Undanfarið hefur nokkuð borið á því í Grafarholti að bílum sé ekið eftir göngustígum hverfisins. Íbúar eru skiljanlega skelkaðir og afar ósáttir. Þeir segja þetta gerast ítrekað og mikil hætta hafi skapast. Í gærkvöldi var Steinunn Birna, íbúi við Andrésarbrunn í Grafarholti, á gangi ásamt hundinum sínum á göngustíg nærri heimili þeirra þegar bíll kom æðandi á móti þeim og mikil mildi að hann hafi ei ekið á þau: „Hann keyrði næstum á mig og hundinn minn. Mér brá svo mikið að ég sló í gluggann hjá honum, en hann stoppaði ekki bílinn heldur keyrði bara burt,“ segir Steinunn. Hún segir jafnframt: „Maður á ekki að þurfa horfa eftir bílum á göngustígum.“
Þetta er ekki eina atvikið þar sem litlu mátti muna að slys yrði og vilja íbúar að eitthvað sé gert til að stöðva þennan ólöglega akstur: „Það verður ekki tekið til baka ef eitthvað gerist,“ segir Steinunn.
„Það verður ekki tekið til baka ef eitthvað gerist“
Atvikin hafa öll átt sér stað í kringum blokkir stúdentagarða Byggingafélags námsmanna í hverfinu. Svo virðist sem skortur sé á bílastæðum þar vegna framkvæmda við stúdentagarðana. Hafa sumir íbúar stúdentagarðanna gripið til þess að nýta göngustíga sem akstursleið til að stytta sér leið yfir í næstu götur til að finna þar bílastæði. Aðrir leggja alveg upp við húsið þar sem ekki er bílastæði, heldur gönguleið og hindrar það aðgengi sjúkrabíla.
Byggingarverktakinn hefur tekið yfir um helming bílastæðanna og hefur BN útbúið annað stæði fyrir íbúana sökum þess, en það stæði er ekki nógu stórt og eru íbúarnir því í vanda hvar þeir eigi að leggja bílum sínum. „Þegar haft er samband við BN benda þeir á að hafa samband við lögregluna og láta sekta þá sem lagt hafa ólöglega,“ segir Steinunn. Það leysir því miður ekki bílastæðaskortinn, en þegar blaðamaður hafði samband við BN vildu þau ekki tjá sig um málið.































Athugasemdir