Sóley, spjallmenni Ferðamálastofu, hefur orðið sér að athlægi fyrir að geta hvorki svarað spurningum um stofnunina né ferðalög innanlands. Fjörug umræða fór fram um málið í fjölmennum hópi ferðaþjónustunnar á Facebook.
Mörg fyrirtæki eru farin að nýta sér svo kölluð spjallmenni á vefsíðum sínum. Spjallmenni er róbóti sem á að geta gefið svör við spurningum tengdum starfsemi og þjónustu hvers og eins fyrirtækis. Þetta á að koma til móts við viðskiptavini þar sem spjallmennið er við störf allan sólarhringinn og því hægt að leita sér upplýsinga utan opnunartíma.
Spjallmennin virka hins vegar mis vel og eru mis lengi að læra.
Ansi skrautlegar umræður sköpuðust í kjölfar myndar sem Jón nokkur deildi af svörum Sóleyjar, spjallmennis Ferðamálastofu.

Mörgum þótti þetta ansi fyndið, þó starfsmönnum Ferðamálastofu hafi mögulega ekki verið jafn skemmt: „Ég skal gera mitt besta til að svara spurningum um starfsemina okkar.“ Veit ekki til þess að Gullfoss tengist sérstaklega starfsemi Ferðamálastofu,“ svarar Ferðamálastofa.
Ferðamálastofu er svarað: „Hvað tengist starfsemi ykkar ef ekki fjölförnustu ferðamannastaðir landsins?“
Einnig skrifar maður að nafni Ársæll: „Obbosi. Passa sig að svara ekki fyrir hönd opinbers batterís eftir kvöldmat. Og alls ekki í þjósti. Ætli einhver hafi gleymt að passa að svara í eigin nafni og óvart kommentað fyrir hönd vinnustaðarins?“
Ársæli er svarað um hæl: „Sæll Ársæll, það var ég sem svaraði fyrir hönd Ferðamálastofu áðan og það var algerlega viljandi að gera það með þeim hætti.“
Jón, sem birti myndina svarar starfsmanni Ferðamálastofu: „Ég segi nú bara eins og meistari Bríet; Raaaahólegur kúreki…! Þetta var nú bara létt glens á fimmtudagskvöldi.“
Í kjölfar myndbirtingarinnar fékk Sóley að spreyta sig á hinum ýmsu spurningum sem henni gekk mis vel að svara.



Margir tóku þátt í umræðunni, þar á meðal annar starfsmaður Ferðamálastofu sem skrifaði: „Hefðirðu hringt og spurt Sóleyju sömu spurningar?“
Honum er svarað: „Sóley er hönnuð með það að markmiði að starfsfólk Ferðamálastofu þurfi ekki að svara í símann. Ef þú rennir yfir þráðinn og skoðar skjáskotin þá virðist spjallmennið ekki geta svarað einni einustu spurningu um starfsemi stofnunarinnar sem að því er beint svo ætli sé ekki best að hringja eftir allt saman? “
Starfsmaðurinn svarar: „ Ef þú trúir því raunverulega að þetta séu einu spurningarnar sem hún fær þá skil ég vel að þú viljir frekar hringja. Þér er velkomið að gera það. Þeir sem fá svör við spurningum sínum í samskiptum við Sóleyju sjá þó væntanlega ekki ástæðu til þess…“
Ferðamálastofa skrifar athugasemd til Jóns sem setti inn myndina: „Við á Ferðamálastofu erum að bæta þjónustu okkar með að innleiða sjálfvirka svörun. Fór í loftið í dag. Getur vissulega ekki svarað öllu en það kemur með tímanum. Það eru svona tæknilausnir sem ferðaþjónustan þarf á að halda. Er þín ferðaskrifstofa að reyna svona lausnir Jón?“
Jón svarar: „Nei, ég er of upptekinn við að berjast í því að lækka tryggingarskyldu fyrirtækisins míns og standa skil á öllum kröfum sem Ferðamálastofa setur því.“
Allir virðast þó hafa róast þegar líða tekur á samskiptin og þakkar starfsmaður Ferðamálastofu fyrir þráðinn og segir að öll endurgjöf nýtist við að bæta Sóleyju og gera hana vitrari.































Athugasemdir