Þráinn Lárusson, athafnamaður hefur farið víða og óhætt að segja að hann hafi marga fjöruna sopið.
Hann segir meðal annars frá því hvernig honum var haldið í gíslingu á Ítalíu af ítalskri konu sem að öllum líkindum hafði tengsl í mafíuna, í hlaðvarpsþættinum 10 bestu með Ásgeiri Ólafs.
Þráinn kynntist ítalskri konu og flutti með henni til Varese á Ítalíu, sem er skammt frá Comovatni. Hann segir konuna vera af ágætis ættum og augljóst af frásögn Þráins að hún hefur verið vel efnuð: „Hún bjó í villuhverfi, en í sömu götu bjó söngvarinn í Simply Red og í næstu götu bjó Marco Van Basten,“ hollenska fótboltagoðsögnin. Svo greinilegt er að hverfið var ekkert slor.
Foreldrar hennar bjuggu einnig í glæsilegu húsi, en það var ekki það sem vakti athygli Þráins er hann kom í heimsókn til þeirra í fyrsta sinn. Inni í eldhúsi hjá þeim héngu myndir af Hitler, Mussolini og svo einum manni til viðbótar sem Þráinn ekki þekkti. Konan sagði honum svo að þriðji maðurinn hefði verið afi hennar, en hann var háttsettur flugvélahönnuður hjá Mussolini á Ítalíu. Viðvörunarbjöllur Þráins voru þá farnar að hringja.
Fljótlega varð Þráni ljóst að ekki var allt með feldu, en konan vildi stjórna honum í einu og öllu: „Ég mátti ekki gera hitt og þetta…ég var kominn í einhverja tóma vitleysu.“
Þetta gekk svo langt að konan tók af honum vegabréfið og peningana hans og læsti inni í skáp sem hann hafði ekki aðgang að. Hún hafði í hótunum við hann að hún hefði tengsl svo það borgaði sig ekki fyrir hann að reyna neitt.
Þegar hér var komið sögu þráði Þráinn ekkert heitar en að flýja. Hann komst að því hvar hún faldi lykilinn, reiknaði út hve langan tíma hann hefði til að komast úr landi meðan hún væri í vinnunni og lét svo til skara skríða.
Þráinn flúði og skyldi flestar eigur sínar eftir. Segist hann hafa verið frelsinu feginn þegar hann slapp frá Ítalíu yfir til Spánar.
Hlusta má á viðtalið við Þráinn í heild sinni hér.































Athugasemdir