Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Leifur keypti tugmilljóna íbúð í glæsihúsi í Kópavogi fyrir 2 árum: „Húsið er ekki enn tilbúið“

Leifur keypti tugmilljóna íbúð í glæsihúsi í Kópavogi fyrir 2 árum: „Húsið er ekki enn tilbúið“

„Við höfum enn ekki fengið afhenta full­búna eign þótt við höfum keypt fyrir að verða tveimur árum,” segir Leifur Eysteins­son um íbúð sína í glæsi­hús­inu að Álalind 14.

Húsið fékk við­ur­kenn­ingu Umhverfis- og sam­göngu­nefndar Kópa­vogs­bæjar fyrir hönnun og frá­gang, sem Leifi og öðrum íbúum húss­ins finnst ansi merki­legt í ljósi þess að frá­gangi er ekki lokið.

„Við hjónin keyptum í maí 2019 og gerðum kaup­samn­ing um að bygg­ing yrði til­búin og afsal gefið út eigi síðar en 1. des­em­ber 2019. Sem betur fer höfum við haldið eftir greiðslum því húsið er ekki enn til­búið. Það hafa því miður nokkrir kaup­endur borgað sínar íbúðir upp í topp,” segir Leifur en 40 íbúðir eru í hús­inu.

„Ég hefði talið eðli­legt að fólk fengi réttar upp­lýs­ingar um stöðu mála áður en það flytti inn, svo það hefði getað tekið upp­lýsta ákvörðun um hvort það vildi flytja inn yfir­leitt,” bætir Leifur við.

Hið einkennilegasta mál

Allt í kringum þetta mál er hið ein­kenni­leg­asta að mati Leifs. „Það var fast­eigna­salan Lind sem ann­að­ist sölu íbúð­anna fyrir Leigu­garða, sem bygg­ing­ar­fyr­ir­tækið ÁF-hús byggir fyrir og eru síð­ar­nefndu fyr­ir­tækin tengd. Það dettur síðan upp úr fast­eigna­sal­anum hjá Lind við gerð kauptil­boðs að hans sé tengda­sonur fram­kvæmda­stjóra ÁF-húsa. Hann upp­lýsti þetta hins vegar ekki þegar hann sýndi íbúð­ina.“

Þrauta­ganga íbúa, hófst strax og flutt var inn. Margir keyptu og fluttu inn á árinu 2018. „Okkur hafði verið lofað full­bú­inni íbúð og sam­eign en sumar íbúðir og sam­eign eru ekki til­búin. Til dæmis er ástand park­ets í nokkrum íbúðum, þar á meðal minni, ekki eins og á að vera í nýrri íbúð í glæsi­legu húsi. Sölu­að­ili park­ets­ins hefur upp­lýst að bygg­ing­ar­að­ili hafi ekki valið efni sem er gert til að vera á jafn stórum gólf­fleti og er í stærri íbúð­unum í hús­inu,“ segir Leifur.

Öryggisúttekt mikilvægust

Að mati íbúa brennur mest á að fá loka­út­tekt sem hefur lík­lega ekki enn farið fram.

„Samkvæmt upp­lýs­ingum bygg­ing­ar­full­trúa í Kópavogi fyrr í mán­uð­inum var hafin örygg­is­út­tekt á hús­inu í októ­ber 2018 en starfs­maður slökkvi­liðs höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins sem gerði úttekt­ina yfir­gaf húsið vegna ágalla þannig að úttektin féll niður. Þá var búið að leyfa íbúum að flytja inn án þess að örygg­is­út­tekt lægi fyrir.“

Hann bætir við að hvorki fast­eigna­sali né bygg­ing­ar­stjóri hafi upp­lýst íbúa um að örygg­is­út­tekt hefði ekki farið fram og að sam­kvæmt bygg­ing­ar­reglu­gerð sé óheim­ilt að taka mann­virki í notkun eða flytja inn í það nema örygg­is­út­tekt hafi farið fram.

„Örygg­is­út­tekt fór loks fram um miðjan febr­úar síð­ast­lið­inn. Bygg­ing­ar­full­trúi segir að fast­eigna­sali og bygg­ing­ar­stjóri hafi brugð­ist upp­lýs­inga­skyldu sinni.“

Að sögn Leifs er aðgengi fyrir hreyfi­haml­aða gert erfitt því það þarf að fara í gegnum þungar eld­varn­ar­hurðar á handafl­inu til að kom­ast frá bíla­geymslu og í íbúð. Lóðin sé enn ófrá­gengin þótt byrjað hafi verið á lóða­frá­gangi á árinu 2019.

Íbúar sendir í hringi

Það er aug­ljóst að Leifur veit varla hvar skal byrja eða enda hvað varðar sam­skipti hans við hina ýmsu emb­ætt­is­menn og bygg­ing­ar­að­ila. „Við höfum margoft haft sam­band við bygg­ing­ar­að­ila og bygg­inga­full­trú­ann í Kópavogi til að afla upp­lýs­inga og svara en svörin láta gjarnan á sér standa og bygg­ing­ar­full­trúi vísar mörgu á bygg­inga­stjóra, fram­kvæmda­stjóra ÁF-húsa.

Allir eru ósköp við­ræðu­góðir, en við­brögðin eru bæði sein og dræm. Bygg­ing­ar­full­trúi og bygg­ing­ar­stjóri virð­ast líta svo á að íbúð­ar­kaup­endur séu ekki aðilar að mál­inu, þótt kaup­endur hafi nú þegar greitt nán­ast allt kaup­verðið. Bygg­ing­ar­að­ili virð­ist stjórna ferð­inni og geta dregið úrbætur telji hann það þjóna hags­munum sínum.“

Leifi segir það auð­vitað alveg furðu­legt ef opin­beru bygg­ing­ar­eft­ir­liti sé ekki ætlað að gegna veiga­meira hlut­verk í að gæta hags­muna fólks sem kaupir í góðri trú íbúðir í húsi í bygg­ingu.  „Fyr­ir­tæki og sterk hags­muna­sam­tök þeirra kvarta gjarnan yfir opin­berum reglum sem er ætlað að tryggja gæði bygg­inga og hags­muni íbúða­kaup­enda. Þegar til kast­anna kemur þurfa kaup­endur að gæta hags­muna sinna sjálfir. Reglur þurfa að tryggja hags­muni almenn­ings gagn­vart þeim sem hafa atvinnu af að byggja og selja eignir.“

Leifur hvetur fólk til að kynna sér málin og sýna aðgæslu áður en það leggur ævisparn­að­inn í kaup á íbúð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina