Björn Birgisson, samfélagsrýnir og Grindvíkingur, segir stanslausa skjálfta hafa talsverð áhrif á sálarlífið. Hann lýsir þessu á Facebook og segir stanslausa skjálfta hafa lúmsk áhrif á mann.
„Þreyta. Allir þessir jarðskjálftar! Hægt og bítandi smjúga þeir inn í sálartetrið. Stærri skjálftarnir – yfir 3 á Richterskvarðanum – koma allir eins og óþægileg högg hérna – við erum svo nálægt upptökunum.Síðan koma þeir minni, eins og til að halda okkur stöðugt við efnið, en á þessu svæði nemum við þá flesta,” segir Björn.
Hann segist eiga erfitt með svefn í þessu ástandi. „Ekkert upprof, engin hvíld frá þessu og móðir jörð gerir engan greinarmun á nóttu og degi hvað þetta varðar. Dagarnir taka mið af þessu – næturnar líka. Ég sofna afar seint og vakna svo allt of snemma. Sólarhring eftir sólarhring. Nætursvefninn gæti að meðaltali verið á bilinu 4 til 5 tímar,” lýsir Björn.
Hann segist til að mynda ekki hafa vaknað við vekjaraklukku í morgun. „Vaknaði rétt fyrir 9 í morgun – ekki við neinn hefðbundinn vekjara – heldur dúndurskjálfta sem batt snöggan endi á um 5 tíma svefn. Svona er þetta sólarhring eftir sólarhring. Auðvitað safnast upp þreyta, en ég á því láni að fagna að þurfa ekki að mæta reglulega til vinnu. Á meðan þessi orð voru hripuð niður hafa ekki færri en sjö skjálftar smeygt sér inn í vitundina og það er nokkuð ljóst að þar er ekki endalaust pláss fyrir þessa dynti í náttúrunni.”































Athugasemdir