Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Bónus, Krónan og Nettó hafna afsláttarkortum fyrir neytendur: „Álagningin er í algeru lágmarki

Lág­vöru­versl­an­irnar Bónus, Krónan og Nettó hafna allar þeim mögu­leika að taka upp afslátt­ar­kerfi fyrir við­skipta­vini sína. Slík kerfi, til að mynda í formi svo­kall­aðra Cash-back korta, eru orðin algeng á norð­ur­lönd­unum. Ástæðuna fyrir því að taka þau ekki upp hér segja búð­irnar vera lága vöru­á­lagn­ingu nú þegar.

Neyt­endur eyða stórum hluta inn­komu sinnar í mat­vöru­versl­unum. Að vera með­vit­aður um verð­lag versl­ana, þjón­ustu og áherslur þeirra er ákaf­lega mik­il­vægt. Að veita versl­unum aðhald er einnig mjög mik­il­vægt.Verðlag er nokkuð sem skiptir neyt­endur miklu máli og geta spar­ast tölu­verðar upp­hæðir með því að fylgj­ast með verð­lagi versl­ana og til­boðum. Annað sem sífellt fleiri líta til er það hvort versl­anir séu umhverf­is­vænar og áherslur þeirra og mark­mið varð­andi mál­efnið. Minnkun mat­ar­só­unar og minnkun á plast­um­búðum er nokkuð sem er mikið í deigl­unni. Þjón­ustan sem veitt er skiptir auð­vitað miklu máli líka.

Mannlíf setti sig í sam­band við þrjár versl­anir sem gefa sig út fyrir að vera lág­vöru­verðs­versl­anir, Krónuna, Bónus og Nettó. Grennsl­ast var fyrir um nokkur atriði. Fyrir svörum sátu Hjördís Elsa Ásgeirs­dóttir mark­aðs­stýra Krónunar, Guð­mundur Mart­eins­son fram­kvæmd­ar­stjóri Bónus og Hallur Geir Heið­ars­son rekstr­ar­stjóri Samkaupa/Nettó.

Engin af verslununum hefur hug á að taka upp afsáttarkerfi fyrir viðskiptavini

Mannlíf: Stendur til, eða hefur verið til umræðu að taka upp svokölluð Cash-back kort sem eru að verða algeng­ari í mat­vöru­búðum, meðal ann­ars á Norð­ur­lönd­unum. Kortin eru þess eðlis að við­skipta­vinur safnar ákveð­inni upp­hæð inn á kortið í hvert sinn sem hann verslar og getur svo borgað með því þegar hann kýs að gera það.

Krónan: Bjóðum ekki upp á punkta eða vild­ar­kort heldur er ein­blínt á lágt verð fyrir við­skipta­vini, alla daga.

Bónus: Við­skipta­vin­ur­inn fær afsláttin strax þar sem álagn­ing Bónus er í algeru lág­marki.

Nettó: Við erum sífellt að þróa nýjar lausnir við­skipta­vinum til hags­bóta. Síðustu ár höfum við boðið upp á nýj­ungar eins net­verslun Nettó og einnig horfum við til þess sem kollegar okkar í nágranna­lönd­unum eru að gera.

Frábært framtak en þarfnast umbóta svo neytendur geti nýtt sér matvælin

Mannlíf: Hverjar eru regl­urnar/við­miðin hjá versl­un­inni varð­andi það hvenær mat­væli eru sett á lækkað verð. Það vill brenna við að mat­vælin séu orðin ónýt, sér­stak­lega græn­meti og ávextir.

Krónan: Starfs­menn á gólf­inu í versl­unum okkar taka ákvörðun um hvenær lækka eigi vörur. Notað er sér­stakt kerfi í hand­tölvum sem starfs­menn nota í ferl­inu. Ónýtar mat­vörur eiga ekki að fara í sölu á lækk­uðu verði, heldur eiga þær að fara í líf­rænan gám.

Bónus: Frá upp­hafi hefur Bónus selt vörur með stuttan líf­tíma á afslætti til þess að bjarga verð­mætum og minnka mat­ar­sóun. Varðandi ávexti og græn­meti þá er það útlit vör­unar sem notað er sem mæli­kvarði á það hvenær henni er pakkað í afslátt­ar­um­búðir. Sem dæmi má nefnaað Bónus seldi seldi tæp­lega 200.000 slíka poka í fyrra. Því miður er það oft þannig að gæðin halda áfram að minnka eftir að vör­unni hefur verið pakkað.

Nettó: Verk­efnið ,,minni sóun“ snýr að því að minnka mat­ar­sóun með því að bjóða við­skipta­vinum okkar upp á lækkað verð á vörum sem nálg­ast síð­asta sölu­dag. Með þessu viljum við minnka kolefn­is­fót­spor af starf­semi okkar. Viðmiðin eru þrepa­skipt þannig að ef um ferskvöru er að ræða (t.d. kjöt eða fisk), gefum við 20 pró­sent afslátt þegar tveir dagar eru eftir af líf­tíma vör­unnar, 30 pró­sent afslátt ef einn dagur er eftir og 50 pró­sent ef varan er á síð­asta sölu­degi. Hvað aðrar vörur varðar er 20 pró­sent afsláttur gef­inn þegar vara á mánuð eftir í líf­tíma, 30 pró­sent afsláttur þegar tvær vikur eru eftir og 50 pró­sent afsláttur þegar vika er eftir af líf­tíma vöru.

Bylting á mat­vöru­mark­aði, nýj­ungar í mat­ar­só­un­ar­kerfi og gagn­virkar hillu­merk­ingar

Mannlíf: Er versl­unin með ein­hverjar nýj­ungar á leið­inni til hags­bóta fyrir neyt­endur ?

Krónan: Við vorum að ljúka við inn­leið­ingu á sér­merk­inga vara á verð­hillu­miðum. Við­skipta­vin­ur­inn getur með þessu ekki bara séð verðið á vör­unni heldur fleiri upp­lýs­ingar sem hjálpa honum. Nú er hægt að sjá hvort varan er vegan, umhverf­is­vottuð, inni­haldi ofnæm­is­valda og svo fram­vegis. Að auki geta við­skipta­vinir notað Krónu­appið og skannað verð­hillu­mið­ann á hvaða vöru sem er og séð hvort hún henti matar­æði þeirra.

Bónus: Varðandi nýj­ungar í mata­só­un­ar­verk­efni versl­ana okkar má geta þess að tekin voru upp svokölluð data­bar strik­a­merki á kjöt­vörur (allur ferskur kjúklingur) sem virkar þannig að dag­inn fyrir síð­asta sölu­dag kemur sjálf­virkur 30 pró­sent afsláttur á vör­una við kass­ann. Á síð­asta sölu­degi kemur 50 pró­sent afsláttur. Þannig hjálpa neyt­endur okkur að tak­marka rýrnun og minnka mat­ar­sóun. Nú þegar eru tveir ferskvöru­birgjar komnir með okkur í verk­efnið og fleiri koma á næstu mán­uðum.

Nettó: Við munum á næstu vikum kynna nýj­ung í þjón­ustu okkar til við­skipta­vina, sem verður bylt­ing á mat­vöru­mark­aði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við