„Sykurfráhvörf eru ekkert grín, ég sem aldrei fæ höfuðverk, ekki einu sinni í krabbameinslyfjameðferð er búin að vera með höfuðverk og liðverki eins og ég hafi lent fyrir bíl á góðri ferð. Nei bara pæling, við erum að tala um sykur ekki kókaín.“
Þetta skrifar séra Hildur Eir Bolladóttir á Facebook síðu sinni. En segist hún hafa dottið í mikið sykurát þegar hún var í krabbameinsmeðferð síðastliðið sumar.
Hildur segist ekki hafa snert við sykri í mörg ár, en þegar þarna var komið sögu girntist hún ekkert nema sætindi og lét hún undan lönguninni.
Það reyndist Hildi Eir þrautin þyngri að losna við sætindapúkann og skrifar hún: „Við erum að tala um að ég var farin að koma við í sjoppu á hverjum degi og kaupa mér sælgæti til að sitja að því ein, það er rosalega skrýtin hegðun hjá gráhærðri konu á fimmtugsaldri.“
En fyrir um tveimur vikum síðan fékk hún algjörlega nóg og hætti sykur neyslunni, með fyrrgreindum afleiðingum.
Margir hafa svarað Hildi og segjast einhverjir hafa svipaða reynslu af því að hætta borða sykur.
Segir ein sykurinn vera hættulegast fíkniefnið og annar skrifar: „Sykur er löglega útgáfan af kókaíni.“
María skrifar: „Það er sagt að það geti verið erfiðara að losna úr sykurfíkn en heróínfíkn. Því sykurinn er alls staðar og leynist víða, til dæmis í matvælum eins og kjúklingi sem er sykursprautaður ofl. ofl.
Því ætti maður kannski að hugsa sig tvisvar um áður en rokið er á nammibarinn á morgun, á hinum alræmda nammidegi.































Athugasemdir