Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra er gagnrýnd á Twitter fyrir að hafa flogið yfir gosið með þyrlu Landhelgisgæslunnar í gær. Sumir segja að dómsmálaherra hafi ekkert erindi í slíka ferð og hún hafi mögulega tekið sæti vísindamanns. Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem þyrluflug hennar er gagnrýnt.
Áslaug deildi myndum af gosinu á Twitter í nótt. Nær öll viðbrögð eru skrifuð að erlendu fólki en ein íslensk kona spyr þó á ensk: „Svo skattarnir mínir voru að fara í það að fljúga þér yfir gosið svo þú gætir fengið myndir fyrir Instagram?“
Áslaug svarar henni og segir gæsluna hafa skipulagt flug í gær þar sem vísindamönnum og fjölmiðlafólki var boðið í ferð. Henni hafi verið boðið þar sem hún er æðsti yfirmaður almannavarna.
Fleiri gagnrýna Áslaugu þó, líkt og Daníel Freyr nokkur en færsla hans fer víða: „Sorry, en mér þykir mjög óeðlilegt að ráðherra hafi verið með í þyrluflugi yfir gosstöðvum. Öll laus sæti eiga að vera frátekin fyrir vísindamenn og almannavarnir.“
Daníel bætir svo við þetta: „Troða sér inn, frábært tækifæri fyrir myndir með helsta fólkinu. Kosningavetur, þú veist“.
Óskar Steinn Jónínuson Ómarsson, fyrrverandi ritari Samfylkingarinnar, tekur undir þá kenningu. „Fleiri insta followers í kassann“.
Aðrir furða sig á því að dómsmálaráðherra af öllum ráðherrum hafi farið í ferð sem þessa. „Ja, einmitt. Líður ekki öllum betur að vita að ráðherra dómsmála se búin að taka stöðuna?,“ spyr ein kona í hæðni en önnur virðist einlæg: „Afhverju, ef það þurfti að vera ráðherra, var það ekki forsætisráðherra?“
Haukur Bragason, sem er meðal vinsælli landsmönnum á Twitter, grínast svo með það að Áslaug hljóti að vera sjúk í þyrluferðir. Í fyrra fór Áslaug fram og tilbaka í hestaferð með þyrlunni. Það var harðlega gagnrýnt sem „óboðlegt bruðl“.































Athugasemdir