Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Smári skýtur fast á Hallgrím og Pírata: „Þið eruð ekki á leið í ríkisstjórn. Sorrí”

Smári skýtur fast á Hallgrím og Pírata: „Þið eruð ekki á leið í ríkisstjórn. Sorrí”

Gunnar Smári Egilsson, fjöl­miðla­maður og sós­í­alisti, gefur lýð­ræði innan Pírata ekki háa ein­kunn og spáir því að þeir séu ekki á leið í stjórn að kosn­ingum loknum. Innan Facebook-hóps Sós­í­alista gagn­rýnir hann flokk­inn harð­lega og Hall­grímur Helgason er ekki sáttur í athuga­semdum. 

Smári segir það afleitt hve fáir tóku þátt í próf­kjöri Pírata. „Við lifum tíma sem kalla má póst-lýð­ræði. Eftir almennan kosn­inga­rétt eftir fyrra stríð byggð­ust upp fjölda­hreyf­ingar af hags­muna­bar­áttu almenn­ings sem höfðu mót­andi áhrif á upp­bygg­ingu sam­fé­lags­ins, sáðu fræjum sem hefðu getað orðið að stoðum undir góðu sam­fé­lagi. Í dag eru flokk­arnir á þingi ekk­ert nema leik­tjöldin, gras­rót­ar­laus for­ysta á rík­is­styrkjum,” segir hann.

„Þarna kemur fram að um 900 manns muni taka þátt í próf­kjöri Pírata þar sem um 90 manns eru í fram­boði. Hver fram­bjóð­andi dregur því ekki nema tíu að kjör­borð­inu. Píratar fengu 71 m.kr. í styrk í fyrra til að örva lýð­ræðið. Það gera næstum 80 þús. kr. á hvern þann sem sýndi flokknum nægan áhuga til að kjósa í próf­kjör­inu.”

Hall­grímur Helgason rit­höf­undur skrifar athuga­semd og furðar sig á þess­ari gagn­rýni. „Afhverju ráð­ast á pirata, lik­lega besta flokk­inn á þingi, flokk sem þarf að vinna með ef takast a að mynda stjórn e kosn­ingar?,” spyr hann. 

Smári svarar fullum hálsi. „Hvað er þetta. Má ekki tala um upp­þornun lýð­ræðis í friði fyrir svona með­virkni. Hvílíkur væll. Og þessi stjórn ykkar, SPC, mun aldrei fá meira en 1/3 atkvæða. Þið eruð ekki á leið í stjórn. Sorrí,” segir Gunnar Smári og vísar þar til mögu­legrar rík­is­stjórnar Við­reisnar, Pírata og Sam­fylk­ingar. 

Einar Stein­gríms­son stærð­fræð­ingur spyr þá hvaða stjórn hann spái þá. „Hvers konar stjórn sérðu helst fyrir þér eftir kosn­ingar?,” spyr hann og því svarar Smári: “Það er allt í þoku. Það þarf að kjósa fyrst. Og það ger­ist ekki fyrr en eftir hálft ár.”

Hall­grímur segir þá að Gunnar Smári sé ekki að gagn­rýna rétta fólkið og betra væri að skjóta í rétta átt. „Hvaða átt er það, Hall­grímur? Að hía á Mið­flokk­inn og selja fólki að Við­reisn­ar­meiri­hlut­inn í borg­inni sé ein­hver raun­veru­leg and­staða Sjálf­stæð­is­flokks­ins, meiri­hluti sem inn­leiðir nýfrjáls­hyggju­lausnir í öllum málum? Rekur stærsta lág­launa­vinnu­stað lands­ins, greiðir vinn­andi fólki laun undir fátækt­ar­mörkum og fólki fram­færslu langt undir hung­ur­mörkum? Hefur falið verk­tökum skipu­lags­valdið og situr aðgerð­ar­laus frammi fyrir hús­næð­iskrepp­unni.

Og þar fyrir utan: Hvers vegna má ekki ræða hrun lýð­ræðis innan flokka­kerf­is­ins? Er það eitt­hvað huss huss, að þetta eru bara vin­sælu­krakka­klíkur sem eru keyrðar áfram af almannafé? Má ekki tala um póli­tík?,” svarar Gunnar Smári. 

Hall­grímur er hæð­inn og svarar: „ok allir vondir nema hreinar politiskar meyjar… sorry gleymdi þvi. Vona þo enn að sos­i­alistar verði til i stjorn e kosn­ingar. Og gangi ykkur sem best!”

Þessu svarar Gunnar Smári fullum hálsi: „Hall­grímur Helgason Hvaða vonda góða tal er þetta? Ertu fimm ára? Ég skrifa hér í status um flokka sem eru lítið annað en skeljar og leik­tjöld en fjár­magna áróður sinn úr rík­is­sjóði, eru í raun að flytja þunga stjórn­mál­anna frá almanna­sam­tökum til þess­ara vin­sælu­krakka­klíka, eða hvað á kalla þetta fyr­ir­brigði sem flokk­arnir eru í dag. Þetta er eitt af stærstu meinum sam­fé­lags­ins, hindrun í að hér sé hægt að byggja upp stjórn­mál sem snú­ast um raun­veru­lega hags­muni fólks. Hjá Sam­fylk­ingu í RVK buðu 50 sig fram og 1319 kusu, 26 á bak við hvern fram­bjóð­anda. Þegar flokk­ur­inn var stofn­aður kusu 11.300 manns í próf­kjöti. Með þessu er ég ekki að skjóta á Sam­fylk­ing­una heldur benda á ömur­lega þróun þess­ara stjórn­mála. Sem einmitt ganga fyrir svona sussi eins og þú ert að bjóða upp á hér.” 

Hann bætir svo við að lokum ástæðu þess að Sós­í­alistum hugn­ast ekki vinstri­banda­lagi. „Því miður eru ekki for­sendur fyrir vinstri-blokk. Annar gamli vinstri flokk­ur­inn er með Sjálf­stæð­is­flokk­inn upp á arm­inn og hinn í liði með Viðreisn, flokks­broti Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Vandinn er því ekki að sós­í­alistar fjalli um próf­kjör þess­ara flokka. Vandinn er djúp­stæður, má rekja til stofn­unar VG og Sam­fylk­ingar, flokka sem vildu ekki vera til vinstri (fannst hall­æris­legt að heita Alþýðu eitt­hvað.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina