Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Sorg, sút og upprisa í Hamraborg: Síðan fann Óskar leiðina heim

Sorg, sút og upprisa í Hamraborg: Síðan fann Óskar leiðina heim

„Per­sónu­lega hef ég aldrei skilið af hverju ég geri þetta. Ég skil lækn­is­fræði­legu útskýr­ing­una en ég skil ekki af hverju ég hef enga stjórn. Í hvert ein­asta sinn sem ég tap­aði öllu skrif­aði ég heilu rit­gerð­irnar um það hvernig ég ætl­aði að haga mínu lífi. Það skipti engu máli. Ég hafði aldrei neina stjórn fyrr en pen­ing­ur­inn var búinn. Þá átti ég ekk­ert allan mán­uð­inn og svo gerði ég þetta allt aftur. Byrjaði alltaf á núll­inu. Alveg stór­merki­legt.“

Þetta segir Óskar Steinn Gestsson, 46 ára gam­all Kópa­vogs­búi sem glímdi við spilafíkn í 25 ár. Ungur varð hann mjög óheið­ar­legur og þegar hann komst á botn­inn í sinni spilafíkn var hann búinn að ein­angr­ast algjör­lega. Fjöl­skyldan vildi ekk­ert með hann hafa, hann missti vini út af lygum og prettum, var heim­il­is­laus og alls­laus.

Í dag er hann í bata. Hann á langt í land, á eftir að vinna mikið í sjálfum sér en finnur ekki jafn sterka þörf til að spila eins og áður.

Óskar Steinn er í við­tali við Lokum.is. Lokum er árvekni­her­ferð sem hefur það mark­mið að leiða íslensku þjóð­ina í allan sann­leik­ann um hve skað­leg fíkn í spila­kassa er, sem og að þrýsta á stjórn­völd að loka spila­kössum á Íslandi til fram­búðar.

Stal veski 12 ára

Óskar hefur búið í Kópavogi síðan hann var krakki og fékk ungur vinnu við að bera út og sópa bíla­kjall­ara. Tólf ára gam­all var hann far­inn að fá reglu­lega útborgað og þá hófst fiktið í spila­köss­unum. Fyrst um sinn var aðeins um fikt að ræða. Sára­sak­laust. Sak­leysið hvarf áður en langt um leið.

„Ég á mjög sterka minn­ingu frá því ég var tólf ára. Ég lá á stofu á spít­ala með strák sem ég þekkti. Ég lá þar í þrjá daga og fékk að fara heim en dag­inn eftir fór ég í heim­sókn til stráks­ins. Mamma hans var líka í heim­sókn og þegar hún sneri sér við stal ég vesk­inu hennar. Þetta er það fyrsta óheið­ar­legra sem ég gerði.

Ég man að ég fór með fimm þús­und kall­inn úr vesk­inu hennar í sjoppu sem var þá á Neðstutröð og eyddi honum í spila­kassa. Auðvitað komst strax upp hver stal vesk­inu því það kom eng­inn annar til greina. Þegar ég kom heim úr sjopp­unni varð allt vit­laust út af þessu. Pabbi var bál­reiður út í mig,“ segir Óskar.

„Ég man alltaf skömm­ina þegar ég hitti strák­inn eftir þetta. Ég gat ekki horft í augun á honum. Kald­hæðni örlag­anna réð því að næstu tíu árin vann þessi strákur hjá Víd­eó­mark­að­inum í Hamra­borg. Lengi vel í minni spila­geð­veiki gat ég ekki farið þangað inn því ég vissi að hann var að vinna,“ bætir hann við.

Víd­eó­mark­að­ur­inn í Hamra­borg hýsir fjöl­marga spila­kassa og er í göngu­fjar­lægð frá heim­ili Óskars í Kópavogi.

Spilafíknin ágerð­ist á ung­lings­árum og fjöl­skylda Óskars botn­aði ekk­ert í þess­ari sjúk­legu fíkn í spila­kassa. Það hlyti að vera eitt­hvað að drengnum. Því trúði Óskar sjálfur. Að hann væri aum­ingi sem aldrei yrði neitt úr.

„Mér fannst ekki vera neitt jákvætt við mig. Ég hafði enga trú á mér og fór á vissan hátt að lifa eftir því. Því varð auðveldara og auðveldara fyrir mig að einangrast og fara í spilakassa. Ég var svo brotinn inni í mér að ég taldi eigendur sjoppanna vera vini mína því þeir yrtu á mig.“

Stal fermingarpeningum systur sinnar

Óheið­ar­leik­inn sem fylgir spilafíkn magn­að­ist upp í Óskari og þegar hann var sautján ára gerði hann svo­lítið sem sumir myndu telja ófyr­ir­gef­an­legt.

Óskar segir mik­inn óheið­ar­leika fylgja spilafíkn. „Yngri systir mín fermd­ist og ég stal ferm­ing­ar­pen­ing­unum hennar, sem á þeim tíma voru fimm­tíu til sex­tíu þús­und. Ég tók ekki allt í einu heldur stal smátt og smátt. Í sjálfs­blekk­ing­unni á þeim tíma hélt ég að ég gæti unnið, tekið út vinn­ing­inn og skilað pen­ing­unum áður en þetta kæm­ist upp. En kass­inn étur alltaf allt saman.

Mynd/Pixabay

Þetta komst síðan auð­vitað upp því það kom eng­inn annar til greina. Alltaf þegar eitt­hvað hvarf beindust spjótin að mér og fólk fór fljótt að hætta að treysta mér,“ segir Óskar og bætir við að hann eigi enn eftir að gera upp þetta atvik að fullu með yngri systur sinni, þó sam­band þeirra sé gott í dag.

Frá átján ára aldri og fram til 24 ára breytti Óskar um vina­hóp. Sá hópur hafði engan áhuga á spila­kössum og á þeim tíma spil­aði Óskar minna. Hann spil­aði þó, sem gerði það að verkum að vin­irnir fjar­lægð­ust hann alltaf meira og meira.

„Ég byrj­aði að ljúga og lygarnar náðu mér alltaf á end­anum. Maður heldur þessu ekki leyndu. Maður heldur að eng­inn viti neitt en auð­vitað vita allir hvað er í gangi.“

Geðveikin út úr korti

Upp úr 24 ára aldri tók við hörð spila­kassa­spilun þar sem Óskar spil­aði frá sér allt í Gull­námunni þar til hann varð 33 ára.

„Frá 24 ára til 33 ára þá keypti ég ekki eina ein­ustu flík. Einu fötin sem ég átti var það sem mamma gaf mér á jól­unum. Ég bjó hjá for­eldrum mínum og gat ekki séð um sjálfan mig. Ég vann og var með tekjur en þær fóru allar í spila­kassa. Fljót­lega setti ég upp kerfi með móður minni þar sem launin mín voru lög inn á hana. Ég var samt mjög útsmog­inn að væla út úr henni pen­inga því þetta voru jú mínir pen­ingar. Ég var algjör­lega stjórn­laus þessi níu ár. Ég var harður spilafík­ill. Ég laug, ég sveik, ég stal.“

Hann lýsir þessu tíma­bili sem bil­uðu bulli. Hann var byrj­aður að leita á net­inu að leiðum til að svindla á kass­anum og fékk brjál­æð­is­legar hug­myndir sem hann fram­kvæmdi aldrei.

„Geð­veikin var út úr öllu korti. Ég lifði í núvit­und en ekki í vit­und. Ég lifði í móment­inu. Það var ekk­ert á morgun eða á eftir,“ segir Óskar og rifjar upp eitt eft­ir­minni­legt atvik. „Ég var að vinna við að leggja Epoxy gólf sem er erfið vinna en vel borguð. Ég fékk útborgað 23. des­em­ber og átti þá eftir að kaupa allar jóla­gjafir. Ég fékk 378 þús­und krónur útborg­aðar, kláraði allan pen­ing­inn í spila­kössum sama dag, hringdi svo í vinnu­veit­and­ann og bað um 100 þús­und krónur í við­bót. Sá pen­ingur klárað­ist líka í spila­kass­anum. Ég borð­aði ekk­ert allan dag­inn út af spennu því ég vissi að ég væri að fara fá útborgað. Ég tap­aði öllum pen­ing­unum í spila­kössum niður í bæ og labb­aði upp í Kópavog.“

Þá kom von

Stuttu eftir 33ja ára ald­ur­inn missti fjöl­skyldan þol­in­mæð­ina og Óskar var heim­il­is­laus. Hann svaf á sóf­anum hjá vini sínum og eitt kvöld áttu þeir vin­irnir sam­tal sem öllu breytti.

„Hann tók eftir því að þegar að voru nokkrir dagar í mán­aða­mót þá varð ég alltaf mjög spenntur. Hann spurði mig af hverju ég væri svona spenntur og upp­stökkur. Þá kvikn­aði ljós hjá mér og ég sagði við hann:

Ég er svo kvíð­inn því ég er að fara að fá útborgað.

Út af spilafíkn­inni? spurði hann.

Ég ját­aði.

Þá spurði hann mig:

Óskar, ertu ekki búinn að styrkja þessi sam­tök alveg nóg? Er ekki fullt af hlutum sem þú þarft að gera fyrir sjálfan þig?

Við spjöll­uðum saman allt kvöldið og hann bað mig um að skrifa niður fimm hluti sem ég þurfti eða lang­aði í. Við ákváðum að þegar ég fengi útborgað myndum við fara í Kringl­una saman og kaupa þessa hluti og ég mætti síðan eyða afgang­inum í spila­kassa. Við gerðum þetta og mér fannst ofboðs­lega gott að hann studdi mig í þessu.

Ég keypti nýja skó, buxur, úlpu og eitt­hvað fleira. Síðan fór ég í spila­kassa og átti fjöru­tíu þús­und krónur sem ég gat eytt. Ég eyddi tutt­ugu þús­und krónum en tímdi ekki að eyða rest­inni. Þá kvikn­aði von. Eitthvað sem ég ákvað að halda í,“ segir Óskar.

Hann hélt upp­teknum hætti næstu mán­uði, kom á sam­bandi við for­eldra sína og flutti aftur heim. Það tók hann sex mán­uði að hætta að spila og síðan eru liðin níu ár. Á þessum níu árum hefur hann spilað þrisvar sinnum og á langt í land í sjálfs­vinnu er varðar spilafíkn. Hann glímdi líka við áfeng­is­fíkn og er því virkur innan AA sam­tak­anna.

„Því meira sem ég vinn í sjálfum mér varð­andi áfeng­is­fíkn­ina því meira sé ég að spilafíknin er lok­aður kafli sem ég þarf að opna. Alveg sama hve sárs­auka­fullur þessi kafli verður þá verð ég aldrei heill fyrr en ég fletti hverri ein­ustu blað­síðu,“ segir Óskar.

Hann telur ekki póli­tískan vilja til að loka spila­kössum en er á þeirri skoðun að það þurfi að setja upp ein­hvers konar kerfi hér á landi í kringum þessa starf­semi.

„Auðvitað myndi ég vilja loka þessu en við búum í nútíma­sam­fé­lagi. Almennt séð er ég á móti því að banna hluti. Ef fólk ætlar sér að spila þá fer það að spila. Það er mjög gott að halda áfram for­vörnum og best væri ef hægt væri að búa til kerfi líkt og öll Norð­ur­löndin hafa gert. Í Noregi eru spila­kort þar sem hægt er að sjá nákvæm­lega hverju hefur verið eytt af því.

Ég held að það væri áhrifa­ríkt líka að hand­hafar kort­anna fengju yfir­lit á þriggja mán­aða fresti. Þetta kerfi yrði að vera opin­bert því ég treysti ekki einka­að­ilum til að reka þetta. Ég er einnig þeirrar skoð­unar að þeir sem fara í með­ferð við spilafíkn ættu að fara í tveggja ára bann í spila­kössum.“

Bjarni er í við­tali við Lokum.is. Lokum er árvekni­her­ferð sem hefur það mark­mið að leiða íslensku þjóð­ina í allan sann­leik­ann um hve skað­leg fíkn í spila­kassa er, sem og að þrýsta á stjórn­völd að loka spila­kössum á Íslandi til fram­búðar. Hér má lesa fleiri sögur.

Hér má lesa fleiri slá­andi sögur á LOKUM.IS og á Facebook-síðu þeirra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina