Birni Þorlákssyni var sagt upp starfi sem upplýsingafulltrúi Umhverfisstofnunar fyrr á árinu og var starf hans í kjölfarið lagt niður. Björn segir að uppsögnin brjóti gegn lögum og hefur ákveðið að leggja fram kæru á hendur Guðmundi Inga Guðbrandssyni umhverfisráðherra, eftir að kröfu hans var hafnað.
Fyrir hönd Björns og stéttarfélags hans, Fræðagarðs, sendi Jón Sigurðsson lögmaður Björns kröfu til forstjóra UST, Sigrúnu Ágústsdóttur, þar sem krafist var að niðurlagningu starfs Björns yrði dregið til baka og honum boðið aftur starf sitt.
Ef ekki yrði brugðist við því væri UST krafin um fébætur vegna þess fjárhagstjóns sem Björn varð óhjákvæmilega fyrir sökum starfsmissis.
Kröfunni var hafnað og því var ekki annað í boði en að fara með málið fyrir dóm segir Jón í samtali við mbl.is. Málið verður að fara í gegnum umhverfisráðherra þar sem hann fer með forsvar fyrir stofnunina fyrir dómi.































Athugasemdir