Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Bróðir Guðmundar var nær dauðvona sprautufíkill í Noregi: „Ekkert minna en kraftaverk að hann lifi“

Bróðir Guðmundar var nær dauðvona sprautufíkill í Noregi: „Ekkert minna en kraftaverk að hann lifi“

Það er eitt ár á milli bræðr­anna Guð­mundar Hrafns og Ragnars Arn­gríms­sona. Þeir ólust upp saman og deildu á tíma­bili her­bergi. En allt breytt­ist á ung­lings­aldr­inum. Ragnar varð fík­ill. Svo mik­ill fík­ill að einn lækn­ir­inn sagð­ist aldrei á ferli sínum séð aðra eins fíkn.

Sviptur sjálfræði

Ragnar var fík­ill í 19 ár og var neyslan gríð­ar­leg. Heim­il­is­laus, hálf­rænu­laus, í geð­rofum og and­lega og lík­am­lega ónýtur. Eitt árið var hringt í fjöl­skyld­una frá sjúkra­húsi Noregi en þá hafði Ragnar fund­ist rænu­laus á bekk og var vart hugað líf.

Það var ekki fyrr en Ragnar var sviptur sjálf­ræði árið 2009 og settur í eins og hálfs árs lok­aða afeitrun og með­ferð á Kleppi að hann hætti í neyslu. Þá hafði hann fund­ist nær dauða en lífi í dóp­greni. Það sem hjálp­aði mikið var að Ragnar sýndi fulla sam­vinnu frá upp­hafi.

Guð­mundur seg­ist vilja segja sögu sína sem aðstand­anda til að vekja öðrum von.

„Ég fann til svo mik­illar sam­kenndar með Kristínu sem sendi nýlega út neyð­ar­kall vegna sonar síns. Við vorum stödd á nákvæm­lega sama stað og hún er núna. Hún sýnir gríð­ar­legt hug­rekki og ég dáist að henni.“

Neyð­ar­kall Krist­ínar má lesa hér.

Í dag er Ragnar edrú, á heim­ili, og sinnir vinnu. Að fár­sjúkum sprautu­fíkli eins og honum hafi tek­ist það er ekk­ert minna en krafta­verk. Guð­mundur segir krafta­verkin geta gerst sé til staðar vilji, skiln­ingur og sam­ræm­ing hjá stjórn­völdum. Séu réttu úrræðin fyrir hendi megi bjarga mörgum og miklu fyrr.

Beita þarf hörku

Guðmund segir sorga­sögu Ragnars hafa haf­ist þegar hann fór í Reykja­nes­skóla í Ísa­fjarð­ar­djúpi sem Guð­mundur segir hafa verið not­aðan sem geymslu­stað fyrir vand­ræða­stráka frá Reykja­vík. „Það var ekk­ert alvar­legt að, hann var inn í sig og hafði lent í ein­hverju smá­ræðis ves­eni. Kennari hans taldi nýtt umhverfi geta verið hjálp­legt og þar með hófst 19 ára þrauta­ganga. Í Reykja­nesi komst hann í kynni við hass og sjó­veikispillur og neyslan hófst.“

„Við fórum margoft allan þennan hefð­bundna með­ferð­ar­hring“, segir Guð­mundur en hann stóð þétt við bakið á litla bróður sínum öll þessi ár. „Vogur, Hlað­gerð­ar­kot, Krýsuvík, geð­deild Land­spít­ala en ekk­ert hjálp­aði. Neysla Ragnars var algjör­lega stjórn­laus og álagið á fjöl­skyld­una var gríð­ar­legt.“

„Það var loks sjálf­ræð­is­svipt­ingin sem bjarg­aði lífi bróður míns. Það er lífs­nauð­syn­legt að geta gripið til hennar í til­fellum eins og Ragnars.“ Hann er reiður og spyr af hverju hafi ekki verið reynt að bjarga lífi Ragnars miklu fyrr. „Ef björg­un­ar­sveit­ar­menn koma að ein­stak­lingi sem biður þá frá að hverfa, myndu þeir bara fara? Ég held nú ekki.  En ef fík­ill vill ekki hjálp er ekk­ert gert. Um er að ræða fár­sjúkt fólk sem hrein­lega þarf að beita hörku.”

Fíknin skaðar allt og alla

Að sögn Guð­mundar er alltof erfitt að svipta fíkla sjálf­ræði þar sem litið á sjálf­ræðið sem allt að heilagan rétt fólks.

„Ragnar skað­aði sjálfan sig, fjöl­skyldu sína og sam­fé­lagið. Það ein­kennir fíkla, sér­stak­lega þegar neyslan er orðin þetta stjórn­laus. Þú ræðir ekki yfir­vegað um lausnir við ein­hvern sem kannski er í frá­hvörfum og hugsar ein­göngu um að redda næsta skammti.”

„Það er skylda okkar sem sam­fé­lags að grípa inn miklu fyrr og setja ramma og sam­ræma aðgerðir.  Allir þessir með­ferð­ar­að­ilar vilja vel, ótal góð­gerð­ar­fé­lög gera sitt besta og starfs­fólkið er oft á tíðum hreinir englar en það er engin ein sam­ræmd stefna um úrræði. Til dæmis fá fíklar á Hlað­gerð­ar­koti dag­leyfi eftir 10 daga með­ferð sem er alveg með ólík­indum. Með­ferð­ar­kúlt­úr­inn hér er að útvista sem mestu. Við verðum sem sam­fé­lag að vinna í þessum and­skota. End­ur­komu­hlut­fallið er skelfi­lega hátt.“

Höfum misst metnaðinn

„Það er ótrú­legt en Ragnar fór á Klepp, stofnun sem er byggð um miðja síð­ustu öld þegar landið var þrisvar sinnum færra að fólki og tuttug­falt fátækara. Þetta er enn eina stofnun lands­ins sem með­höndlar and­lega, lík­am­lega og sál­fræna erf­ið­leika eins og Ragnar átti við að stríða. Á þessum tíma var í gangi metn­aður og for­gangs­röðun sem við virð­umst hafa glatað í dag.“

Guð­mundur var oft spurður að því af hverju hann léti Ragnar bara ekki gossa, það þýddi ekki að hjálpa fólki sem ekki vildi láta hjálpa sér. „Maður yfir­gefur ekki fjöl­skyld­una sína, ég myndi að minnsta kosti aldrei hætta að rétta út hjálp­ar­hönd og toga ef með þarf. Hér er um fólk að ræða, ekki bara fíkla. Þau eru synir og dætur, bræður og systur og jafn­vel for­eldrar sem flest eiga ein­hverja áfalla­sögu að baki. Það er mín reynsla að mikið af þessu fólki sé ákaf­lega eðl­is­greint en per­sónu­leg áföll hafi ýtt þeim út í notkun hug­breyt­andi efna. Þau byrja oft sem frið­þæg­ing þangað til þau verða hel­víti sem taka yfir lífið fram að kvala­fullum dauð­daga.“

Guð­mundur er reiður út í kerfið. „Ég fór margoft með bróður mínum á göngu­deild Lands­spít­al­ans og sá unga drengi koma, heim­il­is­lausa með dót í poka, og grát­biðja um hjálp. Sumir sváfu á bið­stof­unni þar til örygg­is­vörður vís­aði þeim út. Aðrir komu í fylgd lög­reglu, var hent í næsta sófa og eng­inn skipti sér af þeim. Þetta fór illa í mig og minnti mig á þegar Ragnar var yngri. Ekkert hefur breyst.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina