Gunnar Smári Egilsson, stofnandi Sósíalistaflokksins, á varla til orð fyrir svindli íslenskra veitingastaða. Nærri helmingur staðanna ber fram annan fisk en auglýstur er á matseðli.
Þetta kemur fram í könnun meðal Evrópuþjóða sem Gunnar Smári gerir að umtalsefni í færslu á Facebook. Niðurstöður sýna að 48 prósent veitingastaða svindla á kúnnum sínum með því að framreiða annan fisk en auglýst er. Þetta segir Gunnar Smári:
„Þarna kemur fram að í einni könnun reyndust íslenskir veitingastaðir svindla einna mest á kúnnanum, selja þeim ódýrari fisk sem dýrari. Við erum á toppnum (eða botninum, öllu heldur) með Spáni, Finnlandi og Þýskalandi. Annars dregur þessi frétt fram að fisksala er villtur markaður þar sem svindlað er frá löndun að markaði, frá markaði að fiskvinnslu og birgja, frá búð og veitingastöðum að almenningi.“

Sagnfræðingurinn Stefán Pálsson bendir á að svipaða sögu sé að segja af steikarstöðum landsins. „Nautakjötið sem þú færð á íslenskum veitingastað er mjög líklega frá Rúmeníu. Reyndar gæti það verið öllu verra því Rúmenía þykir nokkuð gott kjötframleiðsluland, en seljendurnir þora samt ekki að setja það á matseðilinn,“ segir Stefán.
Hjalti nokkur kemur með lausnina á þessu svindli í fisksölu. „Asíubúar kaupa fisk bara með haus og öllu svo þeir viti hvað þeir eru að kaupa, líka hægt að sjá mikið um meðferðina á haus og augum,“ segir Hjalti.
Meðlimir í Facebook-hópnum Bakland ferðaþjónustunnar ræða líka svindið á veitingastöðunum. Haraldur er einn þeirra. „Því fer fjarri að ég sé blindaður af Íslandi en ég er hissa. Ég trúi varla að matreiðslumeistarar landsins eins og t.d. í Vestmannaeyjum og öðrum útgerðarþorpum landsins stundi svona vörusvik,“ segir Haraldur.
Atli hefur upplifað þetta á eigin skinni. „Fiskur og franskar… margir veitingastaðir á hringveginum eru að versla með fisk sem hefur verið forsteiktur einhversstaðar í útlöndum….túristarnir halda að þeir séu að kaupa íslenskan fisk en hann gæti allt eins verið Rússa fiskur sem er þýddur upp og brauðaður í Kína og seldur um víða veröld sem gæða fiskur en er þurr og bragðlítill….þegar ég hef spurt hvaðan fiskurinn er þá hefur orðið fátt um svör,“ segir Atli.
Topp 10 listinn yfir þau lönd sem svindla mest á veitingastöðum:
| Land | Fjöldi staða | Fjöldi þeirra sem svindluðu | Hlutfall % | |
| Spánn | 22 | 11 | 50 | |
| Ísland | 21 | 10 | 48 | |
| Finnland | 9 | 4 | 44 | |
| Þýskaland | 7 | 3 | 43 | |
| Belgía | 6 | 2 | 33 | |
| Noregur | 6 | 2 | 33 | |
| Portúgal | 17 | 5 | 29 | |
| Frakkland | 17 | 5 | 29 | |
| Rúmenía | 7 | 2 | 29 | |
| Ítalía | 12 | 3 | 25 | |































Athugasemdir