Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Jósefína var alla ævi í sóttkví – Öldruð þegar kom í ljós að hún hafði aldrei verið veik

Jósefína var alla ævi í sóttkví – Öldruð þegar kom í ljós að hún hafði aldrei verið veik

Magnús Karl Magn­ús­son, pró­fessor við Lækna­deild Háskóla Íslands, rifjar upp á Facebook-síðu sinni ævi og örlög Jósefínu Guð­bjargar Guð­munds­dóttur, síð­asta holds­veiki­sjúk­ling Íslands. Saga hennar er merki­leg fyrir margar sakir en ekki síst vegna þess að það kom í ljós þegar hún var öldruð að lík­lega hefði hún aldrei smit­ast af holds­veiki. Þá hafði hún verið í sótt­kví næstum alla ævi.

Magnús deilir mynd­inni hér fyrir ofan og skrifar: „Síðasti holds­veiki­sjúk­lingur á Íslandi. Konan sem hér situr alvar­leg og virðu­leg á svip í upp­hlut er síð­asti holds­veiki­sjúk­lingur á Íslandi. Hún hét Jósefína Guðbjörg Guð­munds­dóttir, fædd á Snæ­fells­nesi 1892. Hér er hún árið 1971 í ferm­ing­ar­veislu Péturs heit­ins bróður míns.“

Jósefína var næstum alla tíð í ein­angrun. „Ég þekki ekki vel sögu Jósefínu en hún þekkti langömmu mína, Ingi­björgu Pét­urs­dóttur mjög vel. Ingi­björg langamma átti raunar bróður, Sigurð Krist­ó­fer sem einnig var með holds­veiki og er senni­lega einn fræg­asti íbúi Holds­veiki­sjúkra­húss­ins á Laug­ar­nesi. Jósefína sem hér er á mynd­inni eign­að­ist son en var síðar sett í holds­veiki-ein­angrun og var þar síðan alla tíð. Það er erfitt að ímynda sér slíka raun, en kannski hollt að hugsa um það nú á tímum far­sóttar, meðan við kvörtum yfir að kom­ast ekki á vín­veit­ing­ar­hús eða lík­ams­rækt­ar­stöðvar,“ segir Magnús.

Þegar Jósefína var öldruð  þá átti að útskrifa hana af Kópa­vogs­hæli. „Mamma sagði mér að Jósefínu hafi raunar verið sagt þegar hún var orðin öldruð að hún hafi hugs­an­lega aldrei verið með holds­veiki. Það stóð þá til að útskrifa hana af Kópa­vogs­hæli en þá á hún að hafa sagt: Þið fluttuð mig hingað þegar ég var ung, nú verðið þið að gera svo vel að sjá um mig það sem eftir er. Hún var aldrei útskrifuð en mátti ferð­ast út fyrir hælið að vild. Jósefína lést árið 1979. Blessuð sé minn­ing þessar konu sem mátti þola sótt­kví af þeirri gerð sem vart er hægt að ímynda sér í dag.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við