Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Garðar miðill er látinn: „Efast um að landamæri lífs og dauða muni standa mikið í vegi fyrir þér“

Garðar miðill er látinn: „Efast um að landamæri lífs og dauða muni standa mikið í vegi fyrir þér“

Garðar Jónsson er lát­inn eftir snarpa bar­áttu við krabba­mein. Hann var ein­ungis 55 ára gam­all. Hann var meðal þekkut­ust miðla Íslands í seinni tíð. Garðar starf­aði einnig við ýmis önnur störf svo sjó­mennsku, smíðar og örygg­is­mál. Hann var rekstr­ar­stjóri Þör­unga­verk­smiðj­unnar á Reyk­hólum og síð­ustu árin örygg­is­stjóri flug­skýlis hjá Icelandair í Keflavík. Garðar verður bor­inn til grafar í Akra­nes­kirkju síðar í dag og því minn­ast hans margir í Morg­un­blað­inu.

Sigurður Bjarna­son, vinur hans, efast ekki um að hitta hann aftur í Sum­ar­land­inu en þangað til muni hann sakna hans mikið. „Hann var stór per­sónu­leiki og ætl­aði sér stóra hluti í öllu sem hann tók sér fyrir hendur. Og hann gerði það. Það sem hann fram­kvæmdi og áork­aði í and­legum málum á Íslandi voru ekki fót­spor neins með­al­manns. Og eins og ég trúi öllu því sem hann leið­beindi og fræddi mig og svo ótal­marga aðra um and­leg mál, þá trúi ég því líka að maður eins og Garðar Jónsson fái ekki að sitja lengi verk­efna­laus í Sum­ar­land­inu,“ segir Sigurður og bætir við að lokum:

„Satt að segja von­ast ég til að hitta þig sem fyrst aftur Garðar minn, því ég efast um að landa­mæri lífs og dauða muni standa mikið í vegi fyrir þér. Vertu sæll í bili vinur minn, og ég vona að fram­halds­lífið taki þig blíð­ari tökum en lífið gerði,“ skrifar Sigurður.

Vinafólk hans, Sigríður og Ásmundur í Arkarlæk, rifja upp í minn­ing­ar­grein hvernig hann hóf fer­il­inn sem mið­ill. „Kynni okkar Garðars mið­ils og sam­starf hófst fyrir um þrjá­tíu árum. Það byrj­aði með því að sest var saman í hring með góðu og traustu fólki sem hafði það að mark­miði að þjálfa ungan upp­renn­andi miðil, sem óx og þroskað­ist eftir því sem árin liðu. Eftir margra ára þjálfun í hring var farið af stað út fyrir þæg­ind­ara­mmann og tek­ist á við verk­efnið. […] Þetta þró­að­ist allt með mik­illi vinnu, reynsl­unni og árunum. Þeir eru ótelj­andi trans­fund­irnir sem haldnir hafa verið til að leið­beina, hugga og hjálpa fólki,“ segja þau.

Sigríður og Ásmundur segja að hann hafi verið einna sterkastur í lækna­miðlun. „Lækna­miðl­unin var einn af sterkum þáttum í starfi hans og ófáar beiðnir og fyr­ir­bænir sem voru sendar og beðið um hjálp sem var alltaf sjálf­sagt mál að lið­sinna um eins og hægt var. […] Var sú sam­vinna og umhyggja kær­leiks­rík og góð, sem skil­aði sér til nem­end­anna. Þessi tækni hefur rutt sér til rúms vegna þess hversu bein­skeytt hún er til hjálpar fólki.“

Norð­maður nokkur, Wayne Faaland, virð­ist meðal þeirra sem Garðar hjálp­aði. Hann skrifar: „Ég hafði miklu ánægju af því að vinna með og kynn­ast Garðari. Hann var mjög trúr, áhuga­samur og skap­andi per­sóna. Hann hjálp­aði mér gíf­ur­lega við að inn­leiða og þróa EBS-hugsun (end­ur­bóta- og krítíska hugsun) í verk­smiðj­unni á Grund­ar­tanga og fékk aðra til að hugsa um hvernig hægt væri að betrumbæta þáver­andi ástand. Ég hugsa með hlýju til Garðars og hef ávallt álitið hann mjög góðan vin. Megi hann hvíla í friði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina