Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Hannes hótar að loka landinu – Ætlar að draga fram stóru fallbyssuna ef bensín lækkar ekki

Hannes hótar að loka landinu – Ætlar að draga fram stóru fallbyssuna ef bensín lækkar ekki

Hannes Frið­riks­son, íbúi á Suð­ur­nesjum, hótar að loka Reykja­nes­braut­inni og þar með land­inu ef olíu­fé­lögin verða ekki við kröfum hans. Hann segir 40 króna munur á lægsta verði bens­íns í Reykja­vík og Reykja­nesbæ sé að setja bæj­ar­búa á haus­inn. Hannes er frægur fyrir að hafa hótað að flytja úr Reykja­nesbæ eftir að hann var sak­aður um að vera nei­kvæð­asti maður bæj­ar­ins í ann­áli á þorra­blóti Íþrótta­banda­lags Kefla­víkur árið 2014.

Hann segir í aðsendum pistli í Vík­ur­fréttum að bens­ín­málið sé enn eitt dæmi um að það halli á Suð­ur­nesja­menn.  „Á und­an­förnum hafa komið upp nokkur mál þar sem okkur á Suð­ur­nesjum hefur þótt að á okkur hafi verið hallað. Þá höfum við skamm­ast út í þing­menn okkar, ekki þótt þau vinna að hags­munum okkar sem skyldi, jafn­vel þó ljóst væri að oft væri erfitt um vik. Þegar að skömmum okkar á allt og alla hefur svo lokið höfum við gripið til stóru fall­byssunnar. Við lokum braut­inni. Sú hótun hefur byggt á því að þar með lok­uðum við flug­vell­inum um leið og áherslur okkar myndu ná eyrum ráða­manna létum við af verða,“ segir Hannes.

Hann vonar þó að und­ir­skrifta­söfnun dugi. „Í síð­ustu viku sá ég á síðum Vík­ur­frétta að hafin væri und­ir­skrifta­söfnun sem gæti haft áhrif á fjár­hag vel­flestra heim­ila á Suð­ur­nesjum. Svo mikil að hvert með­al­heim­ili á Suðu­nesjum gæti sparað jafn­virði fast­eigna­gjalda lít­illar íbúðar á ári, sé miðað við þokka­lega með­al­keyrslu. Það er því til nokk­urs að vinna,“ segir Hannes.

Hann segir Suð­ur­nesja­menn helst fá bens­ínið sitt í Costco. „For­sprakka und­ir­skrift­ar­söfn­un­ar­innar Hauki Hilm­ars­syni finnst eins og mörgum öðrum að und­ar­legt sé að sú frjálsa sam­keppni sem á sér stað á Reykja­vík­ur­svæð­inu og á Akureyri skuli ekki hafa náð til Suð­ur­nesj­anna. Í dag er rúm­lega 40 króna munur á á lægsta verði bens­íns í Reykja­vík og á Suð­ur­nesjum. Stór hluti íbúa hér velja að fylla bens­íntanka bíla sinna á svæð­inu í kringum Costco þar sem verðið er lægst. Þessu vill Haukur breyta. Hann vill að við eigum val og að sú frjálsa sam­keppni sem olíu­fé­lögin stunda í Reykja­vík og Akureyri nái einnig til Suðu­nesj­anna. En til þess að ná því fram þarf hann hjálp. Hjálp okkar kynnu að njóta ávinn­ings­ins næði hann eyrum olíu­fé­lag­anna sem hingað til hafa nýtt sér heyrna­skjól til þess að kom­ast hjá að hlusta. Á okkar kostnað,“ segir Hannes.

Svo virð­ist Hannes fá bak­þanka í lok greinar um hvort það sé gáfu­legt að loka Reykja­nes­braut­inni. „Nú er ekki í boði að hóta því að verði ekki á okkur hlut­stað verði braut­inni lokað. Til þess eru engar for­sendur sökum aðstæðna, auk þess sem það er ólög­legt. Lítil sem eng­inn flug­um­ferð er og ferða­menn fáir sem fara um völl­inn, auk þess sem aldrei hefur verið mik­il­væg­ara að halda braut­inni opinni sökum nátt­úru­váar á Reykja­nesi. Sé það þannig að okkur þyki við órétti beitt af olíu­fé­lög­unum og viljum njóta sömu kjara og íbúar Reykja­víkur og Akur­eyrar þegar kemur að verð­lagn­ingu bens­íns og olíu hlýtur leiðin að vera að fá því breytt. Okkar besta fram­lag nú hlýtur því að vera að skrifa undir und­ir­skrift­ar­lista þann sem afhenda á for­svars­mönnum olíu­fé­lag­anna allra. Skrifum undir“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina