„Að hafa „bara verið fyllibytta“, kemur í huga minn, þennan dag 10.3.2021. Neyslan byrjar á 15. árinu á Þjóðhátíð í Eyjum.“
Svona byrjar einlæg frásögn Guðna Friðriks Gunnarssonar um baráttu sína við Bakkus inni á síðu góðgerðasamtakanna Það er Von. Samtökin styðja fólk með fíknisjúkdóma og aðstandendur þeirra.
Guðni sem kemur frá Vestmannaeyjum, segist koma úr meðvirku og alkóhólísku umhverfi. Neysla hans jókst hratt eftir að hann fluttist til Reykjavíkur til að stunda nám við Menntaskólann í Reykjavík. Einkunnir Guðna fóru hratt niður á við og svo fór að hann féll á stúdentsprófi sínu og þurfti að endurtaka lokaárið.
Á þeim tíma var Guðni farinn að vinna með skólanum og einnig kominn í sambúð. „Og djammið bara jókst,“ fimmtudag til sunnudag var hann mættur á klúbbana.
Árið 1981 þótti þáverandi eiginkonu Guðna og fjölskyldu hans nóg komið. Hann mætti á einn fund í Rauða húsinu: „Það leið ár þangað til ég fór aftur á fund, búinn að missa stjórnina algjörlega, bílprófið farið.“
Guðni fór á Sogn og náði tæpu ári „á hnefanum,“ eins og hann orðar það áður en hann féll aftur.
Hann starfaði við að skipuleggja ferðir utanlands og var því oft erlendis. En það var ekki eina vinnan hans: „Þetta gekk svona í nær 12 ár, 100% vinna við að skipuleggja neysluna,“ segir Guðni.
Í lok ársins 1992 segist hann hafa verið kominn upp að vegg, en þó ekki hafa náð botninum. Það árið var hann fullur um jólin í fyrsta og eina skipti ævi sinnar.
Í febrúar þar á eftir fór hann í vinnuferð til Lundúna, en þá segist hann hafa verið búinn að missa alla stjórn. Guðni mætti ekki til vinnu, en yfirmaður hans þar ytra hafði áhyggjur af honum og fékk aðstoð prests í Lundúnum til að sækja hann á hótelið. Presturinn kom Guðna í flug heim til Íslands með þeim fyrirmælum til starfsfólks flugfélagsins að ekki mætti renna af honum, svo slæmt var líkamlegt ástand hans orðið.
Þegar heim var komið tilkynnti þáverandi eiginkona Guðna honum að hún vildi skilnað. Í kjölfarið fór hann inn á Vog, síðan á Vík, en fór viku áður en meðferð lauk: „Siggi vinur minn sagði mér að fara út og reyna að koma skikkan á mín mál. Seinna sagði hann mér að hann hefði gefið mér korter niður í Mosfellsbæ og þá yrði ég dottinn. Þetta korter stendur enn, mér til mikillar gæfu.“
Foreldrar Guðna komu frá Vestmannaeyjum að sækja hann og segir hann það hafi verið sín gæfa í lífinu: „En það var skrítið að vera kominn heim til pabba og mömmu 40 ára gamall.“
Guðni segist hafa ánetjast AA í eyjum og svo fljótlega kynnst konunni sinni sem hefur nú verið stoð hans og stytta í nær 28 ár ásamt stelpunum hennar þremur, sem síðar urðu kjördætur hans að þeirra eigin ósk.
Hægt og rólega segist Guðni einnig hafa náð blóðbörnum sínum til sín aftur. En nú á hann sex börn, sjö barnabörn og fleiri á leiðinni.
„Einn dag í einu hefur þetta runnið frekar hratt í gegn, yndislegt líf, ekkert gerðist fyrr en ég fór að hlusta og taka leiðsögn. Verið í þjónustu og stutt aðra.“































Athugasemdir