Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Bjarni: „Ég sagði: Sjáumst í kvöld. Það var í síðasta skipti sem ég sá hana á lífi“

Bjarni: „Ég sagði: Sjáumst í kvöld. Það var í síðasta skipti sem ég sá hana á lífi“

„Ég er búinn að vinna úr þessu eins mikið og hægt er og því á ég auð­velt með að tala um þetta. Ef ég væri ekki týpan sem ég er myndi þetta eflaust vega þyngra á mér. En þessu verður aldrei snúið við.“

Þetta segir Bjarni Jónsson, 38 ára karl­maður sem missti móður sína fyrir eigin hendi þegar hann var aðeins þrettán ára gam­all. Móðir Bjarna var spilafík­ill. Bjarni ólst upp við mikið óör­yggi og var settur í ýmsar aðstæður sem barn sem hann sér í dag að voru ekki eðli­legar.

Bjarni er í við­tali við Lokum.is. Lokum er árvekni­her­ferð sem hefur það mark­mið að leiða íslensku þjóð­ina í allan sann­leik­ann um hve skað­leg fíkn í spila­kassa er, sem og að þrýsta á stjórn­völd að loka spila­kössum á Íslandi til fram­búðar. Hér má lesa fleiri sögur.

„Mamma mín var ein­stæð móðir og vann sem píanó­kenn­ari. Hún var ynd­is­leg kona, ofboðs­lega list­ræn og við­kvæm. Ég á mjög bjartar minn­ingar um hana. Henni þótti vænt um mig og yngri bróður minn en veitti okkur hins vegar ekki hefð­bundið upp­eldi því ég held að hún hafi ein­fald­lega ekki verið hæf til þess út af sínum vanda­málum,“ segir Bjarni. Móðir hans glímdi við þung­lyndi á yngri árum og var einnig beitt and­legu ofbeldi. Þegar að Bjarni var í kringum ell­efu ára ald­ur­inn byrj­aði hún að spila í spila­kössum.

„Við höfðum lítið á milli hand­anna fyrir en þegar hún byrj­aði að spila fór ég hratt að finna fyrir áhrifum þess að pen­ingar kæmu ekki inn á heim­ilið. Það var lítið um mat heima og við treystum á mat­ar­gjafir frá ætt­ingjum. Það kom fyrir að við urðum raf­magns­laus en ég og bróðir minn kóuðum rosa­lega mikið með henni og reyndum að fela fyrir öllum ætt­ingjum hvað væri í raun í gangi,“ segir Bjarni.

Batterísýra í andlitið

Spilafíknin vatt hratt upp á sig í til­felli móður hans.

„Þetta ágerð­ist mjög hratt. Vanda­málin í kringum þetta urðu sífellt fleiri. Stundum sat ég með mömmu, hún hágrát­andi og ég að reyna að hugga hana en skildi ekki fylli­lega hvað var í gangi. Versta minn­ingin mín er þegar að hún kom heim af bar og ein­hver maður var búinn að skvetta batt­er­í­sýru framan í hana því hún vildi ekki lána honum pen­ing. Það sýnir bara hvað fólk er sturlað í spila­kössum að það skvettir sýru á ein­hvern því við­kom­andi vill ekki lána því pen­ing,“ segir Bjarni. „Hún tók okkur bróður minn líka oft með á bari og aðra staði þar sem voru spila­kassar og þar vorum við fastir á meðan hún spil­aði, oft langt fram á kvöld. Á þeim tíma gerði ég mér enga grein fyrir hve afbrigði­legt þetta væri. Mér fannst þetta hálf­part­inn gaman. Við gerðum eig­in­lega aldrei neitt því við áttum ekki pen­ing en að sitja á bar að horfa á mömmu í spila­kassa varð að eins­konar fjöl­skyldu­iðju. Ég sé það í dag að þetta var mjög sjúkt ástand og þarna sátum við bræð­urnir í kringum úti­gangs­menn og alls konar lýð. Stundum biðum við úti í bíl á meðan hún spil­aði en oft var ég einn heima með bróður minn á meðan hún fór út. Þetta var fyrir tíma gemsanna þannig að ég var með síma­númer á öllum börum og stöðum með spila­kössum svo ég gæti leitað að henni þegar að þess þurfti,“ bætir Bjarni við.

Bjarni hatar spila­kassa og vill að þeim sé lokað.

Neitaði að heimsækja hana

Það gerð­ist oft að móðir hans lét sig hverfa daglangt, jafn­vel lengur. En hún skil­aði sér alltaf aftur heim – þar til einn örlaga­ríkan vor­dag.

„Einn dag­inn, þegar að allt var komið í rugl, skutl­aði hún mér í pössun heim til frænku minnar. Ég sagði: Sjáumst í kvöld, en hún svar­aði mér ekki. Það var í síð­asta skipti sem ég sá hana á lífi,“ segir Bjarni. Þá nótt kom móðir hans ekki heim. Eftir þriggja daga leit fannst hún loks í bíl nálægt Hvera­gerði. Hún hafði reynt að svipta sig lífi með því að taka of stóran skammt af lyfjum. Hún lifði sjálfs­vígstil­raunin af og var lögð inn á gjör­gæslu­deild.

„Ég var svo ógeðs­lega reiður að ég neit­aði að fara upp á spít­ala að heim­sækja hana. Tveimur vikum seinna lést hún úr lungna­bólgu, eft­ir­köstum sjálfs­vígstil­raun­ar­innar. Hún dó á föstu­dag­inn langa og síðan þá hef ég hatað pásk­ana. Ég sé enn mikið eftir því að hafa ekki farið upp á spít­ala til hennar. Ég var bara svo reiður. Hún skildi eftir poka með miðum til okkar sem ég hef ekki enn lesið.“

„Ég upp­lifi sátt“

Bjarni var þrettán ára þegar að móðir hans lést, eins og áður segir, og bróðir hans tíu ára. Frænka þeirra ætt­leiddi þá eftir að móðir þeirra lést og er Bjarni ævin­lega þakk­látur fyrir það. Höfn­un­ar­til­finn­ingin við and­lát móð­ur­innar var hins vegar nær óyf­ir­stíg­an­leg og leit­aði Bjarni í vímu­efni til að flýja raun­veru­leik­ann.

„Ég fór í til­finn­inga­lega kleinu. Ég datt í alls konar rugl fram að átján ára aldri og var versta útgáfan af sjálfum mér í mörg ár. Þegar ég var átján ára fór ég í með­ferð og þá var með­ferð­ar­full­trúi sem kom því af stað að ég vann úr mínum málum. Smátt og smátt hef ég unnið mig upp úr þessu og bless­un­ar­lega upp­lifi ég enga skömm. Ég var nei­kvæður í garð æsk­unnar minnar mjög lengi, þar til ég sleppti tök­unum og náði að skilja kvill­ann sem hrjáði mömmu mína. Þetta er búið að vera langt og strangt ferli.

Ég er alls ekki reiður út í hana. Hún býr alltaf í mér.

Ég skil ekki til­finn­ingar jafn vel og aðrir því ég eyddi svo miklum tíma í að loka á þær þegar ég átti að vera að þroskast sem ein­stak­lingur. Ég er hepp­inn með vini og vanda­menn og ætt­ingjar mínir hafa geta gefið mér inn­sýn í hvernig fyrra líf móður minna var, sem hefur hjálpað mér að skilja aðstæð­urnar hennar betur. Þegar ég varð eldri náði ég að skilja betur hvernig fíkn getur tekið öll völd,“ segir Bjarni og bætir við að hann finni ekki fyrir reiði í garð móður sinnar í dag.

„Ég er alls ekki reiður út í hana. Hún býr alltaf í mér. Ég upp­lifi sátt. Eins mikla sátt og ég get upp­lifað. Ég skil hana eftir því sem ég verð eldri, meira þegar ég kynnti mér hennar lífs­hlaup og hvernig spilafíkn virkar. Spila­kassar kveikja á sömu heila­stöðvum og hjá not­endum kóka­íns en þetta er skað­legri neysla því henni fylgir ekki gervi­verð­laun sem fíkni­efnin veita. Spilafíklar fara því í enn meira nið­ur­rif en fólk sem neytir fíkni­efna. Skömm í kringum spilafíkn er svo mikil að fólk vill ekki tjá sig um þetta. Spilafíklar mæta ekki sama skiln­ingi og aðrir fíklar að mörgu leiti. Spilafíklar upp­lifa sig eins og ann­ars flokks mann­eskjur og fela fíkn­ina meira en aðrir fíklar því þetta er svo mikið tabú.“

Siðlaust að græða á eymd

Bjarni er þakk­látur Samtökum áhuga­fólks um spilafíkn fyrir að skapa vett­vang fyrir spilafíkla og aðstand­endur þeirra að tjá sig. Telur bar­átt­una gegn spila­kössum verð­uga.

„Síðan að mamma dó hef ég hatað spila­kassa. Ég er bull­andi á móti þeim enda hef ég horft upp á eyði­legg­ing­una í kringum þá, ekki bara hjá mömmu heldur líka fólk­inu í kringum hana. Spila­kassamód­elið er hannað til að fólk geti ekki unnið og er aug­ljós­lega að búa til djúpa fíkn. Mér finnst rosa­lega sið­laust að góð­gerð­ar­sam­tök græði á eymd ann­arra. Svo hef ég heyrt alls kyns ljótar sögur af rekstr­ar­að­ilum staða þar sem eru spila­kassar þar sem þeir eru að gefa spilafíklum að borða og áfengi til að hvetja þá að halda áfram að spila. Það er eitt­hvað form af ómeð­vit­aðri mann­vonsku. Þetta er óheil­brigt módel.

Það eru engar heil­brigðar lausnir á þessu vanda­máli nema að loka spila­kössum.“

Hér má lesa fleiri slá­andi sögur á LOKUM.IS og á Facebook-síðu þeirra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina