Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Svona sparar þú við val á húðvörum – Fokdýrar vörur lenda í ruslinu

Svona sparar þú við val á húðvörum – Fokdýrar vörur lenda í ruslinu

Hver þekkir ekki að vera búinn að eyða him­in­háum upp­hæðum í snyrti og förð­un­ar­vörur, en standa svo uppi með vörur sem hrein­lega henta alls ekki. Vörurnar sitja síðan inni í skáp þar til þær eru ónýtar og lenda í rusl­inu. Nákvæm­lega þetta er mjög algengt því miður. Fyrir þessu geta verið nokkrar ástæður.

Fagmennska og kunnátta

Það er alls ekki sjálf­gefið að fólk viti hvaða húð­gerð, húð­vanda­mál, lita­tónn húðar eða annað slíkt, það er með. Það er því miður ekki heldur sjálf­gefið að sá sem afgreiðir þig eða situr fyrir svörum, viti sjálfur eða hafi kunn­átt­una til þess að leið­beina og ráð­leggja. Það í sjálfu sér er ekki skrítið, því til þess að vera mjög vel að sér í þessum fræðum þarf við­kom­andi að vera með menntun í snyrtifræði og eða förð­un­ar­fræði. Auðvitað eru líka til ein­stak­lingar sem eru ómennt­aðir í fræð­unum og eru mjög vel að sér í þessum efnum og ekki síðri í að aðstoða við valið. Engu að síður getur ekki hver sem er veitt þá þjón­ustu sem er þörf ef vel á að vera, svo mikið er víst.

Innihaldsefni

Inni­halds­efni í vör­unum er svo annað sem skiptir miklu máli. Margir bæði kjósa að nota ekki hin og þessi efni og aðrir eru hrein­lega með ofnæmi eða óþol fyrir ákveðnum efnum. Í snyrtifræði er eitt af því sem nem­endum er kennt einmitt það að lesa aftan á vörur og þekkja hin fjöl­mörgu erlendu heiti sem geta verið notuð yfir nákvæm­lega sömu hlut­ina. Það eru auð­vitað til ómennt­aðir aðilar sem eru mjög færir í að lesa á vörur og þekkja mjög vel inni­halds­lýs­ingar, það er ekk­ert að því. Þekk­ingin verður að vera til staðar í ein­hverri mynd ef það á að vera hægt að gefa góða þjón­ustu þegar kemur að snyrti og förð­un­ar­vörum sem henta við­skipta­vin­inum. Það er mik­ill sparn­aður að fá þjón­ustu frá fólki sem kann sitt fag. Við­skipta­vinur fær með því móti nákvæmar upp­lýs­ingar um það sem þarf að með­höndla og val á réttum snyrti­vörum.

Fáðu vitneskju um þína húðgerð

Ef þú veist ekki hvernig húð­gerð þú ert með væri ekki vit­laust að kom­ast að því, það getur sparað þér heil­mik­inn pen­ing að vita hvað hentar inni húð. Það er hægt að fá húð­grein­ingu á snyrti­stofum til dæmis og í raun á snyrti­fræð­ingur að fram­kvæma slíkt mat í öllum til­fellum áður en nokkur með­ferð á húð er hefst. Það að vita hvaða húð­gerð þú ert með er mjög nauð­syn­legt fyrir margar sakir. Þín snyrti­stofa ætti að vera með á skrá húð­gerð þína hafir þú einu sinni farið í húð­með­ferð hjá stof­unni.

Fáðu vissu fyrir ofnæmi/óþoli

Sé ofnæmi eða óþol til staðar er mjög nauð­syn­legt að þekkja þau efni sem valda ein­kenn­unum. Best er að fá stað­fest­ingu á því hjá húð­sjúk­dóma­lækni. Þegar það liggur ljóst fyrir hvaða efni valda ein­kennum er mjög nauð­syn­legt að kynna sér þessi efni og öll nöfnin sem þau geta borið í inni­halds­lýs­ingum á vörum. Þannig getur þú forð­ast efnið eða efnin og ekki setið uppi með rán­dýrar vörur sem þú getur síðan ekki notað.

Fáðu prufur

Það ætti að vera sjálf­sagt mál að geta fengið prufur af snyrti­vörum. Þó er ekki hlaupið að því all­staðar hér á landi, því miður. Veldu verslun sem veitir þessa þjón­ustu. Snyrti­vörur eru dýrar og það er í raun mjög skrítið að ætl­ast sé til þess að neyt­endur kaupi dýrar vörur án þess að fá prufur sem hægt er að prófa nokkrum sinnum heima hjá sér áður en ákvörðun er tekin. Flestar, þó alls ekki allar versl­anir eru með opnar prufur í versl­un­inni en það er alls ekki það sama auk þess sem það er mjög sóða­legt oft á tíðum svo ekki sé minnst á að hver sem er getur sett fing­urna ofan í krukk­urnar og hand­fjatlað vör­urnar. Ekki síst á þessum tímum ættu alls ekki að vera prufur af vörum með opnum aðgangi heldur ein­ungis prufur sem fólk getur tekið með sér heim.

Gerðu kröfur

Veldu verslun sem veitir góða þjón­ustu, er með starfs­fólk sem veit hvað það syngur, hefur tíma til þess að þjón­usta þig og gefur þér prufur af því sem þig langar að prófa.

Ekki nota of mikið magn og ekki nota fingurna

Það er mjög algengt að verið sé að nota miklu meira magn en í raun þarf. Það þýðir að vör­urnar duga styttra sem leiðir til meiri útgjalda. Af góðum vörum á alls ekki að þurfa að nota mikið magn. Sumir hugsa oft, ég set bara nóg þá bara virkar þetta betur, en það er víðs fjarri sann­leik­anum. Aldrei stinga fingrum beint ofan í vör­urnar, jafn­vel þótt þú sért eini aðil­inn sem er að nota þær. Bakt­er­íur sem við berum gjarnan á hönd­unum geta grass­erað ofan í vör­unum. Best er að nota þar til gerða spaða.

Geymdu vörurnar við réttar aðstæður

Það er sem dæmi ekki gott að geyma snyrti­vörur, krem og förð­un­ar­vörur inni á bað­her­bergi. Þar verður oft mjög heitt og mikil gufa getur mynd­ast sem eru ekki kjörað­stæður fyrir þessar vörur. Alls ekki geyma vörur í opnum hillum eða við vaskinn, þar ertu komin með að auki við hit­ann og rak­ann bakt­er­íur og slíkt sem þrífst gjarnan inni á bað­her­bergjum. Besti stað­ur­inn fyrir bæði húð og förð­un­ar­vörur er þar sem er fremur svalt og dimmt og ekki hita­breyt­ingar. Það skiptir höf­uð­máli að geyma þessar vörur á réttan hátt svo virknin haldi sér og breyt­ist ekki. Yfir­leitt liggja mikil verð­mæti í vör­unum og þá þarf að huga að þessu og auð­vitað hrein­læt­inu.

Fylgstu með tilboðum og afsláttum

Tilboð og afslættir er nokkuð sem getur sparað fólki miklar fjár­hæðir að því gefnu að þú vitir hvers þú þarfn­ast en sért ekki að kaupa eitt­hvað sem hentar svo alls ekki. Það að þekkja þau atriði sem áður hefur verið komið inn á veitir líka meira frelsi til þess að geta pantað á net­inu. Þá ætti fólk að geta verið nokkuð öruggt með hvað á að panta og hvað hentar.

Vefverslanir

Veldu þér vef­verslun sem gefur allar nauð­syn­legar upp­lýs­ingar. Ekki bara um eðli og virkni vör­unnar heldur ítar­lega inni­halds­lýs­ingu. Það að verslun veiti ekki þessar lág­marks­upp­lýs­ingar er alls ekki af hinu góða, það á að vera aðgengi að öllum upp­lýs­ingum. Vef­versl­anir ættu líka að geta sent prufur af vörum sem þig langar að prófa áður en keypt er. Þjónusta vef­versl­ana er mjög mis­jöfn svo veldu vel og veldu þá vef­verslun sem greini­lega leggur sig fram. Málið er að hjá vef­verslun eru upp­lýs­ing­arnar sem gefnar eru þjón­ustan sem við­skipta­vin­ur­inn er að fá, í stað þjón­ustu sem hægt væri að fá í verslun. Séu þessi atriði ekki á krist­al­tæru er við­skipta­vinur sem verslar við þá vef­síðu ekki að fá góða þjón­ustu. Vörurnar kosta það nákvæm­lega sama í vef­verslun og í verslun svo það ætti að vera lág­marks­krafa að þessi atriði séu á hreinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina