Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Göngumaður festist við glóandi hraunið – Þúsundir í Geldingadölum

Göngumaður festist við glóandi hraunið – Þúsundir í Geldingadölum
Gígurinn í Geld­inga­dölum. Tillaga að nafni er Gimbill, til heið­urs Stóra Hrúti sem trónir yfir. Mynd: Reynir Traustason

Þúsundir göngu­manna lögð leið sína í Geld­inga­dali í dag til að upp­lifa eld­gosið sem staðið hefur síðan á föstu­dags­kvöld. Margra kíló­metra bílaraðir voru við Fest­ar­fjall og alla leið að Nátthaga. Allir voru á einu máli um að upp­lifunin á gos­s­töðv­unum hafi verið himnesk og engu öðru lík. Leiðin á svæðið er stikuð og hefur þegar mynd­ast göngu­stígur. Eftir að Vega­gerðin hafði lokað veg­inum með Fest­ar­fjalli varð göngu­fólk að ganga allt að 20 kíló­metrum til að kom­ast á gossvæðið. Margir lentu í háska fyrir vikið. En nú er veg­ur­inn opinn og göngu­leiðin að gígnum er aðeins um 3.5 kíló­metrar eða rúm klukku­stund.

Ekki urðu alvar­leg óhöpp en stundum mátti minnstu muna. Nokkur fjöldi fólk og sumir með börn gerðu sér það að leik að fara alveg upp að gígnum, sem við köllum Gimbil til heið­urs Stóra Hrúti sem trónir yfir í grennd­inni. Gríð­ar­leg slysa­hætta er undir börmum gígs­ins sem stöðugt brotnar úr við eldsum­brotin og lífs­hættu­leg brot hrynja út. „Síðasti fávit­inn er ekki enn fæddur,“ varð göngu­manni að orði.

Þegar þessi mynd var tekin var maður í bak­sýn fastur á öðrum fæti við gló­andi hraunið.

Einn úr hópnum við hraunið ákvað að sýna sig og steig öðrum fæti út á gló­andi hraun­breið­una. Ekki vildi betur til en svo að skór hans bók­staf­lega límd­ist við hraunið. Hann náði í ofboði að rífa sig úr skónum og hlaupa frá á sokka­leist­anum. Hann slapp með skrekk­inn en þurfti að ganga ein­skóa til byggða, 3,5 kíló­metra. Skór hans varð að ösku.

Flestir voru alsælir með ferð­ina og göngu­ferð í sól og hríð á víxl. Dagur að baki með ein­stakri upp­lifun og sjón­ar­spili sem fæstir ná að upp­lifa. Ógn­ar­kraftar nátt­úr­unnar sýndu sig þegar Gimbill spýtti úr sér eldi og hrauni og lét mann­skepn­una vita hve mátt­vana hún er gagn­vart þeim kröftum sem búa í iðrum jarðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina