Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Tímavél Mannlífs: Anton elskaði peningana í póker en situr nú í varðhaldi vegna morðrannsóknar

Tímavél Mannlífs: Anton elskaði peningana í póker en situr nú í varðhaldi vegna morðrannsóknar

Athafna­mað­ur­inn Anton Kristinn Þór­ar­ins­son var með efni­legri pókerspil­urum lands­ins hér á árum áður. Árið 2011 var hann í við­tali við Mannlíf þar sem hann vildi lög­leiða fjár­hættu­spil hér á landi með það fyrir augum að fá fullt af pen­ingum hingað inn.

Anton, eða Toni eins og hann er gjarnan kall­aður, er í dag af mörgun tal­inn einn umsvifa­mesti fíkni­efna­sali lands­ins. Hann varð á dög­unum lands­frægur eftir að trún­að­ar­gögnum lög­reglu var lekið í fjöl­miðla en þar kom fram að Anton hafði um ára­bil verið upp­lýs­inga­gjafi lög­regl­unnar í und­ir­heimunum.

Anton situr nú í gæslu­varð­haldi vegna morðs­ins hrotta­lega í Rauða­gerði.

Maðurinn á flestra vörum þessa dag­ana er Anton Kristinn . Hann hefur í áranna rás komið víða við og nokkuð ágrein­ings­laust að hann hafi ekki verið neinn eng­ill. Anton er úr Árbænum og verður 42 ára síðar á þessu ári.

Í dag er hann vænt­an­legur nágranni Björns Leifs­sonar í World Class en þeir eiga hús­eignir hlið við hlið á Hauka­nesi á Arn­ar­nes­inu. Anton keypti það hús á um 120 millj­ónir krónur. Húsið var áður í eigu Rasmus Rojkjaer, fyrr­ver­andi for­stjóra Alvotech á Íslandi. Anton hefur jafnað húsið við jörðu og er að láta byggja nýtt á lóð­inni. Sam­býl­is­kona hans er skráð með lög­heim­ili þar.

Hann byrj­aði þó smátt ef marka má frá­sagnir Árbæinga. Einn þeirra, Maggi Pera, lýsir því á Twitter hvernig Anton var besti landa­sölu­maður lands­ins á árum áður. „Í dag eyddi ég tveimur klukku­stundum að lesa yfir­heyrslur yfir lög­reglu­mönnum og athafna­manni úr Árbæ. Það lét hug­ann leita aftur til ung­lings­ár­anna. Athafna­mað­ur­inn var með einn besta landa bæj­ar­ins á eftir knatt­spyrnu­manni úr Breið­holti. Aðrir áttu ekki breik!,“ skrif­aði Maggi.

Hver kann­ast ekki við glamúr og glæsi­leika í kringum póker og spila­víti í kvik­myndum? James Bond spilar póker í spila­vítum, fínn og strok­inn, klæddur smóking og umvaf­inn glæsikvendum. Að spila póker er ákveðið stöðu­tákn og hér á landi fór póker að ryðja sér til rúms í góð­ær­inu en spilið á sér langa sögu. Gjarnan er spilað upp á pen­inga og oft hefur verið dregin upp vafasöm mynd af póker. Margir leggja hóf­lega undir til að krydda skemmt­un­ina en einnig er spilað upp á háar fjár­hæðir sem getur haft afdrifa­ríkar afleið­ingar. Það eru nefni­lega tvær hliðar á pen­ingnum. 

Anton tók oft þátt í svoköll­uðum „hákarla­kvöldum“ en þá komu menn saman sem spila fyrir háar upp­hæðir. Þá var viskí, snittur og fleira á boðstólum sagði hann.

Anton þótti afar efni­legur pókerspil­ari hér áður fyrr og ræddi leik­inn í við­tali við Mannlíf á sínum tíma. „Það á að lög­leiða póker, það er marg­sannað að póker er ekki heppn­is­í­þrótt. Póker er hugar­í­þrótt eins og bridds og skák. Það er engin til­viljun að það eru alltaf sömu menn­irnir sem ná langt á mótum, það ber að líta á póker sem hugar­í­þrótt og þess vegna á að lög­leiða póker,“ sagði Anton þá. Aðspurður um hvað honum þætti mest spenn­andi við pók­ar­inn stóð ekki á svari: 

„Pen­ing­arnir! Það er líka fíl­ingur í þessu! Og svo félags­skap­ur­inn. Það jafn­ast engin til­finn­ing á við að ná langt í móti; það er ofsa­lega mikil spenna, adrena­línið er í botni, maður reynir að lesa and­stæð­ing­ana og það er mikið undir.“

Saga pókers

Sögu pókers má rekja allt aftur til Persa en þeir munu hafa spilað leik sem kall­að­ist nas og barst alla leið til Banda­ríkj­anna þar sem pers­neskir sjó­menn kenndu Frökkum í New Orleans leik­inn. Nafnið póker er dregið af franska orð­inu „poque“ og „Pochen“ á þýsku merkir að blöffa. Póker varð vin­sælt spil í Banda­ríkj­unum og breidd­ist út í borg­ara­stríð­inu þar. Þar urðu póker­mót fyrst vin­sæl um 1970 í spila­vítum og hafa vin­sældir pókers auk­ist víða, ekki síður hér á landi en ann­ars staðar.

Spilafíkn er sjúk­dómur sem þró­ast og má skipta honum í 3 stig. 

  1. Skemmti­legi tím­inn: Við­kom­andi kynn­ist spil­inu, vinnur oft, vinn­ingar fara hækk­andi og hann fær stóran vinn­ing.
  2. Skeið ósigr­anna: Menn fara að spila einir, spilið ein­kenn­ist af þrá­hyggju og menn verða eirð­ar­lauir ef þeir eru ekki að spila. Þeir sýna ábyrgð­ar­leysi gagn­vart fjöl­skyldu, borga skuldir seint og eru í felu­leik, lífið verður gleði­s­nautt og fjöl­skyldu­lífið erfitt. 
  3. Örvænt­ing­ar­skeið: Við­kom­andi er orð­inn að spilafíkli. Hann ein­angr­ast, eyðir enn meiri tíma og hærri upp­hæðum í spilið, upp­lifir skömm, ásakar aðra, fær hræðsluköst og mik­inn kvíða, upp­lifir afskipti lög­reglu- og inn­heimtu­manna og svo end­an­legt hrun. 
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina