Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Í lagi að takmarka frelsi Íslendinga til að auka frelsi erlendra aðila til að koma til Íslands“

„Í lagi að takmarka frelsi Íslendinga til að auka frelsi erlendra aðila til að koma til Íslands“

Sífellt fleiri gagn­rýna áform rík­is­stjórn­ar­innar um að opna landið þrátt fyrir hætt­una sem því fylgir. Þórólfur Matth­í­as­son, pró­fessor í hag­fræði við Háskóla Íslands, segir í aðsendir grein í Kjarn­anum að rík­is­stjórnin sé í raun að ákveða að velja útlend­inga fram yfir Íslend­inga, frelsi þeirra eykst en frelsi Íslend­inga skerð­ist. Hann segir ein­ungis tvo inn­lend aðila sem gætu gleðst yfir þessum áformum, stór­rekstr­ar­að­ilar í flutn­ingi ferða­manna og sölu­að­ilar gisti­þjón­ustu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Þórólfur rifjar upp hvernig Íslend­ingar voru frjálsir ferða sinna inn­an­lands síð­asta sumar. Alveg þangað til ákveðið var að opna landið fyrir þá sem voru frá „grænum svæðum“. Fyr­ir­sjá­an­lega „léku“ menn af rauðum svæðum á það kerfi og allt var sett í lás stuttu síðar.

„Nú, þegar liðnar eru 3 vikur af mars er staðan sú að afar fá inn­an­lands­smit hafa greinst í tvo og hálfan mán­uð. Til­efni er til frek­ari til­slak­ana á sam­komu­tak­mörk­unum inn­an­lands. Lands­menn geta farið að horfa á daga­talið og hringja í sveita­hót­elin og skipu­leggja sum­ar­ferð­ina með fjöl­skyld­unni. Það getur svo aukið bjart­sýni að undir lok sum­ars gæti þekjun bólu­setn­inga inn­an­lands verið orðin nægj­an­lega víð­tæk til að koma í veg fyrir mögu­leika sjúk­dóms­ins til að breið­ast út sam­kvæmt lög­málum veld­is­vaxt­ar­ins,“ segir Þórólfur.

„Þess í stað verður Covid-19 sjúk­dóm­ur­inn á pari við misl­inga og rauða hunda. Alvar­legur fyrir óbólu­setta, en ekki ógn við lýð­heilsu. „Öf­unds­verð staða“ fyrir almenn­ing í land­inu. Þeir einu sem geta með nokkrum rétti verið með ósáttir vegna þessa ástands eru stór-­rekstr­ar­að­ilar í flutn­ingi ferða­manna og sölu­að­ilar gisti­þjón­ustu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þó verður ekki séð að opnun landamæra yrði þeim til fram­dráttar ef vel er að gáð eins og rakið verður hér á eft­ir.“

Hann segir meinta tals­menn frelsis í raun beita sér fyrir skert frelsi Íslend­inga. „Tals­menn rík­is­stjórn­ar­innar bera fyrir sig nauð­syn þess að draga úr þessum frels­is­skerð­ingum þrátt fyrir gang veirunnar í heim­in­um, m.a. með því að rýmka aðgang erlendra aðila búsettra á „græn­um“ og „gul­um“ svæðum að land­inu. Rétt er það að opnun landamæra mun auka frelsi erlendra rík­is­borg­ara til að koma til Íslands. En við það eykst réttur íslenskra rík­is­borg­ara ekk­ert, nema síður sé. Reynsla opn­un­ar­innar í júlí 2020 bendir til þess að uppúr miðjum maí gæti þurft að herða enn á sam­komu­tak­mörk­un­um, fækka gestum í rýmum niður í 10-15 og taka upp harða útgáfu af 2 metra regl­unni, fyr­ir­skipa lokun veit­inga­staða klukkan 20:00 eða 21:00 á kvöldin í stað 22:00 eins og nú er.“

Hann segir að þetta fólk virð­ist varla átta sig á því að fjórða bylgjan myndi veri áhrif á efna­hag­inn en að loka land­inu aðeins lengur. „Um miðjan maí gæti því þessi meinta frels­is­auk­andi aðgerð hafa tak­markað frelsi venju­legra Íslend­inga veru­lega frá því sem nú er. Einn tals­maður rík­is­stjórn­ar­innar svar­aði áhyggjum þessu tengd í Kast­ljósi 18. mars á þá leið að við þyrftum að halda uppi sam­komu­tak­mörk­unum og sprittun og öðrum tak­mörk­unum til að tak­marka útbreiðslu­getu veiru sem kynni að ber­ast með erlendum ferða­manni til lands­ins eftir 1. maí. Þ.e.a.s. sumir tals­menn rík­is­stjórn­ar­innar telja í lagi að tak­marka frelsi Íslend­inga til að auka frelsi erlendra aðila til að koma til Íslands! Það verður stundum skrítið hug­tak, frels­is­hug­tak­ið!,“ segir hann og vísar til orða Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dótttur dóms­mála­ráð­herra.

Hann segir að lokum að þetta sé stór­hættu­leg til­raun. „Galopin landa­mæri fyrir óbólu­setta gætu hugs­an­lega fjölgað ferða­mönnum eitt­hvað tíma­bund­ið. Af því gætu ein­hverjir haft tekj­ur, tíma­bund­ið. Galopin landa­mæri gagn­vart óbólu­settum stó­r­eykur líkur á fjórðu bylgju far­ald­urs á Íslandi. Tekju­tap sem myndi fylgja fjórðu bylgj­unni yfir­skyggir mögu­legan ávinn­ing af opn­un. Er ástæða til að gera slíkar til­raunir í nafni einnar atvinnu­greinar og á kostnað allra hinna?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina