Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Sparaðu þér svimandi háar upphæðir – Leigðu það sem þig vantar

Sparaðu þér svimandi háar upphæðir – Leigðu það sem þig vantar

Það er hægt að spara stórfé með því að kaupa sér aðgang að Muna­safni Reykja­víkur. Verk­efnið er nokkuð sem engin umhverf­is­sinni ætti að láta fram­hjá sér fara. Safnið hefur verið starf­rækt á Íslandi í þrjú ár. Þar er hægt að leigja verk­færi, slátt­ur­vélar, hræri­vél, popp­vél, köku­form, hita­brúsa, auka rúm ef gest ber að garði, borð, ýmis­legt fyrir afmæli, veislu­búnað og fleira. Margt annað er í boði eins og aðgangur að verk­færum, vinnu­að­staða og hönn­uðir geta fengið að vera viku í senn með sínar vörur. Þetta er þó ekki það eina því starf­semin er ótrú­lega fjöl­breytt.  Mannlíf leit í heim­sókn á Munasafn Reykja­víkur á dög­unum.

 Munasafn Reykja­víkur

Að Laug­ar­vegi 51 er mjög áhuga­verð starf­semi sem ber nafnið Munasafn Reykja­víkur/Reykja­vík Tool libr­ary. Muna­safnið virkar nákvæm­lega eins og bóka­safn, nema leigð eru út verk­færi og ýmis­legt annað í stað bóka. Þú kaupir áskrift annað hvort eitt ár eða hálft ár á mjög sann­gjörnu verði og þú getur byrjað að nýta þjón­ust­una. Stofn­andi safns­ins og starf­sem­innar í kringum það er Anna Carolina W De Matos, hún er 34 ára og er upp­runa­lega frá Brasilíu. Það er mik­ill kraftur í henni og hún hefur jákvæða sýn á lífið. Hún sá fljót­lega, eftir að hún flutt­ist til Íslands, að ekk­ert þessu líkt væri hér á landi. Önnu þótti það miður, ver­andi umhverf­is­vernd­ar­sinnuð mann­eskja Hún sló þá til og hóf þessa  þriggja ára veg­ferð.

Anna Carolina W De Matos

Hringrásarsetur – Samfélagslegt verkefni

Muna­safnið sem var opnað árið 2018, er sam­fé­lags­verk­efni og er ekki rekið í ágóða­skyni. Hug­myndin er að safnið verði sjálf­bært. Fjár­magnið kemur frá með­lima­á­skriftum, hóp­fjár­mögn­unum, styrkjum og frjálsum fram­lögum. Þetta safn er hið eina sinnar teg­undar á Íslandi. Hægt er að spara tölu­verðar fjár­hæðir, hvort sem fara á í fram­kvæmdir á heim­il­inu, garð­inum, sinna áhuga­málum, halda veislu, ferð­ast og margt annað. Það stendur til að breyta starf­sem­inni alfarið í frjáls félaga­sam­tök og er komið nafn á sam­tökin,  Hringrás­ar­setur. Hringrás­ar­setrið mun halda utan um alla starf­sem­ina, Muna­safnið, Redd­inga­kaffi og Hringrás­ar­safnið.  Það er trú Önnu að verk­efnin munu með þessarri breyt­ingu verða sýni­legri, meira tekið eftir þeim og þau fái þann stuðn­ing sem þau telja sig eiga skilið. Safnið er rekið eftir hug­mynda­fræði Hringrás­ar­kerf­is­ins og slag­orðið er: Við trúum því að við séum rík­ara sam­fé­lag ef við deilum hlutum.

Á safn­inu er hægt að finna ótrú­leg­ustu hluti
Hluti af verk­fær­unum sem fást til útláns

DIY Miðstöð

Muna­safnið er alls ekki það eina sem starf­semin hefur upp á að bjóða. Á neðri hæð­inni er DIY mið­stöð, prýði­leg aðstaða sem fólk getur haft aðgang að. Þar er að finna verk­færi og ýmis­legt annað, stærri verk­færi, sagir og þess háttar. Þar eru einnig borð sem hægt er að sitja við krefj­ist verk­efnið sem við­kom­andi vinnur að,  þess. Þegar Mannlíf bar að garði var þar strákur að vinna að flottu verk­efni, en hann er nýút­skrif­aður sem húsa­smiður, en hefur enga aðstöðu né fjár­magn og aðgangur að aðstöðu og verk­færum á mjög sann­gjörnu verði skiptir hann öllu máli. Þeir sem eru að stíga sín fyrstu skref í hand­veki eru einnig vel­komnir. Þessi hluti starf­sem­innar hefur raskast tölu­vert vegna Covid en það hefur verið hægt að bóka sér tíma. DIY mið­stöðin bíður upp á ótelj­andi mögu­leika. Meðlimir getað komið og notað þyngri og stærri verk­færi en fólk almennt er með heima fyrir.

Allt í boði hjá DIY mið­stöð­inni
Partur af vinnu­að­stöð­unni sem er í boði

Reddingakaffi

Redd­inga­kaffi/ Repair Café er síðan enn eitt verk­efnið, en það eru  við­burðir sem haldnir eru víða í Reylja­vík og von er til þess að færa út kví­arnar og koma af stað við­burðum sem þessum um allt land. Við­burðir hafa raskast vegna Covid. Þegar að þeir voru í gangi segir Anna að tek­ist hafi að bjarga 642 kílóum af efni­við, hjólum, fötum, raf­tækjum og fleiru frá því að enda í land­fyll­ingu. Hjá okkur starfa lag­hentir og fjöl­hæfir sjálf­boða­liðar sem geta gert við hina ýmsu hluti. Anna og fjórir aðrir nefnd­ar­með­limir hafa verið að hafa sam­band við sjál­boða­liða síð­ustu þriggja ára en það stendur til að koma Redd­inga­kaffi í gang aftur nú þegar létt hefur á tak­mörk­unum vegna covid. Von Önnu er að fara út um allt land og kynna verk­efnið og hjálpa  öllum sem vilja að koma á fót slíkum við­burði í sínum heimabæ. Vonandi fer verk­efnið í gang  á ný í apríl.

Sjálf­boða­liðar hjá Redd­inga­kaffi geta lagað allt milli him­ins og jarðar

Hringrásarsafn

Hringrás­ar­safn er verk­efni sem sam­tökin verða með í sam­starfi við bóka­söfnin á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Um er að ræða sjálfs­af­greiðslu­stöð þar sem fólk getur sjálft tekið á leigu verk­færi og þess háttar. Verk­efnið er í þróun og spenn­andi verður að sjá hvað nán­asta fram­tíð ber í skauti sér.

Hringrás­ar­safnið mun líta svona út

Aðstaða fyrir hönnuði

Hönnuðir geta fengið að vera viku í senn með vör­urnar sínar til sölu hjá Muna­safn­inu. Þannig er dyggi­lega stutt við bakið á þeim sem er frá­bært. Vikuna sem Mannlíf kíkti í heim­sókn voru skosku bræð­urnir Rik (42)og Ross McNair (25) með sína hönnun á staðnum.Rik hefur verið á Íslandi síðan 2012 og Ross síðan 2017. Þeir bræður hanna undir nafn­inu End­ur­takk, föt og fleira úr gömlum efnum. Það geta verið teppi, gard­ínur og bara hvaða efni sem er, allt gam­alt og end­ur­unnið í fal­legan fatnað og fleira. Ross var klæddur fal­legri peysu saum­aðri úr teppi frá Icelandair.

Hönn­uð­irnir Rik og Ross
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina