Inni á Facebook hópnum Hundar og hvolpar segir Guðrún nokkur frá því hvernig á skömmum tíma hafi hún misst báða hundana sína. Fyrst hann Blíðfinn síðastliðið haust og nú eftir áramót þurfti hún einnig að kveðja hinn hundinn sinn, hann Tímon eftir 16 ára samfylgd.
Guðrún skrifar: „Hjarta mitt hefur verið ansi brotið og ótrúlega tómlegt að hafa engan lítinn vin að skottast í kringum mig.“
Hana langar gjarnan að fá nýjan ferfættan félaga inn á heimilið og biður fólk því að hafa sig í huga ef það viti af goti eða einhverjum hundi í heimilisleit.
„Ég bý ein í húsi austur í sveitum og er svo sannarlega tilbúin að fá aftur í fangið lítinn eða meðalstóran hvutta,“ segir Guðrún.































Athugasemdir