þær sakir að það er tíminn sem það tekur liðamót og vöðvar að græðast. Ég er formlega runnin saman við líffæragjafann minn. Það þýðir auðvitað að ég á þetta skilið.“
Guðmundur Felix, sem sjálfur kallar sig handhafa í dag eftir að á hann voru græddir nýir handleggir á dögunum, hefur áður sagt frá því að hægt og rólega virðast hendurnar vera að ganga í gegnum umskipti og mynda nýja húð. Hann upplýsir fylgjendur sína á Facebook reglulega um stöðu mála eftir aðgerðina.Guðmundur Felix er sá fyrsti í heiminum til að fá grædda á sig handleggi annars manns og var það gert nákvæmlega 23 árum eftir að hann missti báða hendleggi sína í slysi. Nýlega birti hann myndir af höndunum sem líkaminn er nú byrjaður að hafna.
Sjá einnig: Guðmundur Felix sýnir handleggina í fyrsta sinn án umbúða – Myndir ekki fyrir viðkvæma































Athugasemdir