Tillaga UMFK um að kynjablanda í keppni upp í 9. flokk var felld á ársþingi KKÍ nú fyrr í dag. Kosið var um tvær breytingartillögur og voru þær báðar felldar ásamt upprunalegri tillögu UMFK.
Karfan.is greinir fyrst frá.
Skiptar skoðanir voru á tillögunni en samkvæmt körfunni báðu margir um orðið. Einhverjir gerðu athugasemd við að tillagan væri óbreytt frá síðasta þingi og spurt hví hafi ekki verið unnið með tillöguna á milli þinga.
Aðrir voru hlynntir tillögunni og bentu á að kynjablönduð keppni hafi tíðkast víða í gegnum árin og væri hjá fámennari liðum forsenda fyrir því að ná í lið.
Sjá einnig: „Niðurlægjandi fyrir stráka að tapa fyrir stelpum?“
Upprunaleg tillaga UMFK sem var felld var svo hljóðandi:
„Mótanefnd KKÍ getur leyft keppni liðs í Íslandsmóti sem er annaðhvort kynjablandað eða skipað leikmönnum af gagnstæðu kyni frá minnibolta 10 ára upp í 9. flokk. Slíkt leyfi verður aðeins veitt ef félag sem óskar eftir að senda slíkt lið til keppni hefur sent inn rökstutt erindi til mótanefndar þar sem félagið hefur rökstutt með fullnægjandi hætti að mati mótanefndar að ástæða sé til að veita slíkt leyfi að teknu tilliti til meðal annars getu og/eða framþróunar liðs og/eða leikmanna sem sótt er um fyrir. Ef sótt er um slíkt leyfi fyrir lið geta leikmenn þess almennt ekki keppt bæði í flokki karla og kvenna en þó er það mögulegt ef um er að ræða tilfærslu á einstökum leikmönnum á milli liða. Blönduð lið eða lið af öðru kyni geta keppt á öllum mótum í tilteknum flokki nema í úrslitamótum þar sem endanlega er keppt um Íslandsmeistaratitil. Hafi slíkt lið áunnið sér sæti á slíku móti skal færa upp það lið sem næst kemur að stigum fyrir úrslitamót. Leyfi mótanefndar samkvæmt framangreindu tekur ekki til keppni í Bikarkeppnum KKÍ.”
Önnur breytingartillagan lagði til að heimilt yrði að keppa með kynjablandað eða skipað leikmönnum af öðru kyni frá minibolta 10 ára upp í 9. flokk. Leikmenn þessir gætu þó ekki keppt bæði í sama aldursflokki drengja og stúlkna.
Breiðablik lagði einnig fram breytingartillögu að miðað yrði við 7. flokk í stað 9. flokk.
Eins og fyrr sagði voru báðar breytingartillögurnar felldar.































Athugasemdir