Guðmundur Felix Grétarsson, sem sjálfur kallar sig handhafa eftir að á hann voru græddir nýjir handleggir í janúar, er í skýjunum yfir afahlutverki sínu. Í gær fagnaði hann 5 ára afmæli afastelpu sinnar.
Af því tilefni ritaði Guðmundur Felix sérstaka færslu á Facebook í gær, þar sem hann er duglegur að uppfæra Íslendinga um stöðu mála, með hjartnæmri kveðju og mynd af fallegri afastúlkunni. Þar segir hann:
„Ég er stoltur afi þessarar fegurðardrottningu sem er fimm ára í dag. Þetta er stórkostlegt hlutverk.“

Guðmundur Felix er sá fyrsti í heiminum til að fá grædda á sig handleggi annars manns og var það gert nákvæmlega 23 árum eftir að hann missti báða hendleggi sína í slysi. Hann er nú farinn í endurhæfingu á annað sjúkrahúsð í Lyon. Hann er því farinn af Édouard Herriot-sjúkrahúsinu í Lyon þar sem hann hefur dvalið síðastliðnar vikur eftir aðgerð.
Guðmundur Felix fagnaði á dögunum sex vikna afmæli nýju handanna sem á hann voru græddar í einstakri aðgerð á heimsvísu. Með þeim áfanga runnu hann og hendurnar formlega saman þar sem liðamót og vöðvar hafi á þessum vikum náð að græðast.































Athugasemdir