Hulda Björg Jónsdóttir, lögmaður og dóttir Jóns Steinars Gunnlaugssonar, segir í pistli sem hún skrifar á Facebook hafa fengið nóg af því að látið sé sem faðir hennar sé einhvers konar stuðningsmaður kynferðisbrotamanna. Hún segir hann hafa óbeit á slíkum brotum enda góður og heiðarlegur maður.
„Mikið er það nú orðið þreytt þegar fólk heldur því fram að faðir minn sé e-r sérstakur tals- eða stuðningsmaður kynferðisbrotamanna hérlendis. Fólk sem heldur slíku fram opinberar um leið eigin fávisku því þetta gæti ekki verið fjær sanni. Hann hefur óbeit á slíkum brotum og hefur fulla samúð með fólki sem lendir í slíkum hræðilegum brotum,“ segir Hulda.
Hún segir Jón Steinar einungis vilja fyrirbyggja að saklaust fólk endi í steininum. „Það sem hann er eingöngu að benda á er að dómstólar falla oft í þá gryfju í slíkum málum að sakfella menn án þess að fullnægjandi sönnur hafi verið færðar fyrir sekt þeirra, umfram skynsamlegan vafa eins og áskilið er í lögum. Við höfum ákveðið að í sakamálum skuli reglan um “sakleysi uns sekt sannast” gilda. Þetta höfum við gert til að reyna að fyrirbyggja það að saklaust fólk lendi í fangelsi,“ segir Hulda.
Með þessu sé hann ekki að segja neitt um sakleysis viðkomandi. „Þegar faðir minn er að gagnrýna tiltekna dóma með þessum hætti þá er hann þó ekki að segja um leið að sakborningur máls hafi saklaus verið dæmdur sekur. Hann veit ekkert um það hvort sakborningur sé saklaus eða ekki, ekki frekar en við hin. Hann vill eingöngu hafa þessa grundvallarreglu okkar í heiðri um að sekt þurfi að vera hafin yfir skynsamlegan vafa, þar sem við erum annars komin á mjög hættulegar slóðir og hættan á því að saklaust fólk fari í fangelsi eykst til muna,“ segir Hulda.
Hún spyr svo hvernig fólk vilji hafa þetta. „Finnst þessu fólki að reglan ætti að vera á hinn veginn? Sekt uns sakleysi sannast? Hvernig myndi það líta út? Myndi það samrýmast 2. mgr. 70. gr. stjórnarskrár okkar sem segir að hver sá sem borinn sé sökum um refsiverða háttsemi skuli talinn saklaus þar til sekt hans hefur verið sönnuð?,“ spyr Hulda.
Hún víkur svo máli að ummælum Jóns Steinars um að þolendur Robert Downey ættu að fyrirgefa honum. Þau ummæli fóru illa í þolendur. „Hvað varðar svo ummæli hans á sínum tíma um að þolendur kynferðisofbeldis ættu að fyrirgefa brotamönnum sínum þá er í raun óþolandi að horfa upp á það hvernig það hefur verið tekið úr samhengi og látið líta út sem hann sé e-r stuðningsmaður slíkra ofbeldismanna. Í bókinni “lífsreglurnar fjórar – viskubók Tolteka” er vikið með ágætum hætti að fyrirgefningu þeirra sem þurft hafa að þola ranglæti:
,,Hugarástand plánetunnar er sjúkt og mannfólkið er haldið sjúklegum ótta. Einkenni sjúkdómsins eru tilfinningarnar sem fólk þjáist af; reiði, hatur, sjálfsvorkunn, öfund og svik. Þegar óttinn verður yfirþyrmandi hættir hinn rökræni hugur að starfa rétt og við köllum það geðveilu. Geðveikur maður verður til þegar hugurinn er orðinn svo óttasleginn og sársaukinn sem sárið veldur svo yfirþyrmandi að eina leiðin til að sefa sársaukann virðist vera að rjúfa tengslins við hinn ytri heim.
Ef við getum litið á hugarástand okkar sem sjúkdóm, verður okkur ljóst að það er til lækning við honum. Við þurfum ekki lengur að þjást. Fyrst þurfum við að nota sannleikann til að opna tilfinningasárin, hreinsa úr þeim eitrið og hlú að þeim svo þau nái að gróa. En hvernig er þetta framkvæmanlegt? Við verðum að fyrirgefa þeim sem okkur finnst hafa gert á hlut okkar, ekki vegna þess að þeir eigi það endilega skilið, heldur því við elskum okkur svo mikið að við viljum ekki halda áfram að gjalda fyrir óréttlætið. Fyrirgefningin er eina leiðin til þess að læknast. Við getum valið að fyrirgefa því við finnum til samúðar gagnvart okkur. Við getum sleppt tökum á gremjunni og lýst yfir: ,,Nú er nóg komið! Ég vil ekki lengur vera dómarinn sem vinnur markvisst gegn sjálfum sér. Ég vil ekki lengur níðast á mér og misþyrma mér. Ég vil ekki lengur vera fórnarlamb.”
Hún segir þetta hafa verið það sem Jón Steinar átti við. „Þetta er nákvæmlega það sem pabbi var að meina þegar hann sagði þetta, þ.e. að fólk eigi að fyrirgefa, sjálfs síns vegna. Þetta kom einnig ágætlega fram í viðtali við Björn Hjálmarsson sérfræðilækni á BUGL á dögunum þar sem hann ræddi um hræðilegan sonarmissi sinn og hvernig hann fyrirgaf þeim sem urðu syni hans að bana með voveiflegum hætti og öðlaðist þannig innri ró,“ segir Hulda.
Að lokum segist hún ætla að fyrirgefa þeim sem kalla hann hræðilegan mann. „Faðir minn er góður og heiðarlegur maður og það vita allir sem hann þekkja. Það er óþolandi að þurfa sífellt að horfa upp á það að hann sé vændur um að vera þessi hræðilegi maður sem styðji við ofbeldismenn. Það gerir hann ekki, hann vill einfaldlega að kerfið okkar virki eins og það á að virka, fyrir alla. Þó það sé óþolandi og særandi fyrir mig að horfa upp á múgæsingarfólkið halda því ítrekað fram að hann sé þessi hræðilegi maður, þá hef ég samt ákveðið að fyrirgefa þessu fólki, sjálfrar mín vegna.“































Athugasemdir